Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Side 3
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987. 53 Það er sem sagt búið að skipa nefnd til að ráðleggja bændum að fara út í hrossabrestaframleiðslu í stað hefðbundinna búgreina og er ekkert nema gott um það að segja ekki síst þar sem nú er komið vor, meira að segja kosningavor, og vorboðarnir ljúfu eru farnir að gera heiðarlega tilraun til að skak- klappast um heimili fólks með æði misjöfnum árangri. Um daginn var einn af þeim að suða í eldhúsglugganum hjá okkur og einhverra hluta vegna þáði kon- an mín það ekki þegar sá sjö ára bauðst til að slíta af honum lapp- irnar og vængina og ekki heldur kostaboð táningsins um að kremja hann með þumalfmgrinum á sér heldur nauðaði hún í mér að bleyta eldhúsrúllublað og veiða vorboð- ann með því. - Leyfum greyinu að lifa, sagði ég og hélt áfram að borða bláberja- skyrið mitt og fannst ákaflega gott að geta sýnt veglyndi mitt og gott hjartalag í verki þótt konan mín kallaði þetta veglyndi mitt og hjartalag einfaldlega leti. Nú er það svo að það getur stund- um komið sér illa að vera mjög góðhjartaður og sannaðist það í þessu tilviki því að ég var ekki fyrr búinn að gefa vorboðanum líf en hann hóf sig til flugs, hnitaði nokkra hringi í kringum ljósið í loftinu og stakk sér að því búnu til sunds í bláberjaskyrið mitt eins og hann ætlaði að synda þar tvö yi\d ifíSGAZ rií rtÐ spyejA þ,Cr Þú ÆT//f ÞÐ 'Dí íifí&fOKGV STd&SU- 73>Ö;a'/V fl-D FÁ S/W/J irT ili hundruð metrana eða að minnsta kosti að æfa sig dálítið fyrir næstu keppni. En vegna þess hvað þessi vesal- ingur var slappur þrátt fyrir sólskin og bliðu sökk hann um- svifalaust til botns á diskinum og sást ekki meir. - A, ha, hann ætlar að synda þetta lítilræði í kafi, hugsaði ég og reyndi að veiða vesalinginn úr kaf- inu með skeiðinni en þegar það tókst ekki sá ég þann kost vænstan að hella skyrinu, mjólkinni og sundkappanum máttlausa í va- skinn. Auðvitað erþetta ein afleiðunum til að minnka í fljótheitum mjólk- urbirgðirnar í landinu þótt ég mæli ekki með henni og einnig ein af aðferðunum við að drepa flugur og mæli ég ekki með henni heldur og svo er þetta að sjálfsögðu afar gott fyrir þá sem eru í megrun því að þótt vorboðarnir ljúfu eigi allt gott skilið og maður fvllist bjart- sýni og gleði um leið og maður sér þá eru þeir satt að segja þannig í útliti að það hafa fáir lyst á þeim. Það er helst að börn éti þessi grey og ég hef víst sagt frá því áður að einn af frændum mínum var á sínum tíma afskaplega iðinn við að éta flugur af öllum stærðum og gerðum og þótt fólk trúi því kannski ekki varð honum alltaf miklu minna meint af því en flug- unum. Úrslit Og nú er heil vika síðan fjöl- miðlabyltingin kunngjörði okkur úrslit kosninganna sem kom ónefndum kandídat á þingi hlægi- Háaloft Benedikt Axelsson lega á óvart eins og hann orðaði það sjálfur í hita leiksins. Reyndar sagði konan mín mér að áðurnefndur nýliði hefði sagt að þingmennskan tilvonandi hefði komið honum þægilega á óvart en því neitaði ég að trúa að minnsta kosti að svo stöddu. Kosningum fvfgir alltaf viss eftir- sjá, maður sér eftir atkvæðinu sínu sem er þó svo sem ekkert annað en eitt X fyrir framan bókstaf en getur þó orðið að þingmanni, jafn- vel ráðherra ef exin eru nógu mörg. og allt í einu er kannski minn maður farinn að slá niður verð- bólgu og auka skuldirnar við útlönd og telja sjálfum sér og öðr- um trú um að við lifum aðallega á fiski sem við höfum raunar gert hér um bil frá því að Ingólfur Arnarson kom til landsins og settist að á Arnarhóli þar sem hann stendur enn og virðir fvrir sér mannlifið á Lækjartorgi og fvlgist með strætis- vagnaferðum. Svo setjast sigurvegarar kosning- anna niður og ræða um stjórnar- mvndanir og utanrikismál og kauphækkanir til þeirra lægst launuðu. Við hinir biðum hins vegar átekta og vonum það besta. Kveðja Ben. Ax. 41 Finnurðu átta breytingar? Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins. En á neðri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða þeir breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafhlega erfitt að finna þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa þetta trúum við því að allt komi það að lokum. Merkið með hring eða krossi þar sem breytingamar eru og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veitum þrenn verðlaun öll frá Sjónvarpsbúðinni Höfðatúni 2: Vasaút- varpstæki með segulbandi (verðmæti 3.000.- kr.), Vasadiskó (verðmæti 2.300.- kr.) og Plötustatíf (verðmæti 900.- kr.). I þriðja helgarblaði héðan í frá birtast nöfri hinna heppnu en ný þraut kemur í næsta helgarblaði. Góða skemmtun! Merkið umslagið: Átta breytingar - 41, c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík. Verðlaunahafar reyndust vera Isleifur Gissurarson, Fellsm- úla 16, 108 Reykjavík (ferðaútvarpstæki, kr. 2.860); Svava Markúsdóttir, Fomastekk 6, 109 Reykjavík (ferðaútvarp, kr. 1.595); Brynjar Magnússon, Espilundi 7,210 Garðabæ (heymar- tól, kr. 1.295). Vinningamir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.