Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987. 69 Kvikmyndir Höfuðpaurinn í hljómsveitinni Talking Heads, David Byrne, hefur nú leikstýrt kvikmynd sem ber heitið True Stories eða Sannar sög- ur. Á undanfömum árum hefur verið að þróast ný listgrein sem er gerð tónlistarmyndbanda. Hún byggist auðvitað á gömlum merg því hér er verið að blanda saman tónlist og kvikmyndagerð. Hins vegar hef- ur tónlistin þróast í ýmsar áttir og hafa kvikmyndagerðarmenn áttað sig á þeim gífurlega skemmtilegu möguleikum sem myndbandatækn- in býður upp á. Auðvitað hefur kvikmyndagerð alltaf verið nátengd tónlist og fjöldi tónlistar-, söngva- og dansmynda verið gerður. Einnig hafa tónlistar- menn áttað sig á því að góðar tónleikamyndir geta aukið plötu- sölu og þeir þannig náð til mun stærri hóps í stað þess að ferðast vítt og breitt til tónleikahalds. Lík- legt væri að færri myndu eftir The Band ef ekki hefði komið til frábær mynd um lokatónleika hljómsveit- arinnar þegar hún ákvað að hætta. Á ég þar við myndina The Last Waltz. Hins vegar hafa margar tón- listarmyndir gleymst fljótt vegna þess hve erfitt er að gera þannig myndir sem standast vel tímans tönn. Ný viðhorf Það sérstæða við tónlistarmynd- Það er fjöllista- og hljómlistarmaðurinn David Byrne sem er á bak við Sannar sögur. Sannar sögur böndin er að þau byggjast á dálítið öðrum grunni. Hér á ég við mynd- bönd sem gerð eru til að kynna ákveðin lög eða plötur og náð hafa gífurlegum vinsældum eins og sést best á því hve mikinn tíma þessir dagskrárliðir taka hjá ríkissjón- varpinu og ekki síst Stöð 2. Gott myndband getur haldið uppi og jafnvel gert vinsælt ekkert sérstakt lag, þótt lagið eigi auðvitað að vera undirstaðan. En myndbandatækn- in gefur svo mikla möguleika að sum myndböndin eru listaverk frá kvikmyndafræðilegu sjónarmiði þannig að tilgangurinn fyrir gerð myndbandsins, þ.e. tónlistin, virð- ist stundum gleymast. Ákveðnar hljómsveitir hafa getið sér gott orð fyrir skemmtileg og frumleg tónlistarmyndbönd. Uppá- hald margra eru myndbönd hljóm- sveitarinnar Talking Heads sem hafa unnið til margra verðlauna. Höfuðpaurinn bak við þau er einn hljómsveitarmeðlimurinn, David Byrne. Hver man ekki eftir tónlist- arbandinu um Roads To Nowhere þar sem hinn hugmyndaauðugi Byrne fór á kostum þegar hann dró myndbandaformið út í ystu mörk þess sem hægt var? Sannar sögur Miðað við þessar forsendur var ekki ólíklegt að Byrne reyndi fyrir sér sem kvikmyndagerðarmaður. Hann fann að vísu smjörþefinn 1984 þegar hann ásamt Talking Heads fékk bandaríska leikstjór- ann Jonathan Demme til að hjálpa sér við að gera kvikmyndina Stop Making Sense sem var mynd um tónleika hljómsveitarinnar. Teknir voru upp þrennir tónleikar í des- ember 1983. Voru þeir haldnir í Hollywood með pomp og prakt og síðan voru þeir klipptir saman í eina mynd. Myndin hlaut mikið lof en því miður hefur hún enn sem komið er ekki fengið mikla dreif- ingu enda ekki dreift gegnum neina af þessum stóru dreifingaraðilum. íslenskir kvikmyndahúsaeigendur ættu nú að drífa í því að fá þessa mynd til sýningar áður en lengra líður frá frumsýningardegi hennar. Það var svo í fyrra að Byme leik- stýrði sinni fyrstu mynd í fullri lengd. Það er myndin True Stories en auk þess fór Byme með aðal- hlutverkið og svo sá Talking Heads um tónlistina. Myndinni hefur hvarvetna verið vel tekið og telja gagnrýnendur að, eins og í mynd- böndunum, fari Byme hér á kostum samtímis því að fylgja ótroðnum slóðum í uppbyggingu myndarinnar. Sögumaður Tme Stories er að flestu leyti óvanaleg mynd. Myndin fjallar um lítið þorp í Texas í Bandaríkjunum, Virgil að nafni, og segir frá bygg- ingarlist og fólkinu sem býr þar. Aðspurður hefur Byrne gefið í skyn að hann hafi verið mikið undir áhrifum af tveim myndum og þar með einnig stíl leikstjóra þeirra. Fyrri myndin er Amarcord sem sjálfur Fellini leikstýrði. Líkt og í True Stories fjallaði Fellini í mynd sinni um lítið, lokað samfélag sem samanstóð af sérstæðu fólki og lífi þess. Amarcord gerðist í strand- borginni Rimini á Ítalíu meðan Byrne lætur sína mynd gerast í Virgil í Texasfylki. True Stories á ef til vill meira sameiginlegt með Nashville og leikstjóra hennar, Robert Altman. Þeir Byme og Alt- man byggja báðir myndir sinar upp á sama máta, þ.e. mjög lauslegum efnisþræði og óformlegri kvik- myndatöku. Þetta gefur myndum þeirra meiri raunsæisblæ, eins og flestir samþykkja sem séð háfa myndir Altmans, þótt allir hafi ekki gaman af þeim. í True Stories er David Byme, íklæddur í kúrekastígvél að hætti Texasbúa, sögumaður. Myndin hefst á stuttu sögulegu ágripi frá Texas og er það skreytt ljósmynd- um og fréttamyndum frá fyrri tímum. Spannar þessi söguskoðun allt frá forsögulegum tímum til 1986 þegar Texasfylki átti 150 ára afmæli. Sérstæðar persónur Gegnum sögumanninn em sögu- persónur kynntar áhorfendum. Við ferðumst fótgangandi eða akandi milli staða þar sem við kynnumst „tölvumanninum" Louis Fyne sem er piparsveinn sem er að leita að kvonfangi, „lygakvendinu", „fal- legu konunni", rokksöngvaranum Ramon og svo „letihaugnum“ sem er kona sem liggur allan daginn fyrir í rúminu sínu og horfir á sjón- varp. Sögumaðurinn gefur okkur háðskar athugasemdir um flest þetta fólk auk almennra athuga- semda. Hann er þráðurinn sem heldur öllum þessum einingum saman svo þær myndi eina heild. Sú þjóðfélagsmynd sem hann dreg- ur upp er af fólki sem talar lítið eða ekki saman, þar sem ekkert gerist nema peningar séu í spilinu og síðast en ekki síst að hamingjan í lífinu sé að fá útrás í vöruhúsum og vörumörkuðum með því að kaupa alls kyns glingur sem enginn þarfnast. Sem sagt hálfinnantómt líf, a.m.k. séð frá menningarlegu sjónarmiði. Margir telja sig geta séð endur- speglun á nútíma bandarísku þjóðfélagi gegnum myndina. Það er ekki vafi á að sum brotin í þess- ari mynd eiga vel við lífið í mörgum smáum bæjum í Bandaríkjunum, ekki síst í Suðurríkjunum. Sérstak- lega eiga vel við þau atriði sem snúa að mikilvægi peninganna í öllu sem gerist í Bandaríkjunum. Hins vegar verður hver og einn að skynja myndina eins og hann sér hana og ekki síst eins og hann vill sjá hana. í eiginkonuleit Eins og áður kom fram ganga flestar söguhetjurnar í myndinni undir gælunöfnum. Fáar persónur fá éinhverja dýpt í umfjöllun Byrne. Það er þá helst hinn góð- hjartaði piparsveinn Louis Fyne sem er í eiginkonuleit. I leit sinni að hinni fullkomnu eiginkonu leit- ar hann uppi flestar ógiftar konur í Virgil. Það sem hann finnur eru konur sem hafa engan tilgang í líf- inu annan en að versla í vöruhús- um og eru í stöðugri leit- að eiginmanni sem er ríkur en gerir jafnframt engar kröfur til þeirra. I sinni örvæntingarfullu leit að ástúð og umhyggju ásamt félags- skap leitar Louis á náðir galdra- læknis frá Afríku. Gegnum hans vísindi kemst Louis í samband við taugaveiklaða konu sem fer aldrei fram úr rúminu sínu og lætur þjóna sér annaðhvort með þjónum eða Áhorfendur fylgjast með Byrne sem sögumannl sem labbar eða ekur um smábæinn Virgil i Texas. vélum. Hún gengur undir gælu- nafninu „letihaugurinn" en það verður einmitt sú sem Louis giftist í lokin. Einnig er athyglisvert hvernig Byrne dregur upp hinar neikvæðu myndir af bandarísku þjóðfélagi. Það endurspeglast töluvert í hlut- verki Larry Culver sem er nokkurs konar sjálfskipaður leiðtogi Virgil. Hann hefur ekki talað beint við konu sína í 35 ár en á sama tíma er hann tilbúinn að tala við ein- hvern ókunnugan mann, sem hann þekkir ekki neitt, um fjárfestingar, uppbyggingu byggðarlagsins o.s. frv. Nýttform Sumir gagnrýnendur hafa tekið svo sterkt til orða að Byme hafi með True Stories tekist að skapa nýtt kvikmyndaform. Hér hafi hann með hugmyndafræði sinni, sem endurspeglast í tónlistarmynd- böndunum, náð einu skrefi lengra. í raun hefur Byrne tekist að skekkja dálítið þann frásagnar- máta sem almenn kvikmyndagerð byggist á og þannig bryddað upp á nýju eða aðlöguðu myndformi. Byrne byggir einnig gífurlega mik- ið á myndrænni útfærslu þar sem hann blandar, ekki ólíkt og Godd- ard, saman ímynd, náttúrlegum hljóðum, samtölum og tónlist. Eða eins og Byrne hefur sagt: „Sögu- þráðurinn er ekki annað en bragð til að halda athygli þinni vakandi. Hann opnar dyr og hleypir þér þannig að sjálfri myndinni.“ Miðað við alla þá grósku, sem er í tónlistarmyndbandagerð, verður gaman að sjá hve mikil áhrif þessi gerð kvikmynda mun hafa á al- menna kvikmyndagerð í náinni framtíð. Segja má að leikstjórar eins og David Lynch og Adrian Lyne hafi hlotið ákveðna þjálfun í myndrænni uppbyggingu og túlk- un við gerð þess konar mynda sem endurspeglast f myndum þeirra eins og Blue Velvet svo og 914 Weeks. Einnig hefur kvikmynda- gerðarmaðurinn Sigurjón Sig- hvatsson unnið að gerð tónlistar- myndbanda erlendis og verður því gaman að fylgjast með myndum hans í framtíðinni. Hann hefur að vísu eingöngu framleitt myndina Einkarannsóknin, sem nú er sýnd í Laugarásbíói, en ætla má að hann haldi einnig áfram að leikstýra myndum. B.H.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.