Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1987, Page 16
16
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987.
Pétur við eitt verka sinna. „Auðvitað finnst manni alltaf leiðinlegt að sjá á eftir verkum sínum en þannig má ekki hugsa.“
Pétur Bjarnason hlaut nýlega viðurkenningu og verðlaun frá einum frægasta listaskóla í Evrópu
,, Hugmy ndirnar
koma á kránni66
Pétur Bjarnason listamaður hefur
verið við nám í einum besta lista-
skóla í Evrópu sem jafnframt er með
þeim elstu, stofnsettur á sautjándu
öld. Það er Hoger Institute í Ant-
werpen. Fyrir stuttu hlaut Pétur
viðurkenningarskjal og peninga-
verðlaun fró skólanum, eins og fram
hefur komið í frétt DV. Aðeins tólf
nemendur fá slíka viðurkenningu og
var Pétur eini útlendingurinn. Það
vakti athygli fréttaritara DV í Belg-
íu, Kristjáns Bernburg, er hann sá
nafn Péturs í belgískum blöðum yfir
þá nemendur sem höfðu hlotið viður-
kenningu. Kristján heimsótti Pétur
fyrir stuttu og ræddi við hann fyrir
helgarblað DV.
Viðtal og myndir:
Kristján Bemburg
Pétur býr í Durne, einni af út-
borgum Antwerpen, ásamt Qölskyldu
sinni, Sigríði Jóhannesdóttur, og
sonunum tveimur, Jóni Bjarna og
Skúla Steinari. Þau búa í rólegu
hverfi. Má sjá ljóshærðan, skeggjað-
an íslendinginn taka sporvagninn á
hverjum morgni og halda í átt til
skólans sem er í gamla hluta Ant-
werpen.
. Fyrir stuttu var haldin yfirlitssýn-
ing á verkum nemenda skólans.
Fréttaritari DV leitaði Pétur uppi í
skólanum og vatt sér að einum kenn-
ara hans. Er hann heyrði að spurt
var um Pétur benti hann í átt að
vinnustofu hans og lét þau orð falla
Fiskurinn með krossmarkið sem einn dómnefndarmanna telur ákaflega
frumlegt verk.