Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1987, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 1. JÚNÍ 1987.
27
DV
Nýliðarnir lögðu Víði
- Tryggvi Gunnarsson með sitt fýrsta 1. deildar mark
Garðsvöllur, 1. deild
Víðir-KA 0:1 (0:0)
Nýliðamir í 1. deildinni, KA, gerðu
sér lítið fyrir og sigruðu Víði syðra á
föstudagskvöldið með einu marki gegn
engu og kom það nokkuð á óvart þar
sem Víðir hafði áður gert jafntefli við
Val og þótti því sigurstranglegri. Víð-
ismenn voru sýnilega nokkuð í
skýjunum eftir þann leik og reiknuðu
áreiðanlega með því að hala inn þrjú
stig gegn norðanmönnum en sú von
brást með öllu þegar Tryggvi, skorar-
inn mikli, sendi knöttinn í Víðismark-
ið á 75. mín. eftir homspymu. Var
þetta mjög knálega að verki verið því
Tryggvi var aðþrengdur af vamar-
mönnum en lét það ekki á sig fá -
„sneiddi" knöttinn faglega með kollin-
um yfir Gísla Heiðarsson, markvörð
Víðis.
„Sá vinnur sem skorar mark,“ varð
einum áhorfenda að orði í byijun
seinni hálfleiks og hann reyndist sann-
spár. Leikurinn var þófkenndur,
vamarlínumar þéttar þótt Víðismenn
lékju reyndar öllu framar en gegn
Val. KA-ingar vom þó öllu líflegri.
Stundum brá fyrir stuttu spili hjá þeim
en yfirleitt var knattspyman þetta
kvöldið heldur stórkarlaleg, háar
spymur og mikið um návígi, þó án
hörku. Leikurinn var því ekki mikið
fyrir taugamar og augað þar til KA
hafði skorað. Þá tóku menn við sér
og mikið fjör færðist í leikinn. Knött-
urinn komst allajafna inn í vítateig
og stundum máttu markverðimir taka
á öllu sínu til að afstýra marki.
Eftir þessum leik að dæma geta
KA-ingar alveg eins tekið þátt í
baráttunni um efstu sætin en Víðis-
menn mega gæta sín á botninum.
Sóknarleikurinn er bitlaus, þar þarf
að finna lausn á - liðið verður að skora
mörk, öðmvísi vinnast leikir ekki.
Jón Sveinsson var einna sprækastur
KA-inga ásamt Tryggva Gunnarssyni.
Og ekki er annað að sjá en að nýju
mennimir falli mjög vel inn í KA-liðið
sem orkaði mjög heilsteypt í leiknum.
í Víðisliðinu mæddi mest á Daniel
Einarssyni sem var að vanda eins og
klettur í vöminni og sá hluti liðsins
var nokkuð góður.
Dómari var Þorvarður Björnsson og
dæmdi vel. Áhorfendur vom 550.
-EMM
íþróttir
• Nafn Bylgjunnar mun prýða bringuna á 1. deildar liði ÍBK i sumar. Um
það var formlega samið á Glóðinni á föstudaginn. Viðstaddir voru þeir Jón
Ólafsson og Einar Sigurðsson frá Bylgjunni sem kynnti samninginn en orð
fyrir Keflvikingum hafði Kristján Ingi Helgason sem var mjög ánægður með
samninginn. Knattspyrnuráðiö fær auk búninganna einhverja fjárupphæö.
Einar Sigurðsson, útvarpsstjóri Bylgjunnar, sagði það ætlunina að lýsa
leikjum ÍBK, fylgjast með liðinu í sumar. Á myndinni eru f.v. Jón Ólafsson,
Einar Sigurðsson, Gunnar Oddsson, Þorsteinn Bjarnason, Freyr Sverrisson
og Kristján Ingi Helgason. Þeir sögðu að enda þótt Bylgjan væri á búningn-
um þá þýddi það ekki að leikur liðsins myndi ganga í bylgjum heldur væri
stefnt á fyrsta sætið, sigra jafnt og þétt. -emm
EFÞÚ
VILTVERA
VISS...
Þú hefur tvær megin ástæður
til þess að koma við í Lands-
bankanum áður en þú ferð til
útlanda.
Sú fyrri er
Gjaldeyrisþjónusta
Landsbankans
Á yfir 40 stöðum á landinu
afgreiðum við gjaldmiðla allra
helstu viðskiptalanda okkar í
seðlum, ferðatékkum og ávís-
unum. Auk algengustu teg-
unda, s.s. dollara, punda og
marka, selur Landsbankinn
t.d. hollenskarflórínur, portú-
galska escudos, ítalskar lírur
og svissneska franka í ferða-
tékkum.
Með því að kaupa gjaldeyri
þess lands sem ferðast á til,
sparast óþarfa kostnaður og
fyrirhöfn.
Síðari ástæðan fyrirheimsókn
íLandsbankann er
Ferðatrygging Sjóvá:
Mörg óhöpp geta hent á
ferðalögum, ferðairygging
Sjóvá ersvarið. Hún innifelur:
- Ferðaslysatryggingu,
- Ferðasjúkratryggingu,
- Ferðarofstryggingu,
- Farangurstryggingu,
- SOS-neyðarþjónustu.
Ferðatrygging Sjóvá er því
SJÓVÁ
TRYGGT ER VEL TRYGGT
einföld og örugg.
Gjaldeyrir úr Landsbankanum
- ferðatrygging frá Sjóvá, -
eftir það getur þú verið viss.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna