Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1987, Page 2
20
MÁNUDAGUR 1. JÚNl' 1987.
Iþróttir
KR-ingar vígðu
nýju stúkuna
með glæsibrag
&• í ,' &|1 <;«■"
.
, *, , -, ^æ&is&xx '; - , , ., ■ ■>-
• Nýja KR-stúkan var troðfull og skemmtu áhorfendur sér vel i bliðunni. Hér sést Willum Þórsson, alblóðugur í fram-
an, reyna að brjótast framhjá varnarmönnum FH. DV-mynd Brynjar Gauti
„Þetta var stórgóður leikur hjá
KR-Iiðinu og ég er virkilega stoltur
af strákunum. Eg vona bara að liðið
haldi áfram á sömu braut og spili eins
vel og í kvöld,“ sagði Gunnar Gísla-
son, leikmaður Moss og fyrrum
KR-ingur, eftir að vesturbæjarliðið
hafði sigrað FH, 8-0, á Kaplaskjóls-
velli á föstudagskvöld. KR-ingar höfðu
því sannarlega tilefni til að gleðjast á
föstudag því auk sigursins vígðu vest-
urbæingar nýja áhorfendastúku rétt
fyrir leikinn. FH-ingar færðu KR-
ingum blómakörfu og áritaðan bolta
í tilefni dagsins en KR-ingar þökkuðu
fyrir sig með því að vinna öruggan
Keflvíkingar fk|öl-
á Hlíðarenda
dregnir
fti
ALLT4F
EITTHVAÐ
NÝTTÍ
SLÍPIVÖRUM
FYRIR MÁLM
OGTRÉ
„Það var mjög gaman að vinna sigur
á Keflvíkingum í þessum leik og töl-
umar eru hreint ótrúlegar. Þessi sigur
þarf ekki endilega að gefa fyrirheit
um ákveðið framhald en eitthvað má
þó ráða í styrkleika Valsliðsins út frá
þessum úrslitum."
Þetta sagði Valur Valsson eftir að
Valsmenn höfðu ,,kjöldregið“ Keflvík-
inga á Hlíðarenda. Um hreina „flug-
eldasýningu" var að ræða af hálfu
heimamanna því Þorsteinn Bjamason
mátti sækja boltann sjö sinnum í
marknetið að baki sér.
Annað var hlutskipti Guðmundar
Hreiðarssonar, markvarðar Vals, sem
gerði slíkt aðeins einu sinni.
Valsmenn hófu þennan leik með
stórmerkjum, léku á innsoginu frá
upphafi og nánast til síðustu mínútu.
Eitthvað virtist þó markavélin hiksta
í upphafi en þegar hún hrökk í gang
afkastaði hún með ágætasta móti.
Allt virtist falla saman hjá Val í
þetta sinnið, vömin var heilsteypt að
vanda og miðjumennimir reyndust
jSÍM&p
bæði sprækir og skæðir. Tveir þeirra
skoruðu enda fjögur af sjö mörkum
liðsins í þetta sinnið. Þar áttu í hlut
þeir fóstbræðm- Valur Valsson og Sig-
ufyón Kristjánsson.
I sókninni vom þeir vinnusamir,
Ámundi og Jón Grétar, sem nú er að
springa út sem knai-tspymumaður.
Keflvíkingar hafa jafnt lið og sterkt.
1 þessari viðureign áttu þeir þó ekkert
svar við stórbrotnum leik Valsmanna.
Kafsigling af þessu taginu er sjaldséð
hér í fyrstu deildinni og gmnar mig
að hún segi meira um styrkleika Vals-
liðsins en veikleika Keflvíkinga.
Annars var gangur leiksins með
þessu lagi:
Jón Grétar tekur forystuna fyrir Val
með skoti frá markteig á 36. mínútu.
Undirbúningurinn var þeirra Hilmars
Sighvatssonar og Ámunda Sigmunds-
sonar.
Guðni Bergsson skorar með koll-
spymu á 38. mínútu eftir sendingu frá
Amunda, 2-0.
Sigurjón Kristjánsson skorar á 57.
mínútu með höfðinu eftir homspymu
frá Val Valssyni, 3-0.
Jón Grétar spinnur sig í gegnum
vöm ÍBK á 80. mínútu og sendir bolt-
ann fyrir markið. Boltinn berst síðan
af Sigurði Björgvinssyni í hans eigin
netmöskva, 4-0 - sjálfsmark.
Valur Valsson skorar á 82. mínútu
eftir homspymu og darraðardans inni
í vítateignum, 5-0.
Siguijón skorar með föstu skoti á
84. mínútu eftir að boltinn hafði borist
fyrir markið frá vinstri kanti, 6-0.
Keflvíkingar rétta sinn hlut á 87.
mínútu með marki Freys Bragasonar,
6-1.
Valur Valsson skorar síðasta mark
leiksins á 88. mínútu utan úr vítateig,
7-1.
Valsmenn áttu að auki mýgrút tæki-
færa og má geta sérstaklega slárskots
Magna Blöndal af um þijátíu metra
færi. Þá settu Keflvíkmgar einnig
boltann í slá Valsmarksins.
Gult spjald leit Sigurjón Sveinsson.
JÖG
SERVERSLUN MEÐ SLIPIVÖRUB
0GL0FTVERKFÆRI
%R0T
BlLDSHÖFÐA 18, SlMI 672240
sigur og senda FH-inga stigalausa
heim.
Leikurinn fór rólega af stað og jafn-
ræði var með liðunum framan af.
FH-ingar fengu fyrsta umtalsverða
marktækifærið um miðjan fyrri hálf-
leik þegar Ólafur Kristjánsson skall-
aði yfir Pál Ólafsson markvörð en
KR-ingar björguðu á marklínu. Pétur
Pétursson var stuttu seinna í góðu
marktækifæri hinum megin á vellin-
um en skalli hans fór rétt framhjá
marki FH. En undir lok hálfleiksins
urðu kaflaskipti í leiknum því KR-
ingar skoruðu tvívegis á aðeins
tveimur mínútum. KR-ingar náðu
góðri sókn á 36. mínútu þegar Willum
Þórsson gaf fallega sendingu fyrir
markið þar sem Guðmundui' Magnús-
son skaut boltanum viðstöðulaust af
markteig framhjá Halldóri, markverði
FH, og í bláhomið. Aðeins augnabliki
síðar var vöm FH aftur illa á verði
og KR-ingar refsuðu þeim fyrir vikið.
Pétur Pétursson lék inn í vítateig og
var skyndilega á auðum sjó en í stað
þess að skjóta renndi hann boltanum
til hliðar á Gunnar Skúlason sem af-
greiddi knöttinn auðveldlega í markið.
FH-ingar bitlausir
KR-ingar héldu undirtökunum í síð-
ari hálfleik og gáfu gestunum engin
tækifæri. FH-ingar reyndu að bæta
sóknina en allt kom fyrir ekki. Vöm
KR átti ekki í minnstu erfiðleikum
með bitlausa framlínu FH-liðsins og
undir lokin greiddu KR-ingar rothögg-
ið endanlega. Pétur sendi enn eina
snilldarsendinguna fram á Bjöm
Rafhsson sem var kominn einn inn
fyrir og renndi boltanum ffamhjá
Halldóri og í netið.
KR-ingar hafa því byrjað 1. deildina
með glæsibrag og hafa unnið tvo
fyrstu leiki sína. Liðið er mjög sam-
stillt og sterkt og verður að teljast
líklegt að þeir blandi sér í baráttuna
um meistaratitilinn í sumar. Erfitt er
að gera upp á milli leikmanna að þessu
sinni en þó má minnast sérstaklega á
Þorstein Guðjónsson sem átti hreint
frábæran leik og einnig Pétur Péturs-
son sem lék stórvel og mataði sam-
heija sína með snilldarsendingum.
FH-liðið var frekar dapurt í þessum
leik ef frá em taldar fyrstu 25 mínút-
umar. Liðið er ekki líklegt til stórræða
í sumar og ef leikmenn leggja sig ekki
betur ffarn er ekki ólíklegt að liðið
fari beint niður í 2. deild. Halldór
Halldórsson átti mjög góðan leik í
markinu og einnig átti Ólafur Kristj-
ánsson ágætan leik en aðrir vom
undir getu.
Dómari var Magnús Jónatansson og
stóð hann sig ágætlega. Áhorfendur
vom 1200. Gul spjöld: Ólafur Kristj-
ánsson og Ian Fleming, FH, og Willum
Þórsson og Pétur Pétursson, KR.-RR
• Valsmaðurinn Hilmar Sighvatsson fagnar marki Jóns Grétars. Keflvikingar fórna hins vegar höndum og hafa greini-
lega litið gaman af leiknum. Það er táknrænt fyrir viðureignina í gærkvöldi að varnarmaður þeirra Suðurnesjamanna
stendur á marklínunni og þrumar tuðrunni í eigin netmöskva. Þangað sótti boltinn nefnilega ákaft - sjö sinnum máttu
þeir Keflvikingar hirða hann dauðan úr marki sinu áður en yfir lauk. DV-mynd Gunnar S.
Brann og
Moss sigruðu
Gauti Grétaisson, DV, Noregf
Um helgina var leikið í norska
bikamum og sigmðu öll 1. deildar
liðin andstæðinga sína úr neðri
deildunum en ekki áreynslulaust.
Brann vann Fana, 1-0, á útivelli
og vom leikmenn Brann heppnir.
Fana er í 4. deild. „Það er alltaf
svona þegar er leikið við lið úr
neðri deildum - jiað gengur illa að
ná upp réttri stemmningu,“ sagði
Bjami Sigui-ðsson sem kemur til
íslands í dag.
Moss vann Kvik, 0-2, og jiurfti
framlengingu til að knýja ffam
úrslit. Gunnar Gislason lék ekki
með. -SMJ