Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987.
55
?JVið urðum ofan au
- segir Ingvi Hrafn Jónsson
„Ég er hamingjusamur með
þennan stóra hlut sem við áttum
af áhorfendum en ég átti líka von
á að við yrðum ofan á. Okkar stofn-
un er rótgróin og traust, starfs-
fólkið þrautreynt og gott og vel
vandað til dagskrár Kosningavö-
kunnar, en Stöð 2 er ung stöð sem
ekki hefur fest sig í sessi ennþá í
huga fólks. Stöð 2 sýndi reyndar
feikilega dirfsku og dugnað á kosn-
inganótt og gerði marga góða
hluti,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson,
fréttastjóri ríkissjónvarpsins.
Ingvi Hrafn sagði að útvarps-
stjóri hefði pantað skoðanakönn-
unina hjá Skáís fyrir rúmum
mánuði og þá verið beðið um að
kanna horfun frá klukkan 23-02.
„Okkur þótti ekki kurteisi að
vera að hringja heim til fólks fram
eftir allri nóttu.
Utsendingin hjá okkur gekk
snurðulaust og vel og nutum við
þar reynslu sem við fengum af leið-
togafundinum. Auðvitað kostaði
þessi dagskrárgerð peninga en við
fengum margar auglýsingar og mér
virðist við koma út með svolítinn
hagnað af Kosningavökunni.
Eg er ánægður og stoltur með
frammistöðu okkar fólks. Það
stóðu sig allir frábærlega vel í öll-
um deildum og beinu útsending-
arnar frá sex kjördæmum komu vel
út. Fyrir næstu kosningar verðum
við ör-ugglega einnig með beinar
útsendingar frá Austurlandi og
Vestfjörðum," sagði Ingvi Hrafn
Jónsson.
Eins og fram hefur komið var
könnun Skáís gerð fyrir ríkissjón-
varpið klukkan 23-02 á kosninga-
nótt. Á svæðinu þar sem báðar
stöðvar nást var samkvæmt þessari
könnun horfun frá fjórðungi til
helmingi meiri á ríkissjónvarpið en
á Stöð 2. Á þessu tímabili var RUV
ávallt með yfirhöndina, en mestur
var munurinn á tímabílinu
23-23.30. Þá horfðu 45,9% að-
spurðra á ríkissjónvarpið en 22,4%
á Stöð 2.
Hins vegar voru heldur fleiri að
horfa á Stöð 2 á tímabilinu 1.30-02
og munaði þar örfáum prósentu-
stigum. Þessi horfun er byggt á
svörum 25 áhorfenda og er sá fjöldi
ekki marktækur að mati Skáís.
Á landsbyggðinni fór horfun rík-
issjónvarpsins aldrei niður fyrir
63% meðan örfá prósent horfðu á
Stöð 2. Það skal tekið fram að út-
sendingar Stöðvar 2 náðust ekki
alls staðar þar sem sjónvarpsneysl-
an var könnuð.
-ATA
Fréttastjórarnir Ingvi Hrafn Jónsson og Páll Magnússon eru báðir ánægðir með frammistöðu sinna stöðva.
„Við höfðum vinninginn“
- segir Páll Magnússon
»Ég er himinlifandi með kosn-
ingavökuna okkar og þær viðtökur
sem hún fékk. Það er meiriháttar
afrek hjá sex mánaða gamalli stöð
að hljóta þann dóm hjá áhorfend-
um að hennar dagskrá hafi verið
betur heppnuð en dagskrá tuttugu
ára gamals risa í fyrsta stóra mál-
inu þar sem sjónvarpsstöðvarnar
tvær keppa beint,“ sagði Páll
Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2.
„Samkvæmt könnuninni sem
SKÁÍS gerði fyrir Stöð 2 kemur
fram að stöðvarnar tvær höfðu
mjög svipaðan áhorfendafjölda
þegar á heildina er litið en við
unnum á öllum öðrum sviðum.
Greinilegur meirihluti áhorfenda
taldi skemmtiatriði Stöðvar 2 betri
en Ríkissjónvarpsins og að kosn-
ingasjónvarp Stöðvar 2 hefði
almennt verið betra en Ríkissjón-
varpsins."
Páll sagðist ekki gefa mikið fyrir
könnunina sem SKÁÍS gerði fyrir
Ríkissjónvarpið. RÚV hefði haft
forskot fyrst framan af kvöldi en
upp úr hálftvö um nóttina var kom-
inn jöfnuður á og eftir það seig
Stöð 2 fram úr en þá brá svo við
að könnuninni var hætt.
„Það má líkja þessu við að þarna
hafi verið keppt í maraþonhlaupi.
í slíku hlaupi hefur lítið að segja
að mæla tímana eftir fyrstu hundr-
að metrana!"
Páll sagði að fjárhagsdæmi kosn-
ingasjónvarpsins hefði ekki verið
gert upp. Það barst mikið af aug-
lýsingum, „en ég efast um að
kosningasjónvarpið hafi skilað
hagnaði í beinhörðum peningum.
Hins vegar er ég sannfærður um
að dagskráin eykur trú á okkur og
álit og það á eftir að skila sér í
fleiri áskrifendum og auknum aug-
lýsingum. Þegar upp verður staðið
held ég að við græðum heilmikið á
kosningasjónvarpinu." sagði Páll
Magnússon.
I könnuninni. sem SKÁÍS gerði
fyrir Stöð 2. kemur fram að afger-
andi flestir fylgdust með kosninga-
sjónvarpinu á báðum stöðunum en
af þeim sem horfðu aðeins á aðra
stöðina horfðu heldur fleiri á RÚV.
31,4% áhorfenda þótti skemmt-
iatriði RÚV góð, en 73,7% fannst
skemmtiatriði Stöðvar 2 góð.
Heldur fleiri áhorfendum fannst
myndræn framsetning Stöðvar 2
betri en Ríkissjónvarpsins, en aftur
á móti fannst heldur fleirum kosn-
ingafréttir RÚV betri en Stöðvar 2.
Þegar áhorfendur voru spurðir
hvor dagskráin væri betri í heild-
ina séð vildu 45% telja að Stöð 2
hefði verið með betri dagskrá en
28,8% að RÚV hefði haft vinning-
AÐALFUNDUR
Málarafélags Reykjavíkur verður haldinn fimmtudag-
inn 7. maí 1987 að Lágmúla 5 kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Almenn aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Mætió vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Opifl 6 laugardögum
PANTANIR
SÍMI13010
. nncuiurwn i HHjurvuo i«
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
r
ATVINNA
Við bætum við fólki í vettlingaframleiðslu okkar í
Súðarvogi. Við borgum góð laun fyrir gott fólk. Uppl.
gefnar af verkstjóra í síma 82245 í dag og mánudag-
inn 4. maí milli kl. 14 og 16.
5*\n
oo)tf(
SEXTfUœSEXNORÐUR
SJlKUEflMSEMIIf Hí.
Skúlagata 51 • Reykjavík
BRAUTARHOLTI33 - SÍMI695660.
MMC Station árg. 1982, ekinn' Honda Accord EX árg. 1983, ekinn
78.000 km, grásans. Verð kr. 74.000 km, blásans. Verö kr.
580.000. 430.000.
MMC Galant GLX árg. 1985, Mazda 626 LX árg. 1984, ekinn
grænn, ekinn 43.000 km. Verð kr. 46.000 km, steingrár. Verð kr.
480.000. 400.000.
VW Golf CL árg. 1985, ekinn Audi 100 CC árg. 1983, brúnsans,
13.000 km, gullsans. Verð kr. ekinn 45.000 km. Verð kr. 640.000.
410.000.
GOTT ÚRVAL NÝLEGRA BÍLA Á
STAÐNUM, TÖLVUVÆDD ÞJÓNUSTA.
OPIÐ: Mánud.-föstud. kl. 9.00-18.30.
Laugard. kl. 10.00-17.00.