Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1987, Blaðsíða 36
1
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
LAUGARDAGUR 8. AGUST 1987.
r
5
i
i
i
i
i
í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Þjóðviljinn:
RHsQóraskipti í undirtxíningi
Hörkuvaldabarátta innan Alþýðubandalagsins
Samkvæmt heimildum, sem DV
telur öruggar, eru nú uppi hugmynd-
ir um að láta Össur Skarphéðinsson,
ritstjóra Þjóðviljans, fara en ráða í
hans stað þægari mann sem stjóm-
málaritstjóra blaðsins. Þetta er liður
í heirri miklu valdabaráttu sem á sér
stað innan Alþýðubandalagsins fyrir
lándsfundinn í haust. Sá armur Al-
þýðubandalagsins sem kallaður er
flokkseigendafélag hefur meirihluta
í útgáfustjóm Þjóðviljans og er stirt
á milli þess meirihluta og Össurar
Skarphéðinssonar og heftir verið
lengi.
Ragnar Ámason hagfræðingur er
formaður útgáfustjómar Þjóðvilj-
ans. Hann var spurður hvort það
væri rétt að skipta ætti um stjóm-
málaritstjóra á Þjóðviljanum?
„Það hefur engin samþykkt verið
gerð um það innan stjómar útgáfufé-
lagsins, en ég get ekki svarað fyrir
það sem menn kunna að vera að
ræða um á fúndum úti í bæ,“ sagði
Ragnar. Hann sagði að fyrir dyrum
stæðu miklar breytingar á rekstri
og skipulagi blaðsins og ætti hann
von á því að þær mætti greina á
blaðinu fyrir áramót.
Nokkrir alþýðubandalagsmenn
sem DV hefúr rætt við halda því fram
að flokkseigendafélagið muni láta til
skarar skríða gegn Össuri fyrir
landsfund Alþýðubandalagsins í
haust. Aðrir halda að beðið verði
fram yfir landsfundinn með það,
flokkseigendafélagið vilji sjá hvem-
ig formannskjörinu reiði af áður en
það lætur til skarar skríða.
Mjög mikil átök og liðsafhaður á
sér nú stað hjá stríðandi fylkingum
innan Alþýðubandalagsins, enda
styttist óðum í landsfundinn, sem
verður haldinn annaðhvort seint í
október eða í byrjun nóvember.
-S.dór
7
Hafnir:
á bifhjóli
gegnum hurð
.Maður ók á óskráðu bifhjóli í
gegnum hurð á fiskverkunarstöðinni
Höfnum í Höfnum í gær. Maðurinn
og hjólið fóru í gegnum hurðina og
lentu þar á steingólfi. Maðurinn
hlaut opið beinbrot á vinstri hand-
legg auk annarra smærri áverka.
Var hann fluttur á slysadeild Borg-
arspítaians.
Það var um klukkan hálfþrjú í gær
sem lögreglunni í Keflavík var til-
kynnt um slvsið. Ekki var ljóst seint
í gær hvernig líðan mannsins var.
-sme
Týndist á
vatnaháti
Slvsavamadeildin í Þorlákshöfn
fann mann. heilan á húfi. sem sakn-
að var. bogar hann fór út á litlum
vatnabáti. Slvsavamadeildini barst
beiðni um að leita mannsins og brá
hún skjótt við. Fannst báturinn, með
manninum innanborðs. á reki um
sex sjómílur undan Þorlákshöfh.
Um borð í bátnum vom engin
. björgunartæki. í þessu tilfelli var
hvorki blys né flugeldur, ekki einu
sinni vasaljós, eins og Hannes Haf-
stein hjá Slysavamafélaginu orðaði
það.
-sme
JVC
LOKI
Ætla flokkseigendur
virkilega að senda
Össur í fiskeldið?
■M |
Dómnum um full-
virðisrétt áfvýjað
„Við erum búnir að áfrýja dómnum
og væntum þess að fjallað verði um
málið út frá eignarréttarákvæðum.
Hver sé með eignaraðild eftir að afurð-
ir hafa verið lagðar inn til sölumeð-
ferðar hjá söluaðila. Það er
nauðsynlegt vegna sjónarmiða um
gildi samningsins og áhrif á heildaraf-
urðarmagn," sagði Sveinbjöm Dagf-
innsson, ráðuneytisstjóri í landbúnað-
arráðuneytinu.
Fyrir nokkm féll dómur í fógetarétti
Vestur-Húnavatnssýslu þar sem Jóni
Jónssyni bónda á Skarfshóli var heim-
ilað að taka út það magn sem hann
hafði lagt inn umfram fullvirðisrétt
sinn. Hafa menn velt því fyrir sér hvort
hugsanlega séu brostnar forsendur
fyrir búvömsamningnum verði þessi
dómur staðfestur.
Sveinbjöm vildi ekki tjá sig um það
hvort hann teldi forsendur búvöm-
samningsins brostnar ef dómurinn
yrði staðfestur. Hins vegar þyrftu
bændasamtökin þá að athuga sín mál
ef þau gætu ekki samið fyrir sína
menn.
-JFJ
Héraðsskolinn í Reykjanesi:
Framtíð skólastjór-
ans ræðst á næstunni
Það er fágætt að folöld séu alin upp sem heimalningar. Eitt slíkt er þó að
Vifilsdal í Dalasýslu. Sigríður Sigurðardóttir, húsfreyjan á bænum, tók ung-
viðið í fóstur þegar það missti móður sina og lætur sig ekki muna um að
fóðra það á þriggja tima fresti. Folaldið er orðið mjög mannelskt og hálf-
tima fyrir gjöf er það farið að rjátla við hurðarhúninn á bænum. Vill það
þá fara að fá kúamjólkursopann sinn og engar refjar. DV-mynd GVA
„Þetta em erfið mál sem verður að
kynna sér til hlítar og vinna með uns
lausn fæst. Við erum nú að skoða þau
gögn sem hafa borist og klára að taka
þau saman,“ sagði Sólrún Jensdóttir,
skrifstofustjóri í menntamálaráðu-
neytinu.
Menntamálaráðuneytið hefur nú til
athugunar kröíu skólanefhdar Hér-
aðsskólans í Reykjanesi um að skóla-
stjórinn, Skarphéðinn Ólafeson, verði
látinn víkja. Klögumálin hafa gengið
á víxl en endanlegt úrskurðarvald er
í höndum ráðherra.
Sólrún sagði að ráðuneytið hefði
fengið í hendur greinargerð frá skóla-
stjóra, skólanefnd og fyrrverandi
kfennurum. Einnig hefði fólk úr hérað-
inu hringt, svo og hefði verið haft
samband við fræðslustjóra. „Ráðherra
hefur fengið hluta af gögnunum og
fylgst með málinu eins og tök hafa
verið á. Afganginn fær hann í næstu
viku og fljótlega eftir það má vænta
ákvörðunar,“ sagði Sólrún
Sólrún sagði að leysa þyrfti þetta
mál sem fyrst.
-JFJ
9-
m
11
(W
Horfur á sunnudag og mánudag:
Áframhaldandi blíða
Það verður fremur hæg norðaustlæg átt á landinu. Skýjað við norðausturströndina en léttskýjað víðast hvar annars staðar. Hiti verður á bilinu 15 til 20
stig sunnanlands og við Faxaflóa en 9 til 14 stig norðanlands og austan. Sannkallað grillveður fyrir Sunnlendinga.
;í
i
i
i
i
i
i
Í
i