Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1987, Síða 10
28
MÁNUDAGUR 1. JÚNÍ 1987.
BILAKLÆÐNINGAR
.FRAMLEIDVM BILSTOLA I
Bronco. Blazer.ToyotaHllu*. Scout.
Wagoneer WíIIJ’s. oft. TEGVNDIR
JEPPA og Fóíksbíta.
.EIGVM FYRIBLIGGJANDI
STÓLA Í LADA SPOR T.
BOLSTRUN BJARNA
HÓLABERG 78 REYKJAVIK
078020
STIMPLAGERÐIN
flytur alla starfsemi sína þann 1. júni að
Suðurlandsbraut 10.
Næg bílastæði.
Nýtt símanúmer er
68-70-22.
Umboðsmenn okkar í miðbænum eru:
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18,
sími 13135,
og Prentstofan, Hverfisgötu 32, sími 23304.
Stimplagerðin,
Suðurlandsbraut 10, sími 68-70-22.
Kentruck
Sænsku gæðalyfti- og pall-
ettuvagnarnir til afgreiðslu
af lager.
LYFTIGETA
9 P 1000 kg,
1 I LYFTIHÆÐ UPP
/—m\ I í 235 cm.
Sn I FRÁ KR.
flft I 55.000,-
LYFTIGETA
2000 kg.
VERÐ
FRÁ KR.
32.250,-
ARVIK
Ármúla 1.
Sími 687222
..... ..................... ..................
Iþróttir dv
• Lancia-bill Finnans Markku Alen hendist hér áfram en Finninn er nú með forystu í Akrópólisrallinu
Símamynd Reuter
Lancia með foiystu
Heimsmeistarakeppnin í rallakstri
heldur áfram. í gær hófst keppnin í
Grikklandi, Acropolisrallið. Þetta er í
eina skiptið á árinu sem bifreiðum er
leyft að aka upp á sjálfa Acropolis-hæð
sem hýsir margar merkustu fomminj-
ar heimsins. Keppnin er 1911 km löng,
þar af eru 586 km eknir á sérleiðum.
Samkvæmt síðustu fréttum höfðu
Lancia-bílamir tekið forustu strax frá
upphafi með Finnana Markku Alen
fyrstan og Juha Kankkunen fast á
• Síðasti smókurinn. Þetta er síðasta
myndin sem tekin var a( belgiska
áhaettuökuþórnum Alaian Vinox.
Hann gerði misheppnaða tilraun til
að aka í gegnum 4 strætisvagna er
stóðu samsiða. Toppurinn rifnaði af
bil hans og hann lét lifið samstundis.
Símamynd Reuter
Grand Prix
í Mónakó
Mónakó-kappakstrinumr lauk í gær.
Keppni þessi er fyrir sérkennilega
kappakstursbraut en þeir í Mónakó
em ekkert að hika við hlutina. Á
hverju ári er girtur af kappaksturs-
hringur í miðborginni, síðan er hald-
inn þama einn erfiðasti kappakstur
heimsmeistarakeppninnar. Sigurveg-
ari að þessu sinni varð Brasilíumaður-
inn Ayrton Senna á Honda bifreið, í
öðm sæti varð Nelson Piquet skammt
á undan Micael Alboretto. Hvenær
fáum við að sjá löglegan kappakstur
á götum höfuðborgarinnar?
- í Akrópolisrallinu
hæla hans. Nái Lancia að vinna sigur framleiðendur að koma í veg fyrir að
í þessari keppni verður erfitt fyrir aðra hann hljóti heimsmeistaratitilinn í ár.
Okkar menn
í bílasportínu:
,Bragi Guðmundsson og
Asgeir Sigurðsson skrifa
um rall og fleira.
Rallkross
í Ólafsvík
Daginn eftir að Hótel Nes-rallinu
lauk í Ólafsvík um síðustu helgi var
haldin rallkross-keppni á braut þeirra
Ólsara. Sjö bílar hófu keppni en aðeins
þremur tókst að ljúka henni. íslands-
meistarinn Jón Hólm mætti á bjöll-
unni sinni sem hefur dugað honum
vel fram að þessu nema í Ólafsvík. í
tvö ár hefur bíllinn bilað í sömu beygj-
unni á sama stað. Jón Hólm hefiir
ekki enn fundið lausn á þessu vanda-
máli en síðustu fréttir herma að hann
hyggist leita til miðils og fá hann til
að reka illa anda úr ökutækinu.
Það var hins vegar Birgir Viðar
Halldórsson sem kom, sá og sigraði í
rall-krossinu og sýndi yfirburði ijór-
hjóladrifsins á lausum jarðvegi. Ók
hann Mazda 323 4wd turbo bílnum til
sigurs á erfiðri brautinni. Keppni þessi
var liður í íslandsmeistarakeppni í
rall-kross en sökum þess hve keppend-
ur voru fáir gefur hún aðeins hálfa
stigagjöf. Engu að síður er Birgir nú
með forustu i keppninni en þetta var
hans fyrsti sigur í ökukeppni þar sem
hann heldur sjálfur um stýrið. Birgir
hefúr í mörg ár keppt sem aðstoðar-
ökumaður margra fremstu ökumanna
landsins. Að auki hefur hann keppt
sem aðstoðarökumaður margra fræk-
inna erlendra ökumanna víða um
heim.
-ÁS/BG
• Birgir Viðar Halldórsson sýndi yfirburði fjórhjóladrifsins í rall-krossinu í
Ólafsvik og vann sinn fyrsta sigur sem ökumaður. ökutækið er ekki af verri
endanum, Mazda 323 4wd turbo.