Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Síða 7
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987. 57 Eg er ekki metnaðargj örn fyrir sjálfa mig — segir Málmfríðnr Signrðardóttir, ný þingkona Kvennalistans Stríðsárin „Nei, ég hef aldrei verið flokks- bundin og var ekki, þannig séð, þátttakandi i stjórnmálum áður.“ Spennandi kosninganótt - Nú er að baki ein eftirminnilegasta kosninganótt í langan tíma. Var hún spennandi? „Já, hún var ægilega spennandi, ekki síst fyrir mig, því ég var ýmist úti eða inni. Við vorum þarna nokk- ur að skiptast á þingsætum. Ég vakti alla kosninganóttina. Það hef ég aldrei gert áður. Mig minnir að ég hafi sagt sem svo að það væri alveg nóg að vita úrslitin þegar maður vaknaði. Þetta var spennandi en ég er ekki metnaðargjörn fyrir sjálfa mig. Ég held að það sé andstætt mínu hugar- fari. En auðvitað vil ég veg Kvehna- listans sem mestan og hefði þótt það ansi súrt í broti hans vegna hefðum við misst manninn. Þá skipti minna máli hver okkar hefði náð kjöri. Það má einnig segja að það hefði verið áfall fyrir okkur í Norðurlands- kjördæmi eystra að fá ekki mann í annað skiptið sem við hjóðum fram. Það munaði ekki miklu síðast. Þá þótti okkur ágætt að það fór kona á þing í kjördæminu fyrir Bandalag jafnaðarmanna þótt það væri á tals- vert færri atkvæðum en við fengum." Dóttir skáld- bónda 1 Mývatnssveit Málmfríður er Mývetningur að ætt og uppruna. Hún er fædd á Arnar- vatni, dóttir Sigurðar Jónssonar skálds og bónda þar og Hólmfríðar konu hans. Sigurður er ef til vill þekktastur fyrir kvæðið sem hefst á orðunum Blessuð sértu sveitin mín... Heilar bækur hafa verið skrifaðar um menningarlíf í Mývatnssveit frá því á 19. öld og Málmfríður hlær við þegar hún er minnt á að hún er öðr- um þræði fulltrúi Mývetninganna á þingi. „Ég hef verið að hugsa um það undanfarið að trúlega er það sem ég er að gera núna náskylt því sem ég ólst upp við í Mývatnssveit. Þegar ég var að alast upp voru foreldrar mínir báðir á kafi í félagsmálum og móðir mín var mikil kvenréttinda- kona og mjög framarlega í félagsmál- um kvenna. Við sögðum stundum eftir á, systurnar, að við hefðum trú- lega fengið bólusetningu fyrir þeim málum í uppvextinum. En eitthvað hefur nú síast inn samt. Það er þó engan veginn hægt að segja að þótt ég tali í hálfkæringi um bólusetningu fyrir félagsmálum í uppvextinum að það hafi orðið þess valdandi að ég hafi ekki tekið þátt í þeim af fullum krafti fyrr en nú síð- ustu árin. Mínar aðstæður leyfðu það einfaldlega ekki. Ég á sjö börn og frá þeim verður ekki hlaupið. Ráðskona hjá Vegagerðinni Ég var búandi á Jaðri í Reykjadal um 30 ára skeið. Maðurinn minn, Haraldur Jónsson, var þaðan. Ég á þar heima enn en bý ekki lengur. Maðurinn minn missti heilsuna og við urðum að minnka við okkur bú- skap vegna þess. Til að bjarga fjárhagnum fór ég út í að gerast matráðskona hjá Vegagerðinni og var það í 17 ár á sumrin. Þetta var eftir að börnin voru orðin nokkuð stálpuð en framan af var ég með tvær yngstu stelpurnar með mér. Börnin eru nú komin víðs vegar um landið. Tvö þeirra eru í Grímsey, einn sonur á Isafirði og dóttir hér í Reykjavík þannig að þau hafa dreifst víða. Nú síðari árin hef ég verið aðstoð- armatráðskona við Kristnesspítal- ann og var það raunar á vetrum seinustu sumrin sem ég var hjá Vega- gerðinni." - Hvað finnst börnunum um stjórn- málavafstrið og þingmennskuna? „Þau líta öll svo á að ég eigi að gera það sem mig langar til.“ Náum ekki nógu vel til bændakvenna - Nú á Kvennalistinn fyrir norðan þegar nokkra sögu að baki. Er þessi hópur samstæður? „Á Akureyri, og einnig víðar á þétt- býlisstöðum, er mjög harður kjarni kvennalistakvenna. Hópurinn, sem myndaðist við framboðið til bæjar- stjómar á Akureyri árið 1978, stendur alltaf saman. Það er líka mjög sam- stilltur hópur á Húsavík. En þetta er víðlent kjördæmi og það er erfiðara að halda úti starfsemi út um byggðirnar. Einhvem veginn hefur það verið þannig að okkur hefur ekki gengið nógu vel að ná til bænda- kvenna og til þess eru trúlega margar ástæður. Auðvitað hafa þær áhuga á þessum málum en ég hygg að skýringin liggi að einhveiju leyti í því að t.d. í Þing- eyjarsýslum em mjög öflug og vel uppbyggð kvenfélög. Kvenfélögin hafa forðast pólitík eins og heitan eldinn alveg frá upphafi. Ég ætla ekki að dæma um hvort það er miður eða ekki en tilgangurinn með því að forðast pólitíkina er að koma í veg fyrir sundr- ungu innan þeirra. Auðvitað er það mjög mikilsvert að konur geti starfað saman á breiðum gmndvelli. Það er hins vegar spimning hvort félögin eigi samleið með Kvennalistanum. Það hefur aldrei reynt á það. Við höfúm ekki gengið eftir þeim. Við þrýstum ekki á konur að ganga til liðs við okkur. Það er af og frá. Konur innan kvenfélaganna em auðvitað að nokkrum hluta stuðn- ingsmenn okkar en kvenfélögin sem slík vilja ekki taka afstöðu í pólitík. Við virðum þau sjónarmið. Við finnum það samt að við höfum ekki náð til bændakvenna eins og við vildimi. Við náum vissulega til þeirra en samstaðan er ekki afgerandi. Á Vesturlandi veit ég að þetta er allt öðmvísi. Fyrir norðan er fylgið fyrst og fremst í þéttbýliskjörhunum. Þar eiga konur yfirleitt auðveldara með að koma saman og ræða sín mál. „Við viljum hafa ykkur“ Kona úti í sveit gefur ef til vill þá yfirlýsingu að hún sé kvennalista- kona og þá fara hinar að sækja að henni og spyrja: Af hverju? Til hvers? Hún er ef til vill ekki reiðubúin að svara þessu og gefur það þá ekki upp þótt hún hugsi það í hjarta sínu. Þarna er mikið starf óunnið hjá okk- ur. Mér finnst af fundum, sem við höf- um haldið úti um kjördæmið, að við höfum fengið afskaplega vinsamleg viðbrögð. Það hafa komið til okkar konur eftir þessa fundi og sagt: Ég veit ekki hvort ég kýs ykkur en ég vil hafa ykkur. Það breytir umræð- unni. Það kemur líka fram í starfinu í þéttbýlinu að aðstæður kvenna til að vinna að stjórnmálum eru óskap- lega misjafnar. Þótt kvennalistakon- ur á Akureyri séu vel samstæðar lendir starfið alltaf meira á vissum hópi heldur en öðrum. í hópnum á Akureyri vinna flestar konurnar fullt starf utan heimilis fyrir utan heimilishald. Síðan bætist þetta við.“ Svörum fyrir okkur af kurteisi - Nú hefur oft farið mikið orð af hörku í pólitíkinni en þið hafið helst ekki viljað heyja ykkar baráttu á þeim nótum, jafnvel þótt andstæð- ingarnir hafi deilt hart á ykkur. Hefur þetta ekki valdið erfiðleikum. t.d. á fundum? „Ég'er orðin það gömul að ég er mótuð af viðhorfum karla og það er töluvert átak að brjótast út úr því. Framan af þótti mér þetta dálítið erfitt. Ég vildi sko láta þá hafa það óþvegið. Núna finnst mér þetta eðli- legasti hlutur í heimi að svara ekki svona nema í fullri kurteisi ef okkur finnst mjög ómaklega að okkur veg- ið. En við vitum vel af vilja margra karlmanna til að reka pólitíkina eins og hanasiag. Mér fannst þetta koma vel í ljós í haust þegar við fórum í kynningarferð til Raufarhafnar og héldum þar fund. Við vorum þar í samkomuhúsinu. nokkuð margar konur. og sátum i hring við borð. Yfirleitt er mjög erfitt að fá konur til að tala úr pontu þannig að við höfum þennan hátt á. Þarna kemur inn karlmaður. út- gerðarmaður á staðnum. og sest hjá okkur. Við höldum áfram að tala og við vorum að tala um hápólitisk mál: launamál kvenna og hvernig hægt væri að koma þeim i betra horf. Hann situr þarna töluvert lengi en stendur síðan upp og segir með- nokkrum þjósti að hann hafi haldið að hann væri kominn hér á pólitísk- an fund með fjörugum umræðum en svo sé þetta bara kjaftavaðall í kell- ingum við borð. Hans viðhorf var það að af því að það var ekkert rifrildi og ekkert skammast þá var þetta engin pólitík. Við urðum mjög varar við það á framboðsfundunum núna. meira en síðast, því þá tók því víst ekki að veitast að okkur, að þetta var ofar- lega í mörgum að revna að pirra okkur og koma okkur út i rifrildi en við önsuðum þvi ekki. Ég held að við vinnum á þessari afstöðu." - Þú segist vera mótuð af karlaheim- inum. Hvernig finnur þú fvrir því? „Ég þarf dálítið að taka í mig sjálfa og athuga að hlutir, sem mér hafa alltaf fundist eðlilegir af því að ég hef vanist þeim, eru það ef til vill ekki. Ég hef þurft þessa undanfarin ár en ég held að ég sé að komast yfir þetta.“ Fjölfróð - Þú varðst fyrst þjóðkunn fyrir ein- dæmagóða frammistöðu í spurninga- keppni lengi vetrar í útvarpinu fyrir nokkrum árum ... „Já, það var nú aðallega fyndið. Ég hugsaði sem svo að ég gæti farið í þessa keppni einu sinni en svo ætl- aði ég aldrei að losna úr henni. Þetta var að mörgu leyti gaman en varð nokkuð þrevtandi. Ég er engin kappsmanneskja og gamanið var far- ið af undir það síðasta." - En þetta bendir til að þú hafir les- ið mikið. „Já, ég hef lesið mikið enda ólst ég upp á miklu bókaheimili. í Mý- vatnssveit var mjög gott lestrarfélag sem átti góðar bækur. Á sýslubóka- safni Þingeyinga á Húsavík var einnig mikið af góðum bókum. ís- lenskum og erlendum. Benedikt á Auðnum réð þar þegar ég man fyrst eftir mér. Hjá sýslubókasafninu var sú regla að lána íslenskar bækur ekki út fyr- ir þorpið því þær áttu lestrarfélögin í sveitunum að eiga. En erlendar bækur voru lánaðar og ég man að faðir minn fékk alltaf á haustin kassa af bókum frá Benedikt. Þessarbækur voru flestar á dönsku og einnig á öðrum Norðurlandamálum og þær las ég. Ef til vill hefur vdrið tilvilj- anakennt hvað hefur komið upp í hendurnar á mér af bókum á lífsleið- inni en það var ekki tilviljunum háð á þessum árum. Þetta voru allt vel valdar bækur. Þessar bækur. sem komu frá sýslu- bókasafninu. voru aðallega höfuð- skáldrit. Með fyrstu bókum. sem ég þrælaðist í gegnum á dönsku. var Forsyte-sagnabálkurinn. Ég hafði trúlega ekki mikið út úr því þá en ég fann að þetta voru góðar bók- menntir. Hrifin af Sókrates Ég man einnig eftir þykkum doð- ranti sem hét Store tænkere - um mikla hugsuði. Ég man mjög vel eft- ir þegar ég las kaflann um Sókrates því ég var svo hrifin af honum. Þarna voru líka bækur höfuðskálda Norð- urlandanna. Ég man lika eftir þegar við systurnar vorum að berjast í gegnum eina af bókum Brandesar. Ég hef haldið þvi við að lesa á er- lendum tungumálum og les síst minna á þeim en islensku." - En hvérnig var með skólagöngu? „Ég er ein af þeim sem muna far- skólann. I Mývatnssveit var alltaf haldið úti unglingaskóla sem var eins konar millistig milli barnaskóla og héraðsskóla og ég var í svoleiðis skóla. Síðan vissi ég eiginlega ekki hvað ég átti að gera og fór til Revkja- víkur. Hér fór ég í hálfsdagsvist og vann mér þannig fvrir 'húsnæði og fékk nokkurt kaup. Ég ætlaði að lesa undir einhvern skóla en var ekki viss um hvern. Svo vildi til að kon- an. sem ég vann hjá. var kennari við Kvennaskólann og það varð til þess að ég tók próf upp í þriðja bekk þar og lauk burtfararprófi eftir tvo vetur. Ég hafði mikið gagn af þessu námi enda var Kvennaskólinn og er sjálf- sagt enn afskaplega góður skóli. Ég á þeim skóla mikið að þakka. Ragn- heiður Jónsdóttir skólastjóri sagði að skólinn væri ekki bara til að mennta fólk heldur einnig til að manna það. Þetta var á stríðsárunum. Ég var hér meiripartinn úr þrem árum. Þá var ekkert eðlilegt ástand ríkjandi í bænum. Ég þekki ekki þessa gömlu Reykjavík sem fólk er að tala um. Á kvöldin var kvenmaður t.d. ekki einn á ferli. Það var óhugsandi. En þrátt fyrir ástandið í bænum {ireifst hér merkilegt menningarlíf. Ég man t.d. eftir málverkasýningum þessa vetur sem ég gleymi ekki. Þar á meðal voru tvær stórar Kjarvals- sýningar sem eru alveg ógleymanleg- ar." - En eftir námið í Kvennaskólanum - ætlaðir þú þá að halda áfram námi? ..Ég var mikið að hugsa um það. Mig langaði alltaf í læknanám en það var ekki um það að ræða. Ég vissi að ég fengi ekki styrk að heim- an. sem réð þar úrslitum. og á þessum árum var útilokað að kvenmaður ynni fyrir sínu námi. Það má því segja að ég hafi gefist upp fyrir þeim kostum sem voru í boði. Ég fór því aftur norður og sneri mér að þvi að gifta mig og eignast börn." Að axla ábyrgðina Það var þegar stríðinu lauk en nú er Málmfríður aftur komin suður fyrir heiðar til að taka þátt í viðræð- um um myndun ríkisstjórnar. hvernig svo sem þau mál ráðast. Hún ákvað að taka þátt í haráttu Kvenna- listans eftir nokkrar andvökunætur fyrir rúmum fjórum árum og var eft- ir það tilbúin að ..axla ábyrgðina". eins og það heitir á þessu vori. Reyndar er Málmfriður þeirrar skoð- unar að það hafi alltaf verið hlut- skipti kvenna og því ekkert nýtt fyrir bóndakonu úr Reykjadalnum. ..Ég hlustaði á það í útvarpinu í morgun að hlustendur voru að lýsa skoðunum sínum á hugsanlegri stjórnarmyndun." segir Málmfríður. ..Flestir hnýttu því aftan við mál sitt að það yrði að taka konurnar með. Samkvæmt því erum við eins konar aftaníhnýtingar. Við ætlum okkur ekki að vera það. Ég get sagt aðra sögu í sama dúr. Norður á Akureyri hitti ég íjóra menn á götu. Þeir sögðu: Nú verðið þið að fara að axla ábyrgð. Enginn þeirra minntist á að Borgaraflokkur- inn. sem er nýtt afl. þyrfti að axla ábyrgð. Það var eins og það væri sjálfsagt að hann gerði það en ekki sjálfgefið að konur gerðu það líka. Ég veit ekki hverjir axla ábvrgð ef ekki konur sem eru með uppeldi barna. einn mikilvægasta þátt þjóð- lífsins. á sinni könnu. Mér finnst ekkert undarlegt þótt einhverjar hrökkvi við þegar svona er tekið til orða. Við reiknum ekki með stökkbreytingum en það þarf að breyta hugarfarinu. Það er ekkert sem gerist á nokkrum dögum. Það getur vel verið að það þurfi nokkrar kynslóðir til þess. Við þessa stjórnarmyndun núna gerum við okkar kröfur sem við hvik- um ekki frá. Það er ekkert vist að flokkarnir vilji ganga að þessum kröfum og þá verður okkur nuddað upp úr því, ef við lendum utan stjórn- ar, að við viljum ekki taka ábyrgð. En málið er að þá erum við einmitt að taka á okkur ábyrgð. Við látum ekki okkar baráttumál fyrir það að fá að sitja í stjórn," sagði Málmfríður Sigurðardóttir. -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.