Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Qupperneq 18
64
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
Sérstæö sakamál
Flestir hitta einhvern tíma á
ævinni einhvern sem þeir dást að,
virða eða verða ástfangnir af. Lou
Nichols varð afar ástfanginn. Hann
var þrjátíu og sex ára og ók lang-
ferðabíl og konan sem hann fékk
svona mikla ást á var gift atvinnu-
rekanda hans og bjó í Leamington,
á Englandi.
Fyrirtækið sem Lou vann hjá var
í eigu Alfreds og Edith Chalmers og
það var árið-1982 að Lou réð sig til
þeirra til þess að aka langferðabílum
þeirra en það leið ekki á löngu þar
til hann fékk ást á Edith. Þó var hún
íjórtán árum eldri en hann.
Lou varð þó strax ljóst að ást hans
yrði ekki endurgoldin þar eð hún var
gift. Hann hélt því tilfinningum sín-
um leyndum.
Þurfti allt I einu
á aðstoð að halda
Tveimur árum eftir að Lou réð sig
til starfa hjá Chalmershjónunum
varð mikil breyting á. Alfred fékk tvö
hjartaáföll árið 1984 og það ár lést
hann. Lou Nichols fann til með Ed-
ith en þóttist þó viss um að nú kynni
ást hans að verða endurgoldin.
Allt fram að láti Alfreds hafði Ed-
ith tekið fremur lítinn þátt í rekstri
fyrirtækisins. Hún hafði annast
bréfaskriftir en vissi ekki mikið um
daglegan rekstur. Hún þurfti því á
hjálp að halda og umfram allt þarfn-
aðist hún einhvers sem hún gat
treyst svo ekki kæmi til þess að hún
yrði féflétt. Lou fannst þetta gott
tækifæri fyrir sig og allt frá því í
maí 1984 og fram í ágúst 1986 sinnti
hann störfum sínum, sem voru mun
umfangsmeiri og ábyrgðarmeiri en
áður, eins vel og hann gat. Hann
fékk ekki stöðuhækkun en auka-
greiðsla var ætíð í launaumslaginu.
Lou Nichols og Edith Chalmers
ræddu oft af miklum hita um rekstur
fyrirtækisins á þessum tíma en ætíð
fór svo að Lou lét sig. Það varð hann
að gera því Edith átti fyrirtækið og
hún vildi frekar láta sér verða á mis-
tök í rekstrinum vegna eigin ákvarð-
ana en annarra.
í ágúst í fyrra þóttist hún orðin
fullviss um að nú þyrfti hún ekki
lengur á hjálp Lous að halda og nú
stóð hann uppi atvinnulaus. Umræð-
urnar miklu, sem stundum höfðu
farið fram um reksturinn, höfðu ekki
aðeins vakið bitrar tilfinningar með
Lou heldur fannst honum nú sem
hann hefði eytt undanförnum árum
í ekki neitt. Hann stæði nú þar sem
hann hefði verið 1982. Uppsögnina
hefði hann þó sennilega getað þolað
en það sem hann þoldi ekki var að
hann hafði aldrei fengið tækifæri til
þess að sýna Edith hverjar tilfinn-
ingar hann bar í brjósti til hennar.
Hugði á hefnd
Næstu daga var Lou í þungum
þönkum. Honum var ljóst að draum-
ar hans um að hann myndi kvænast
þessari fimmtugu konu og eignast
helminginn af fyrirtækinu myndu
aldrei rætast. Hann hafði reist loft-
kastala og nú höfðu þeir hrunið.
Hann rifjaði upp öll þau skipti sem
hann hafði reynt að fá Edith til þess
að fara með sér á krána, í veitinga-
hús til að borða eða í dagsferðir út
í sveit. Alltaf hafði hún afþakkað boð
hans eða vísað hugmyndum hans á
bug.
Ast hans var því orðin að hatri og
það eina sem hann gat loks hugsað
um var að hefna sín. Edith Chalmers
sat ein að öllu og hann ætlaði að
svipta hana því. Hann ætlaði ekki
að ræna hana en hann ætlaði að
koma í veg fyrir að hún gæti notið
ávaxtanna af því sem hann nefndi
„starf sitt“. Hann yrði að ráða hana
af dögum. Það væri eina leiðin til
þess að koma fram hefndum.
Lou Nichols og Edith Chalmers.
Kastaði sér á hana
Lou Nichols ákvað að bíða góðs
tækifæris. Hann vissi að föstudaginn
22. ágúst myndi hópur kvenna leigja
einn af langferðabílum fyrirtækisins
til ferðar frá Wellingborough, þar
sem höfuðstöðvar þess voru, til
Kings Lynn í Norfolk. Lou bauðst
til þess að aka og Edith Chalmers tók
boði hans. Þar með hafði hann tekið
fyrsta skrefið að því marki sem hann
hafði sett sér.
Um klukkan sex á fimmtudags-
kvöldið, daginn áður en ferðin skyldi
farin, gekk Lou Nichols inn á skrif-
stofuna hjá Edith en hún sat þá þar
og var að telja peninga.
Hún leit upp en hélt áfram að telja
seðlana. Lou gekk þá aftur fyrir
skrifborðið sem hún sat við. Allt í
einu kastaði hann sér á hana. Hún
barðist fyrir lífinu en var ekki nógu
sterk til þess að ráða við hann. Eftir
nokkra stund höfnuðu þau á gólfinu
og svo settist hann ofan á hana á
meðan hann kyrkti hana. Á eftir tók
hann líkið og setti það í farangurs-
rými langferðabílsins sem nota átti
daginn eftir.
Ferðin
Hann gekk svo aftur inn á skrif-
stofuna og tók peningana sem Edith
hafði verið að telja. Hann stakk þeim
í vasann en gekk svo inn á næstu
krá, fékk sér nokkra drykki en fór
síðan heim.
Klukkan átta næsta morgun var
hann kominn til starfa. Allt var eins
og það átti að sér að vera. Hann
opnaði langferðabílinn, settist inn
og ók af stað. Klukkan hálfníu tók
hann farþegana og tuttugu mínútum
síðar yar hann 'agður af stað til
Kings Lynn. Lou Nichols var sá eini
sem vissi að með var farþegi sem
hvergi var á skrá.
Lou var löngu búinn að ákveða
hverju hann ætlaði að svara ef lög-
reglan stöðvaði bílinn og fyndi líkið
af Edith. Þá ætlaði hann að látast
vera mjög undrandi. Trúði hann því
að það myndi nægja til þess að lög-
reglan tryði því að hann gæti engar
skýringar gefið á örlögum hennar.
Hann gerði sér grein fyrir því að lög-
reglan myndi geta komist að því
hvenær Edith hefði dáið og þegar það _
kæmi í ljós að hún væri búin að vera
látin síðan kvöldið áður ætlaði hann
að augljóst virtist að morðinginn
hefði falið líkið í farangursgeymsl-
unni.
Stöðvaði lögreglan hann aftur á
móti ekki vissi hann að hann yrði
einn með bílinn í fimm tíma áður en
hann tæki konumar aftur til heim-
ferðar. Þann tíma myndi hann nota
til þess að fela líkið. Hann vissi að
hinir bílstjórarnir myndu sakna Ed-
ith áður en hann kæmi aftur til
Wellingborough en vonaðist samt til
að það kæmi í sinn hlut að tilkynna
lögreglunni hvarf hennar.
Ekki um neitt að velja
Eftir að hafa skilið við farþegana
á aðaltorginu í Kings Lynn ók Lou
Nichols út fyrir borgina. Hann hafði
haldið að það yrði auðvelt að finna
stað þar sem hann gæti falið líkið
en reyndist ekki hafa haft rétt fyrir
sér. Það er ekki mikið um hæðir og
^öll í Norfolk og þar er ekki mikið
um runna og enn færri sveitavegir
sem hann gat ekið um í leit sinni.
Brátt varð honum ljóst að hann
hafði ekki mikinn tíma lengur. Að-
eins var klukkustund þar til hann
átti að sækja konurnar og það tæki
hann að minnsta kosti tuttugu mín-
rekandans
Kona atvinnu-