Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1987, Side 9
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987.
9
dv____________________________________Ferðamál
Skiptimynt fyrir
Unicef
New York og gengur vel. Fá þá far-
þegar sérstök umslög sem þeir setja
í skiptimyntina og afhendir áhöfn
áður en vélin er yfirgefin. Ef að söfii-
unin gefst vel þá er ætlunin að hefja
hana í vélum fleiri flugfélaga, en
Unicef vonast til að takist að safha
140 þúsund dölum á ári með söfnun-
inni í vélum VAA.
Féð rennur allt til hjálpar nauð-
stöddum bömum um allan heim.
-PLP
Aliir sem terðast hafa milh landa
hafa veitt því athygli að skiptimynt
hleðst upp í hverju landi og er hún
óseljanleg í því næsta. Þetta gerir
það að verkum að ef farið er milli
nokkurra landa þá em menn oft
komnir með vænan sjóð sem þeir
vita svq ekkert hvað þeir eiga við
að gera.
Nú hefur Unicef hafið söfnun í til-
raunaskyni á þessu fé. Fénu er
safnað um borð í vélum Virgin At-
lantic airways milli Lundúna og
Fríhofnin
Evrópsk neytendasamtök hafe
gert könnun á því í hvaða frfhöfn í
Evrópu er hagstæðast að versla. í
ljós kom að bestu kaupin er hægt
að gera í fríhöfhinni f Aþenu. Einnig
kom í ljós að óhagstæðast var að
versla í Frankfurt, Bmssel og Heat-
hrow í London.
Það skiptist dálítið á milli staða
hvað er hagkvæmt að kaupa á hverj-
um stað. í Amsterdam er hægt að
gera hagkvæmust innkaup í raksp- ■
íra í Evrópu, i Dublin má fá bestu
íþróttaskóna. Hins vegar kostar
flaska af gini í fnhöfhinni í Frank-
furt jafhmikið og sams konar
drykkur kostar á fullu verði í Madrid
eða Mílanó.
Ekkí er getið um Flugstöð Leife
Eiríkssonar í þessari könnun, en
bæði áfengi og tóbak hefur jafiian
verið á hagstæðu verði i íslenskri
fríhöfh.
-A.BJ.
Ratvís leggur áherslu á ferðir til Bandaríkjanna og sérfargjöld innan þeirra. Ferðaskrifstofan er til húsa að Hamra-
borg 1-3.
Fyrsta ferðaskr'rfstofan
í Kópavogi
Ratvís nefriist ný ferðaskrifetofa sem
tekin er til starfa. Hún er í Kópavogi
og er fyrsta ferðaskrifstofan þar í bæ.
Ratvís verður með alhliða ferðaþjón-
ustu fyrir einstaklinga og hópa og
einnig þá sem ferðast í viðskiptaerind-
um.
Sérstök áhersla verður lögð á ferðir
til Bandaríkjanna og sérfargjöld innan
þeirra. Boðið er upp á flug með Delta
flugfélaginu til fjögurra borga fyrir
12.320 kr. Einnig er boðið upp á ódýr-
ar pakkaferðir til Flórída.
Ratvís selur sólarlandaferðir með
erlendum ferðaskrifstofum frá Lon-
don, Amsterdam, Kaupmannahöfh og
Lúxemborg en verður ekki með leigu-
flug til sólarlanda. Hins vegar em á
döfinni skipulagðar hópferðir til fiar-
lægra landa eins og Indlands, Indónes-
íu, ísrael og víðar og verður íslenskur
fararstjóri með í förinni.
íslenskur fararstjóri, Rannveig Ein-
arsdóttir, er á vegum skrifstofunnar í
London og aðstoðar farþega. I framtíð-
inni verður boðið upp á slíka þjónustu
víðar, eins og t.d. í Róm.
Ratvís er tengt bókunarkerfi Flug-
leiða og getur útvegað alla hugsanlega
þjónustu fyrir íslendinga erlendis.
Ratvís er hlutafélag og er stjómar-
formaður Stefnir Helgason. Þrír
starfsmenn em á skrifstofunni, Fann-
ey Gísladóttir, Hekla Ólafedóttir, sem
áður störfuðu hjá Ferðamiðstöðinni,
ogBrynjaStefriisdóttir. -A.BJ.
Innanlandsferðir
Flug: Innanlandsflug er frá Tún-
isborg með Tunisair til Monastir,
Jerba og Tozeur.
Lest: Túnisisku ríkisjárnbraut-
irnar hafa um 2.000 kílómetra
leiðakerfi. Mikilvægustu leiðimar
eru hringir sem liggja um Túnis -
Hammamet - Nabeul - Sousse -
Sfax - Gabes - Kalaa og Djerda -
Mateur - Bizerta - Beja - Tabarka
- Ghardimau. Þessar lestir bjóða
upp á fyrsta og annað farrými.
Ferðaskrifstofan Transtour hefur
skipulagt hringferð í lest, Lezard
rouge, en lestin samanstendur af
gömlum glæsivögnum.
Áætlunarbifreiðir: Frá Túnisborg
liggja einar 125 sérleiðir áætlunar-
bifreiða í allar áttir. Rúturnar eru
venjulega gamlar, óþægilegar og
án allrar loftkælingar en bjóða
manni upp á þann kost að ferðast
með innfæddum í stað þess að ferð-
ast með öðrum túristum. Miðana
fær maður hjá viðkomandi öku-
manni eða í miðasölu umferðar-
miðstöðvar sem staðsett er í
Karþagóstræti í Túnisborg.
Lengsta leiðin liggur frá Túnisborg
til Jerba, einir 612 kílómetrar.
Ferðin tekur tíu tíma og kostar
4.200 dínara.
Á hinn bóginn bjóða flest hótelin
upp á skipulagðar hópferðir. Þær
eru mismunandi eftir því hvar hót-
elið er staðsett, en venjulega er
boðið upp á einn áfangastað fyrir
hvem dag vikunnar.
Enn einn valkosturinn er það sem
hér á landi kallast limósínuferðir.
Þetta eru leigubílar sem taka fjóra
til sex farþega og er áfangastaður-
inn skráður á framrúðuna. Þetta
er einn ódýrasti ferðamátinn og
þannig er auðvelt að komast í sam-
band við innfædda, en þeir ferðast
mikið á þennan hátt.
Gisting
Ferðammannaþjónusta er í mik-
illi uppbyggingu í Túnis og eru
hótelin í strandhéruðunum eins og
best gerist í Evrópu. Ferðamálaráð
ríkisins hefur strangt eftirlit með
hótelum og gefur þeim stjörnur, frá
einni til fimm. Hins vegar eru
ferðaskrifstofur með nær allt hótel-
pláss upppantað yfir aðalferða-
mannatímann, þannig að ef menn
vilja komast hjá því að lenda á
götunni er óvitlaust að panta fyrir-
fram. Einnig hafa gamlar hallir og
kastalar verið innréttaðir sem hót-
el á vegum ferðamálaráðs.
-PLP
Tilboö óskast í neðanskráðar bifreiðir sem hafa
skemmst í umferðaróhöppum.
MMCCalant 1987
Ford Escord CL1600 1987
Honda Accord 1987
Citroen Axel 1986
Ford Escort 1300 st. 1985
MMCTredia 1600GLS 1983
Daihatsu Charade 1984
Daihatsu Charade 1982
Volvo 244 DL 1982
HondaAccord 1982
Mazda 620 2000 1982
Ford Escort XR3 1982
Citroen GSA 1980
ToyotaTercel 1980
Audi 100 GLdísil 1979
Datsun 280C dísil 1976
Ford Fairmont 1978
Ford Bronco 1966
M.M.C. Lancer 1980
Mazda 323 1980
Bifreiðirnar verða til sýnis mánudaginn 10. ágúst í
Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 10-15. Tilboðum óskast
skilað fyrir kl. 16.00 sama dag til bifreiðadeildarTrygg-
ingar h/f., Laugavegi 178, Reykjavík, sími 621110.
'ipnma <q m wfim/
Laugavegi 178, sími 621110.
PHILIPS
PHILIPS - 007 - GETRAUN
Við bjóðum áhorfendur James Bond í getraun - leikurinn er í því
fólginn að í Bíóhöllinni liggja frammi miðar þar sem þú segir til
um fjölda PHILIPS tækja í myndinni. - Glæsileg verðlaun:
Geislaspilari frá PHILIPS að verðmæti kr. 28.000.-