Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Síða 24
 V élabrögð auglýsinganna í auglýsingaflæði ókkar tíðar fer mér eins og fleirum að ég loka fyr- ir, legg á flótta, reyni að taka ekki eftir, reyni að muna ekki ellegar vita hvað það er sem verið er að halda að mér. Og reyndar gerist ég stundum svo forstokkaður, þegar auglýsendur hafa gerst um of há- værir, að ég kappkosta að kaupa ekki varning sem er auglýstur um of. Kannski gildir í þessum efnum það sama og þegar menn gerast of háværir og belgingsmiklir í sam- kvæmi, að maður hættir að hlusta, vonar að þeir fari, eða reyni að eygja undankomuleið fyrir sjálfan sig. Auglýsingar hafa tekið breyting- um gegnum tíðina og aldrei verið eins fyrirferðarmiklar og kostnað- arsamar og nú. Áður þurfti ekki að kosta eins miklu til þegar þurfti að ná til fólks eða vekja á sér at- hygli. í árdaga nútíma auglýsinga- mennsku var eins og auglýsendur NB, J^twfoí ^íucfa @í unDcrfaareSlLíumog (SfóeamiKftt fya ofeí öjfíaníf/ ma (taff j 9U\a ^ifmcnu / \ XIX. fíapttufa. Fyrsta islenska auglysingin. nálguðust væntanlega viðskipta- vini (sem nú á dögum kallast í einu orði markaður) af meiri hæversku enda hefur trúlega ekki verið þörf fyrir alla þá útsjónarsemi og sniðugheit sem menn leitast nú við að tileinka sér. Auglýsingabókin eftir dr. Símon Jóh. Ágústsson fæst um þessar mundir á forlags- markaði hjá Vöku-Helgafelli. Og raunar er það sérkennileg reynsla að rölta þar um milli borða og fletta gömlum bókum, bæklingum og pés- um, útgefnum snemma á öldinni, hverfa aftur í tíðina, þegar fnaður hélt að umræðuefni manna hefði verið fyrra stríðið og gullgröftur- inn í Öskuhlíðinni, og finna þá vandað fræðirit um auglýsingar eftir virtan prófessor. Mér vitan- lega reyna auglýsingamenn okkar daga ekki að skilgreina fræði sín hver fyrir öðrum fræðilega - og flestar nýjungar innfluttar. Auglýsingabókin kom út árið 1947 en efnisatriði hennar byggjast á minnispunktum höfundar úr fyr- irlestraröð í sálarfræði sem hann flutti veturinn 1941. Fyrsta prentaða auglýsingin á íslensku mun lik- lega hafa komið út.árið 1694, segir í riti dr. Símonar Jóhanns. Það ár gaf Þórður Þorláksson, biskup í Skálholti, út „Það andlega sigur- verk“ og prentaði aftan á sigur- verkið auglýsingu þar sem getið er rímkveðskapar eftir hann. Nú orðið dugir víst skammt að laumast til að prenta upplýsingar innan á titilblað bóka í von um aukin viðskipti. Þess í stað gildir að láta „markaðinn" rekast á aug- lýsinguna á hverju götuhorni, daglega, jafnvel vikum saman. (lmprihiifetdir ÁriS 1000 siqldi Lellur Eiríksson n-.ið monnum sínum til Vinlands hins góða. helr voru vikum saman á leiðinni og komust þangað ellir mikla hrakninga. Þella var í þá daga. — Nú gelum vér boðið yður að lerðast til sama lapds, — on með nútima hraða ca þ*,indum — Skip vor oru óllum þeim kostum búin. sem nútima skip þurlu að hafa. Skipshölr.in'or cinvabllð. sem ui þaulre/nt hvað slómennsku, kurleisl og góða umgengni snerlir. Fcrrýmip «.u rúmgóð. lollgóft og vistleg SIDLINCIN ADEINS W DACA EIMSKIPAFEL ÍSLANDS H/r MILLI LÍNA Gunnar Gunnarsson Haraldur hafði sko vit á því að klæða karlmenn. Kaffibætirinn er víst ekki lengur brúkaður. Hur> wkkí «5 kViðot ix<ou\<x þvj hún vetl hvar 1vj;t á cð kaupcf t»JU til rr.cs*ar ins. Hún h*víur bcr;5 sctman vc-r .urncrr c-g v-sríiiö i búSur.utr. uc þess vegna ver/tlar hún í KIDDABÚÐ Húsmóðirin ei anægí þegar hún fær gott í matinn Enda segir dr. Símon: „Sálfræðing- urinn Munsterberg rannsakaði með tilraunum, hve áhrifamáttur auglýsinga ykist við endurtekning- una. Komst hann að eftirfarandi niðurstöðu. Er hér miðað við at- hyglisgildi heilsíðuauglýsingar, sem talið er 100: Athyglisgildi Vs síðu óendurtek- innar auglýsingar 100. Athyglisgildi Vi síðu tvítekinnar auglýsingar 90,9. Athyglisgildi !4 síðu fjórtekinnar auglýsingar 148,9. Athyglisgildi ’/ síðu átttekinnar auglýsingar 133,3. Athyglisgildi ’/ síðu tólftekinnar auglýsingar 142,4. Eftir þessu að dæma leiðir t.d. fjórtekin íjórðungssíðuauglýsing til talsvert betri árangurs en heil- síðuauglýsing sem kemur aðeins einu sinni.“ Auglýsingahönnuðir fá í bók dr. Símonar ýmsar ráð- leggingar til að hafa í huga við starf sitt: „Umgerðin eykur athygl- isgildi auglýsingarinnar. Er um smáauglýsingar að ræða, er nauð- synlegt að setja strik milli þeirra til að greina þær skýrt hverja frá annarri. Ef auglýsingarnar eru ekki greindar vel að á einhvern hátt, verður síðan öll eins konar hrærigrautur, sem erfitt er að botna í... Talið er að umgerð um smáauglýsingu tvöfaldi athyglis- gildi hennar. Ennfremur eru alls konar umgerðir, hringar, sporöskj- ur og örvar, oft höfð í auglýsingum til að beina athygli manna að mik- ilvægustu atriðum hennar... Línur, örvar og myndir eru ekki einungis notaðar í auglýsingum til að stöðva augun og athyglina held- ur og til að leiða augun og athyg- 'lina, benda þeim í ákveðna átt. Augun fylgja ósjálfrátt hverri línu, sem gefur hreyfingu í skyn. Við horfum ósjálfrátt þangað, sem við sjáum aðra horfa, hvort heldur sem um lifandi menn er að ræða eða myndir af þeim. Ef við sjáum ein- hvern mann á götunni góna upp í loftið, förum við oft að horfa í sömu átt til að vita, hvað hann sér. Hið sama gildir um myndina... “ Dr. Símon Jóhann hefur augljós- lega gefið auglýsingum og auglýs- ingafræðum síns tima góðan gaum - og gerir t.d. skarpan mun á rök- rænum auglýsingum og sefjandi - og bendir raunar á hversu þessu tvennu sé blandað saman og að Nú er hún Kiddabúð stekkur, eða hvað? Óneitanlega er þessi auglýsing frá Eimskip í þjóðlegum stíl - en spurning hvort úr þessu hafi orðið hópferð. fæstar auglýsingar séu aðeins rök- rænar. „Rökræn auglýsing er fræðandi," segir hann. „Hún talar til skynsem- innar: kostir vörunnar eru taldir upp, henni er lýst ýtarlega, skyn- samleg rök eru leidd að því, hvers vegna menn eiga að kaupa hana. Sefjandi auglýsing er aftur á móti með stuttum texta, en stórri mynd...“ Dr. Símon Jóhann hefur svo skreytt bók sína með nokkrum ís- lenskum auglýsingum - sem við leyfum að fljóta hér með og tökum ekkert gjald fyrir, enda fyrirtækin víst flest dottin upp fyrir. GG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.