Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1987, Síða 4
22
MÁNUDAGUR 1. JÚNÍ 1987.
Iþróttir
r-------------
Úrýmsum
áttum
Mike Tyson ýndi og
sannaði nú um helgina að hann
er fremstur allra hnefaleikakappa
í heiminum. Eru nú flestir sérfræð-
ingar á einu máli um að enginn
geti att kappi við þennan 20 ára
hnefaleikara, yngsta heimsmeist-
ara sögunnar í þungavigt. Hann
varði nú um helgina titil sinn gegn
landa sínum Finklon Tomas með
hann muni skerpa sóknarleik liðs-
ins sem hefur verið heldur dapur
að undanfömu.
122 sigur Ed Moses varð
að staðreynd á Ítalíu um helgina.
Þar keppti Moses sem gestur í
landskeppni ítala og Sovétmanna.
Moses, sem er nú 32 ára, hefur nú
ekki tapað keppni í næstum 10 ár
sem er ótrúlegt afrek. Hann hljóp
400 grindina á 48,90 sek. Sovét-
menn unnu keppnina með 117
stigum gegn 93.
Boston Celtics sýndu
vel hve þrautgóðir þeir em á
raunastund og sigrnðu Detroit
• Mike Tyson er óhemju höggþungur og hér sendir hann Pinklon Thom
as einn á'ann
Símamynd Reuter
því að senda Tomas í gólfið í 6.
lotu. Tyson hefúr nú unnið 27 af
30 sigi-um sínum á rothöggi. Það
þarf varla að taka það fram að enn
hefur hann ekki tapað leik. Eftir
leikinn vom Tomas og þjálfari
hans sammála um að Tyson væri
„óhugnanlegur“ andstæðingur og
enginn í lieiminum ætti möguleika
í hann núna.
Kevin Forstersigraði
í Stokkhólmsmaraþoninu nú um
helgina. Aðstæður vom erfiðar,
kalt í veðri og rok, enda var tími
Forsterslakur, 2:13,52. Goran Hog-
bei-g frá Svíþjóð var annar á
tímanum 2:13,59. Norska hlaupa-
konan Grete Waitz sigraði í
kvennaflokki á 2:24,00.
Kringlan flaug67,6o
metra hjá ólympíumeistaj'anum
Rolf Danneberg frá V-þýskalandi
nú um helgina. Er þetta besti ár-
angur sem hefúr náðst í kringlu-
kasti á árinu. Kastið góða kom á
móti í V-Berlín.
Norðmenn hafa nú gert
samning við Svíann Tord Grit um
að hann taki við norska landslið-
inu. Hann tekur við af Tor Oster
Fossen sem hefur verið með liðið
í 10 ár. Norðmenn binda miklar
vonir við Grit og vænta þess að
• Diego Maradona og brasiliskl
(nattspymumaðurinn Careca
eika saman með Napoliliðinu á
næsta ári. Um helgina mættust lið
æirra Sao Paulo og Napolí i vin-
áttuleik á ítaliu.
L.
Simamynd Reuter
Pistons, 117-114, í gær. Þar með
leika Celtics og LA Lakers enn
eitt skiptið til úrslita. Ef Celtics
tekst að sigra verður það í fyrsta
skipti í 18 ár sem liði tekst að sigra
tvö ár í röð. Larry Bird var að
venju betri en enginn og skoraði
37 stig fyrir Celtics. BakvÖrðurinn
Joe Dumars skoraði mest fyrir
Pistons eða 35 stig. Það verður
stutt hlé hjá leikmönnum Boston,
sem eru hrjáðir af meiðslum, því
þeir mæta Lakers í Forum höllinni
á morgun.
• Judi Brown-King stekkur hér
yfir hindrun en hún náði nú um
helgina besta tímanum i ár f 400
m hindrunarhlaupi kvenna. Hljóp
á 54,85 sek.
Símamynd Reuter
Don Pooley sigraði á
Memorial golfinótinu nú um helg-
ina og fékk að launum þrjár og
hálfa milljón króna. Lokastaðan
varð:
Don Pooley.................272
Curt Byrum.................275
Denis Watson...............276
Scott Hoch.................276
Chip Beck..................276
Bemard Langer sigr-
aði í sjöunda skipti á v-þýska
meistaramótinu nú um helgina,
hann lék á 281 höggum. Fyrir vik-
ið fékk hann 280.000 kr. sem þykir
ekki mikið í heimi íþróttanna.
-SMJj
• Hann er hálfóhugnanlegur á svipinn hann Gunnar Beinteinsson þegar hann skorar hér eitt af fimm mörkum sínum
gegn Norðmönnum. DV-mynd Gunnar S
Naumur sigur gegn
sterkum Norðmönnum
„Það var ferlegt að glopra þessu
niður í lokin og því förum við með
einungis tveggja marka forskot í
seinni leikinn sem er alls ekki nógu
gott. Vamarleikurinn hrundi alger-
lega hjá okkur á lokamínútunum og
þá fannst mér dómaramir ferlega lé-
legir og Norðmennirnir högnuðust
mikið á þeim,“ sagði Viggó Sigurðs-
son, þjálfari u 21 árs landsliðsins, eftir
landsleik íslendinga og Norðmanna í
Hafnarfirði í gær. Islendingar sigmðu,
21-19, en leikurinn var liður í heims-
meistarakeppninni og var þetta
reyndar fyrri leikur liðanna en sá síð-
ari fer fram í Noregi um næstu helgi.
íslendingar fara því með lítið vega-
nesti til Noregs og óvíst er hvort
tveggja marka forskot mun duga til
að komast í úrslitakeppnina í Júgó-
slavíu í haust.
Leikurinn í gær einkenndist af mik-
illi baráttu og hröðum leik beggja liða.
íslendingar komust fljótlega í 4-1 en
Norðmenn breyttu stöðunni í 5-4 sér
i hag um miðjan fyrri hálfleik. En þá
fóm íslensku leikmennimir virkiíega
í gang og skomðu sex mörk í röð og
á sama tíma lokaði Bergsveinn Berg-
sveinsson hreinlega markinu og varði
allt sem á það kom. Staðan 16-5 í
hálfleik íslendingum í vil og íslenska
liðið virtist ætla að kafsigla jafhaldra
sína frá Noregi. En það fór á annan
veg. Með mikilli baráttu tókst Norð-
mönnum að minnka muninn undir lok
leiksins og koma þannig í veg fyrir
stórtap. Lokatölumar 21-19 íslending-
um í vil en þrátt fyrir sigur vom
íslensku strákamir niðurlútir og sárir
í leikslok. Dönsku dómaramir komu
allmikið við sögu og dæmdu flest vafa-
atriði Norðmönnum í hag. Viggó
Sigurðsson sagði dómumnum til synd-
anna og fékk að sjá rauða spjaldið
fyrir vikið.
„Ég er nokkuð ánægður með leik
minna manna en þeir geta leikið betur
en þeir gerðu í kvöld. íslenska liðið
er sterkt og ég vissi að þeir yrðu erfið-
ir heim að sækja en við komum til
með að leika betur á heimavelli og
reynum að sigra með þriggja marka
mun,“ sagði Jon Reinertsen, þjálfari
norska liðsins, eftir leikinn.
Bergsveinn Bergsveinsson var að
öðrum ólöstuðum besti maður íslenska
liðsins í þessum leik og varði oft á tíð-
um ótrúlega vel, þar á meðal 3 víta-
köst. Gunnar Beinteinsson átti mjög
góðan leik að vanda og þeir Einar
Einarsson og Bjarki Sigurðsson stóðu
vel fyrir sínu. k,
I liði Norðmanna bar mest á Morten
Schönfeldt og Runi Erland sem báðir
em stórefnilegir leikmenn.
Mörk íslands: Einar Einarsson 6, Gurrn-
ar Beinteinsson 5, Héðinn Gilsson 3, Bjarki
Sigurðsson 3, Pétur Petersen, Árni Frið-
leifsson og Stefán Kristjánsson 1 mark
hver.
Mörk Noregs: Schönfeldt 4, Muffetansen
3, Gjekstad 3, Erland 2, Larsen 2, Mikaels-
en, Andreasen, Lundeberg og Rannekleiv
1 mark hver.
-RR
Fram tók Skagamenn í
kennslustund á Akranesi
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
íslandsmeistarar Fram tóku Skaga-
menn beinlínis í kennslustund í leik
liðanna á Akranesi í 1. deild á laugar-
dag. Sýndu þeir oft á tíðum stór-
skemmtilegan leik og sigruðu, 1-3. Sá
sigur var í minnsta lagi - svo miklir
vom yfirburðir Framliðsins gegn slök-
um Skagamönnum. Pétur Ormslev var
yfirburðamaður á vellinum og lék
heimamenn oft grátt. Hinir miklu yfir-
burðir Fram komu nokkuð á óvart því
Skagamenn höfðu sigrað þá í meist-
arakeppni KSÍ á Akranesi nokkrum
dögum áður. Á laugardag var jafhræði
með liðunum fyrstu 20 mínúturnar en
síðan réð Fram ferðinni. Leikur
Skagamanna í molum, leikmenn staðir
og ráðlausir.
Ákumesingar náðu forustu í leikn-
um á áttundu mín. Þá var dæmd
vítaspyma á Fram fyrir bakhrindingu
markvarðar. Heimir Guðmundsson
skoraði örugglega úr vítinu og áhorf-
endur, 916, fögnuðu en það var
raunverulega í eina skiptið, sem
ástæða var fyrir þá að fagna velgengni
heimamanna í leiknum. Fram jafnaði
í, 1-1, á 29. mín. Pétur Ormslev tók
aukaspymu mjög vel. Gaf beint á Við-
ar Þorkelsson, sem skallaði í mark,
algjörlega frír. Vöm Skagamanna illa
á verði.
Eftir markið sótti Fram mjög. Orm-
arr Örlygsson átti lúmskt skot, sem
Birkir Kristinsson varði vel áður en
Fram náði fomstu í leiknum á 38.
mín. Pétur Amþórsson sendi knöttinn
á Amljót Davíðsson, sem var frír við
mark IA og skoraði örugglega. í lok
hálfleiksins lék Pétur Ormslev sér að
vöm ÍA. Komst inn í vítateiginn en
spymti yfir.
I byrjun síðari hálfleiks fékk Pétur
Amþórsson gullin færi til að auka
forustu Fram. Átti fyrst skot í þverslá
en skaut síðan yfir í dauðafæri eftir
glæsilegan undirbúning Péturs
Ormslev. Um miðjan hálfleikinn
breytti Guðjón Þórðarson, þjálfari
Skagamanna, liði sínu. Haraldur Ing-
ólfsson og Guðmundur Matthíasson
(Hallgrímssonar) komu inn í stað
Þrándar Sigurðssonar og Valgeirs
Bárðarsonar og rétt á eftir fengu
Skagamenn sitt eina opna færi í leikn-
um. Aðalsteinn Víglundsson lék upp
að endamörkum og gaf fyrir á Harald
Ingólfsson. Hann skallaði en knöttur-
inn rétt fór yfir mark Fram.
En síðan náðu leikmenn Fram fyrri
yfirburðum. Janus Guðlaugsson lék
upp frá eiginn vallarhelmingi á hvem
mótherjann af öðrum og inn í vítateig.
Spymti á markið en Birkir varði
glæsilega. Þetta var á 63. mín. og á
þeirri næstu gulltryggði Fram sigur-
inn. Ormarr lék upp hægri kantinn.
Gaf fyrir og Pétur Ormslev skallaði
glæsilega í mark. Mjög fallegt mark.
Úndir lokin varði Birkir mjög vel eftir
að Ormarr haföi rennt sér í gegnum
vöm Skagamanna og á 84. mín. varð
Pétur Ormslev að yfirgefa völlinn eftir
ljótt brot Sveinbjöms Hákonarsonar.
Jón Oddsson kom í hans stað og lék
sinn fyrsta leik með Fram.
I heild snjall leikur íslandsmeistar-
anna. Liðsheildin sterk og Ormslev
átti stórleik. Þá léku þeir Pétur Am-
þórsson, Janus og Ormarr mjög vel.
Skagaliðið dapurt og enginn skar sig
úr. -hsím
Hugo Sanchez
með þrennu
Hugo Sanchez var svo sannar-
lega á skotskónum á Spáni nú um
helgina. Hann skoraði þrjú mörk
„hat-trick“ þegar Real Madrid
sigraði Sporting Gijon, 4-0. Þar
með hefur Sanchez gert 33 mörk í
vetur og er hann langmarkahæst-
ur.
Gary Lineker skoraði eina mark
Barcelona gegn Real Mallorca og
hangir Barcelona enn í voninni
um meistaratitilinn. Bareelona
varð þó fyrir miklu áfalli í upphafi
leiksins þegar Antoni Zubizareta,
markvörður liðsins, lenti í sam-
stuði og varð að flytja hann á
sjúkrahús. Þegar hann raknaði úr
rotinu mundi karl ekki eftir neinu
en var þó að fá minnið síðast þeg-
ar fréttist. Lineker hefur nú skorað
20 mörk. -SMJ