Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Síða 20
66
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
Baby
Taeknileg ákvörðun eða
ákvörðun sem byggir á siðgæði?
Dómur er nú fallinn í undirrétti í
Bandaríkjunum í máli því sem venju-
lega hefur verið kennt við „Baby
M“, barnið sem 29 ára gömul hús-
móðir, Mary Beth Whitehead, gekk
með fyrir hjónin William og Eliza-
beth Stern gegn greiðslu. Var
dómurinn á þá leið að Sternhjónin
skyldu hafa allan umráðarétt yfir
barninu. Mary Beth Whitehead hef-
William Stern með Baby M á leið í réttarsalinn í New Jersey.
ur þó lýst því yfir að hún muni áfrýja
þessum dómi svo ekki er hægt að líta
svo á að málið hafi verið til lykta
leitt.
Óttaðist MS
Forsaga þessa máls, sem hefur snú-
ist svo mjög um meðgöngumóðurina,
eða leigumóðurina eins og hún hefur
oftast verið nefnd, Mary Beth White-
head, er sú að Sternhjónin langaði
til þess að eignast barn. Elizabeth
Stern er hins vegar haldin heila- og
mænusjúkdómi, MS, og var óttast
að meðgangan gæti valdið því að
sjúkdómurinn færðist í aukana.
Fyrir milligöngu lögfræðings, No-
els Keane, sem starfar í Dearborn, í
Michiganfylki, gerðu Sternhjónin
svo samning við Mary Beth White-
head um að ganga með barn eftir að
hafa gengist undir gervifrjóvgun með
sæði Williams Stern. Skyldi leigu-
móðirin fá tíu þúsund dali (um
400.000 krónur) fyrir.
Þegar barnið fæddist vildi Mary
Beth hins vegar ekki standa við
samninginn og neitaði bæði að af-
henda barnið og taka við greiðsl-
unni. í framhaldi af þvi hófust svo
málaferli.
Lögfræðingur sem á annríkt
Nýlega fór bandaríski rithöfundur-
inn Anne Taylor Fleming, en hún
býr í Los Angeles, til Dearborn í
Michigan til þess að kynna sér starf-
semi lögfræðingsins sem samninginn
gerði í þessu margumtalaða máli en
hann gerir fátt annað um þessar
mundir en að ganga frá samningum
hliðstæðum þeim sem Sternhjónin
gerðu við Mary Beth Whitehead.
Áður hafði Anne Taylor Fleming
kynnt sér málavöxtu og hún hefur
einnig fylgst með málaferlum í New
Jersey.
Anne Taylor segir meðal annars í
upphafi frásagnar sinnar: „Laugar-
daginn fyrir síðustu viku réttar-
haldanna í Baby M-málinu í New
Jersey fór ég á skrifstofu Noels Ke-
ane. Hjá honum var nóg að gera en
skrifstofur hans eru á tveimur hæð-
um í Dearborn í Michiganfylki.
Þarna voru margar konur sem voru
að leita eftir því að gera samning um
að ganga með börn fyrir aðra og
þarna voru líka mörg snyrtilega
klædd hjón frá ýmsum stöðum í
landinu, þar á meðal bæði New York
og Texas. Hverjum hjónum var feng-
ið herbergi en síðar voru leigumæð-
urnar tilvonandi leiddar fyrir hjónin
til þess að leggja fyrir þau einhvers
konar sönnun fyrir frjósemi sinni,
oft börn sín.
„Gerum þetta fyrir
peningana"
Eg virti þær fyrir mér þessar ungu
konur sem höfðu klæðst sínu besta
til að auka á samningslíkurnar. Þær
komu annaðhvort glaðar úr við-
tölunum eða niðurdregnar, allt eftir
því hvort samningar höfðu tekist eða
ekki. Með þeim sumum voru eigin-
menn þeirra eða vinir og reyndu að
lífga þær upp ef erfiðlega gekk fyrir
þær að ná samningum.
„Sjáið hana bara,“ sagði ungur
maður um vinkonu sína og barns-
móður sem var þarna með átta
mánaða gamalt barn þeirra. Þau
voru ekki gift. „Maginn á henni var
flatur daginn sem hún fór af spítalan-
um og það eru ekki einu sinni ör á
henni. Ég mun sjá um hana þegar
hún verður ólétt aftur en barnið
skiptir alls engu. Þetta er eins og að
horfa á bíl einhvers í níu mánuði.
Þetta eru líka viðskipti. Og þannig
lítum við á það. Við gerum þetta fyr-
ir peningana."
Tveggja barna móðir
Þótt sumum kvennanna gengi erf-
iðlega að gera samning þennan
morgun þá var þarna ein kona sem
virtist geta gert sér góðar vonir um
að ná samningi. Það var eins og all-
ir fyndu það á sér þegar hún kom.
Það var Lisa Spoor, tuttugu og fjög-
urra ára og tveggja barna móðir en
fráskilin. Hún er dóttir lögfræðings
og vinnur sem þjónustustúlka í veit-
ingahúsi og hefur aðeins átta þúsund
dali á ári ,(um 320.000 krónur). Hún
vill fá tíu þúsund dali fyrir að ganga
með barn svo hún geti sent börnin
sín tvö í einkaskóla.
Það leið ekki á löngu þar til hjón
frá New York, Gregory og Kathleen
Zaccaria, sem hafa um hundrað þús-
und dali í tekjur samanlagt á ári (um
4 milljónir króna) gerðu samning við
Lisu Spoor sem fær nú umrædda
upphæð og fimm þúsund dali (um
200.000 krónur) að auki til að standa
straum af tryggingakostnaði, lækn-
isskoðunum og tækifærisfötum.
Nokkur önnur samningsatriði
Samningurinn kveður meðal ann-
ars svo á að komi fram erfðagallar
hjá barninu teljist ábyrgðin föðurins.
Þá komust Lísa og Zaccariahjónin
að samkomulagi um að Lísa mætti
láta fara fram fóstureyðingu ef með-
ganga væri talin stofna lífi hennar í
hættu eða ljóst þætti að fóstrið væri
vanskapað.
„Ég lendi ekki í neinum vandræð-
um,“ sagði Lísa Spoor við mig. „Ég
geri þetta fyrst og fremst fyrir pen-
ingana en einnig til að hjálpa öðrum.
Ég verð bara ekki hjá barninu eftir
fæðinguna því það er þá sem bönd
móður og barns verða til og ég vil
ekki slík tengsli.“
„Ég mun aldrei reyna að
halda barninu,“
sögðu sumar af leigumæðrunum
tilvonandi þennan morgun í skrif-
stofu Noels Keane sem hafði á
síðasta ári sex hundruð þúsund dali
í tekjur (um 24 milljónir króna).