Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987. 63 ■ DV Sérsæð sakamál að fella sig við þá breytingu sem orð- ið hafði á manni hennar. Venjan var nú orðin sú að eftir kvöldmat fór Keith inn í herbergi, sem hann hafði fyrir sig, og sat þar framundir hátta- tíma. Það eina sem Rowena hafði fyrir stafni var að horfa á sjónvarp og spjalla við þá vini sem stöku sinn- um lögðu leið sína til þeirra. Breyt- ingin, sem varð á lífi hjónakornanna, varð mikil og brátt fannst Rowenu ■ hún ekki getað þolað nýju lifnaðar- hættina lengur. Hún vann sjálf úti og hafði því fé á milli handa. Henni fannst hún því geta gert það sem hana langaði til alveg eins og áður en hún gifti sig. Hún var þó ekki viss um hvernig Kei,th myndi taka því ef hún færi að fara ein út. Sér til mikillar undrunar komst hún þó að því að hann hafði ekkert við það að athuga. Ástæðan kann meðal annars að hafa verið sú að hún var því vön að hafa hljóm- flutningstækin í gangi þegar hún var ekki að horfa á sjónvarp og fannst manni hennar það trufla sig. Færi hún út yrði meira næði. Keith fær grunsemdir Þannig gekk þetta til um hríð. Rowena fór út að skemmta sér en Keith sat heima og las. Ein af vin- konum Rowenu var Jill Fraser og hringdi hún alltaf öðru hverju. Þar kom hins vegar að hún hætti að láta í sér heyra og það fannst Keith ein- kennilegt. Hann spurði konu sína nokkrum sinnum að því hvers vegna Jill væri hætt að hringja til hennar en fékk engin þau svör sem hann gat sætt sig við. Kvöld eitt eftir að Jill hafði borið á góma hringdi hún. Þetta fannst Keith í hæsta máta grunsamlegt því hann leit svo á að kona sín hefði fengið hana til að hringja til að breiða yfir eitthvað og það gæti vart annað verið en samband við ein- hvern annan mann. Keith ákvað því að komast til botns í þessu. Hann þekkti alla uppáhaldsstaði konu sinnar og reiknaði því með að það yrði létt verk að sjá með hverjum hún væri. Hugmyndin var þó ekki eins auð- veld í framkvæmd og hann hafði haldið. Sjö kvöld fór hann að leita hennar en árangurslaust. Þetta leiddi til þess að hann fór aftur að dragast aftur úr í náminu. Skap hans versnaði og að kvöldi 20. ágúst 1986 var hann kominn í afar slæmt skap. Um sexleytið um kvöldið höfðu hjón- in borðað kvöldverð og þá sagði Rowena að hún ætlaði út um átta- leytið til þess að heimsækja Jill Fraser. Keith lét eins og hann tæki ekki eftir því sem hún sagði. Rowena fór nú í bað en nokkrum mínútum síðar gekk Keith inn í svefnherbergið og settist á rúmið. Þar lá taska konu hans og af tilviljun datt hún á gólfið. Það sem í henni var féll úr henni. Keith tók veskið og byrjaði að setja í það munina. Tók hann þá eftir hvítum pappírspoka sem vakti forvitni hans. 1 honum var lítil gullkeðja. Keith mundi ekki eftir því að hann átti afmæli eftir hálfan mánuð. Þess vegna sannfærðist hann þegar í stað um að keðjan væri gjöf til elskhuga sem Rowena ætti. Keith missti nú stjórn á sér og gekk að baðherberg- inu. Hurðin var læst en hrökk upp eftir að hann hafði sparkað duglega í hana. Rowena vissi ekki hvað um var að vera en sá að maður hennar var óður af reiði er hann kom að baðkerinu. Hún fékk þó ekki ráðrúm til að spyrja neins því nokkrum augnablikum síðar hafði Keith ýtt henni niður í vatnið og þar hélt hann henni þar til hún hafði drukknað. Er klukkan varð átta og betur án þess að Rowena sýndi sig fór Jill Fraser að verða óróleg. Loks ákvað hún að fara heim til hennar. Keith var enn jafnmikið úr jafnvægi og fyrr og leit svo á að Jill væri á ein- hvern hátt samsek konu sinni og ætti því að deyja líka. Hann gaf Jill i fyrstu þá skýringu að gestir væru hjá þeim og væri það ástæðan til þess að Rowenu hefði seinkað. Hún skyldi þó bara koma inn fyrir og bíða. Jill gekk inn í stofuna en á meðan sótti Keith hamar. Þannig fannst honum að auðveldast myndi verða að ráða hana af dögum. Hann komst svo aftan að henni. Augnabliki síðar var Jill Fraser líka dáin. Keith dró líkið af henni inn í eld- húsið en fór síðan inn í baðherbergið til að ná í líkið af konu sinni. Hann þurrkaði það, klæddi og lagði það við hlið hins líksins. Næstu stundirn- ar sat hann hugsi. Hann ákvað þá hvar hann ætlaði að losa sig við lík- in en óttaðist mjög að upp kæmist um hann. Hann vissi að um þrjúleytið um nóttina yrðu flestir af diskótekgest- unum komnir heim. Þá ók hann bílnum að húsinu og setti bæði líkin í farangursrýmið. Skömmu síðar var hann kominn að skipaskurðinum sem hann ætlaði að kasta þeim í. Það gerði hann og fór svo heim. Daginn eftir tilkynnti hann um hvarf konu sinnar. Hann bjóst við að líkin fynd- ust og lögreglan myndi líta svo á að Rowena og Jill hefðu hitt morðingja sinn kvöldið áður. Atburðarásin varð þó ekki sú sem Keith hafði haldið. Um hálfníuleytið um morguninn hringdi hann til lög- reglunnar og tilkynnti hvarf konu sinnar. „Hún fór út í gærkvöldi og hefur ekki komið til baka,“ sagði hann. Um tíuleytið var svo tilkynnt um hvarf Jill Fraser. Lögreglunni fannst þettá einkenni- legt. Það var i sjálfu sér ekki óvenju- legt að ein kona hyrfi en óvenjulegt í hæsta máta að tvær konur hyrfu á þessum slóðum á einu og sama kvöld- inu. Ákveðið var því að hefja umfangsmikla rannsókn og hálfum öðrum sólarhring síðar vissi lögregl- an mun meira en Keith Cullen hefði getað grunað. Jill Fraser hafði í rauninni ætlað að hitta Rowenu á krá. Þar hafði einnig verið stúlka að nafni Emma Paige sem varð síðar eitt helsta vitni lögreglunnar í málinu. Hún skýrði svo frá að Jill hefði ákveðið að fara heim til Rowenu þar eð hún hefði - ekki komið á stefnumótið. Lögreglan taldi því líklegt að ráðist hefði verið á Jill á leiðinni þangað. Nágranni Rowenu gat hins vegar staðfest að Jill hefði komist á áfangastað. En hver gat þá skýringin á hvarfinu verið? Svarið fékkst ekki fyrr en lík- in fundust og þau höfðu verið skoðuð. Þá kom einnig í ljós að Keith Cullen hafði ekki sagt sannleikann. Rowena hafði ekki drukknað í skipa- skurðinum. Vatnið í lungum hennar var komið annars staðar frá. Húsrannsókn í íbúð Cullenhjón- anna sýndi svo ummerki sem urðu ásamt öðru til þess að Keith var sak- aður um að hafa myrt konu sína og vinkonu hennar. Hann reyndi ekki að mótmæla ej sönnunargögnin voru lögð fyrii hann. HUSEIGANDI GOÐUR! EOTIMETTTUI AVMULMNU? Eru eftirfarandi vandamól að angra þig? • Alkalí-skemmdir • Vaneinangrun • Frost-skemmdir • Sprunguviðgerðir • Lekirveggir ® Síendurtekin mólningarvinna Ef svo er, skaltu kynna þér kosti Sfo-utanhúss-klæðningarinnar: sto-klæðningin er samskeytalaus. sto-klæðningin er veðurþolin. SÍD-klæðningin er litekta og fæst í yfir 300 litum. StO-klæðningin er teygjanleg og viðnám gegn sprungumyndun er mjög gott. Sto-klæðningin leyfir öndun frá vegg. Sto-klæðningin gefur ótal möguleika í þykkt, áferð og mynstri. StO’klæðninguna er unnt að setja beint á veag, plasteinangrun eða steinull. Sto-klæðninguna er hægt að setja á nær hvaða bvggingu sem er, án tillits til aldurs eða lögunar. sfo-klæðningin endist - Vestur-þýsk gæðavara Opið laugardag og sunnudag RYDIr Bíldshöfða 18 — 112 Reykjavík Sími 67332C Kristján Sigmundsson landsliðsmarkvörður: Með þínum stuðningi náðum við 6. besta sæti í heimi á OL ’84 og HM ’86, Stefnum að verðlaunasæti á ólympíuleikunum í Seoul. Viö getum það meö ÞÍNUM STUÐNINGI. ÁFRAM ÍSLAND! Yerðmæti vinninga allt að 28 milljómr! Óvenjuhátt vinningshlutfall!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.