Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1987, Side 3
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987.
3
Ahöfn
Venusar á
námskeiði
Þessa dagana stendur yfir í Fisk-
vinnsluskólanum í Hafnarfirði
námskeið fyrir áhöfii frystitogarans
Venusar HF 519. Þetta er í fyrsta sinn
sem fiskvinnslunámskeið sem þetta er
haldið fyrir togaraáhöfn í Fiskvinnslu-
skólanum. Öll áhöfii togarans, og
afleysingamenn, nema vélstjóramir,
taka þátt í námskeiðinu, alls 27 menn.
„Það barst ósk' til okkar frá Krist-
jáni Loftssyni, útgerðarmanni skips-
ins, um að námskeiðið yrði haldið og
að sjálísögðu var brugðist vel við því.
Hér er fyrst og fremst um bóklegt nám
að ræða, enda hafa þessir menn verið
í rúmt ár við fiskvinnslu um borð eftir
að togaranum var breytt i frystitog-
ara,“ sagði Lárus Bjömsson kennari
sem hefiir umsjón með námskeiðinu.
Lárus sagði að áhöfnum annarra
frystitogara stæðu slík námskeið einn-
ig til boða en miðað er við að
námskeiðin standi í eina viku.
-S.dór
Fréttir
Oryggi þyrluflugsins
verður ekki skert
segir Þorsteinn Geirsson
„Þessi deila um launagreiðslur byggja öryggisþjónustuna upp. Þeir
hefur enn ekki komið inn á borð til hafa því verið á 24ra tíma bakvökt-
okkar en ég mun kynna mér málið um alia daga ársins án þess að þiggja
sem allra fyrst. Það öryggi, sem sjó- nokkur laun fyrir það. Nú segja þeir
menn og raunar landsmenn allir að komið sé að ríkinu að greiða þeim
haía af þyrlu Landhelgisgæslunnar, laun fyrir ómakið.
verður ekki skertsagði Þorsteinn „Það er rétt að öll vinnutilhögun
Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- heíur verið í höndum flugmanna.
málaráðuneytisins, f samtali við DV, Við lftum svo á að það gangi ekki
vegna þeirrar deilu sem nú er uppi og að nú sé tími til kominn að Land-
milli flugmanna þyrlu Ijandhelgis- helgisgæslan sjálf skipuleggi þessa
gæslunnar og fjármálaráðuneytis* vinnu. Það hefur verið ákveðið að
ins. komið verði á ákveðnu vaktaskipu-
Forsaga þessa máls er sú að síðast- lagi sem reynt verður til áramóta,
hðin þrjú ár hafa þyrluflugmenn síðan verður séð til hvemig það
Landhelgisgæslunnar verið að gengur upp. Við vonum að dæmið
gangi upp,“ sagði Ásmundur Vil- Hrafii Siguriiansson, settur yfir-
hjálmsson hjá launamáladeild maður hjá Landhelgisgæslunni,
fiármálaráðuneytisins í samtali við sagðist óttast að öryggið minnkaði
DV um þetta mál. á kostnað þessarar launadeilu. Hann
Ásmundur var spurður hvaða aug- sagðist aftur á móti líta svo á að
um launadeildin hti það ef öiyggi þessari deilu væri hvergi nærrri lok-
og þjónusta þyrlunnar skertist við ið.
þetta. Bogi Agnarsson, talsmaður þyrlu-
„Ég trúi því ekki að öryggið skerð- flugmanna, sagði í samtali við DV
ist við þetta, enda er i einu og öllu að frá og með 15. september myndu
farið að gildandi samningum flug- þyrluflugmenn hætta 24ra tíma bak-
manna í tillögum okkar að vaktatil- vöktum og um ieið myndi það öryggi,
högun. Við erum aðeins að fara eftir sem þyrlan veitir, skerðast að mun.
ýtrustu skipulagshagræðingu hjá -S.dór
Landhelgisgæslunni,“ sagði Ás-
mundur.
Hófí og draumaíbúðin:
Dýrtað láta
drauminn rætast
„Það er rétt að mér var boðið að
hafa bíl af gerðinni Porsche 928s4
við draumaíbúð Hófíar. Bíllinn átti
að vera nýr og varð að vera rauður
á litinn. Þetta var of skammur tími
til að útvega bíl frá versksmiðjunum
en ég gat útvegað bíl af gerðinni 911
túrbó. Það virtist vera mikill áhugi
á að fá þann bíl. Aðstandendur sýn-
ingarinnar hættu síðan að tala við
mig svo ekkert varð úr. Mig grunar
að annað bílaumboð hafi yfirboðið
mig, samt átti ég að greiða 150 þús-
und krónur fyrir að hafa bílinn við
draumaíbúðina," sagði Jón Hall-
dórsson hjá Porsche-umboðinu.
I stað Porsche-bílsins er við
draumaíbúðina bíll af gerðinni Toy-
ota Celica. Bogi Pálsson hjá Toyota
sagðist ekki vilja gefa upp hve mikið
þeir hefðu greitt fyrir að sýna bílinn
við draumaíbúðina. Þegar hann var
spurður hvort þeir hefðu greitt 150
þúsund krónur sagði hann: „Það var
miklu, miklu minna.“
Guðmundur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar, sagði
að verð til sýnenda í draumaíbúðinni
væri fundið út með verði á hvem
fermetra sem sýnendur síðan skipta
á milli sín. Hann sagði að erfitt væri
að hafa skiptin nákvæm en sam-
komulag hefði náðst og hann vissi
ekki annað en allir sýnendur væm
ánægðir.
-sme
Jóni Halldórssyni fannst dýrt að sýna í draumaíbúð Hófiar.
DV-mynd GVA
Jón Sigurðsson:
Sleppir ekki
Þjóðhags-
stofnun
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
hefur fengið ótímasett leyfi frá störfiun
sem forstjóri Þjóðhagsstofriunar. Jón
sagði í samtali við DV í gær að þetta
væri algeng aðferð. Þegar embættis-
menn tækju sæti á Alþingi væri þeim
heimilt að fá leyfi frá fyrri störfum.
Þegar Jón var spurður hvort honum
þætti ekki óeðlilegt að fyrrverandi
ráðherra stýrði stofhun sem væri ráð-
gjafi fyrir ríkisstjómir sagðist hann
ekki vilja ijölyrða neitt um það.
Hann sagði að það hefði oft hent
áður að menn, sem taka sæti á Al-
þingi, tækju við störfum sem fælu í sér
ráðgjöf á vegum ríkisins. Hann bætti
við að menn héldu sínum persónulega
rétti þó svo þeir tækju sæti í ríkis-
stjóm. Hvort hann teldi sig jafiihæfan
í starf forstjóra Þjóðhagsstofiiunar ef
svo færi að Alþýðuflokkurinn yrði í
stjómarandstöðu þegar hann tæki aft-
ur við fyrra starfi sínu, sagðist hann
ekkert vilja fullyrða um.
í 2. málsgrein 48. greinar stjómar-
skrárinnar segir að embættismönnum,
sem taka sæti á Alþingi, sé heimilt að
fá leyfi frá störfúm meðan þeir em á
Alþingi. Ekki er getið um nein tíma-
mörk á leyfum embættismannanna.
-sme
HI-TEC býður fullkomið úrval af íþróttaskóm. Hjá HI-TEC er tekið tillit til hins sérstaka álags á fætur og fóta-
búnað sem fylgir hverri íþróttagrein. Allir HI-TEC íþróttaskór eiga það einnig sameiginlegt að vera fisléttir,
liprir og laglegir, sterkir, stöðugir og fara vel á fæti. Viltu ná lengra? Komdu þér úr sporunum-á HI-TEC!
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík og nágrenni
Bikarinn Skólavörðustíg 6
Sportbúðin Laugavegi 97 og Völvufelli 17
Smáskór Skólavörðustíg 6 b
Bragasport Suðurlandsbraut 6
Útilíf Glæsibæ Álfheimum 74
Veggsport Héðinshúsinu Seljavegi 2
Boltamaðurinn Laugavegi 27
Sportbær Rofabæ
Búsport Arnarbakka 2-6
Sportbúð Kópavogs Hamraborg 20a
Dröfn Strandgötu 75
Kaupfélag Kjalarnesþings Mosfellsbæ
Landið
Aldan Sandgerði
Byggingavöruversl. Hveragerðis Hveragerði
Skóbúð Selfoss Selfossi
Kaupfélag Skaftfellinga Kirkjubæjarklaustri
Axel Ó Vestmannaeyjum
Kaupfélag A-Skaftfellinga Höfn
Kaupfélag Héraðsbúa Reyðarfirði
Hákon Sófusson Eskifirði
Verslunarfélag Austurlands Fellabæ
Bókaversl. Þórarins Stefánssonar
Skóbúð Sauðárkróks Sauðárkróki
Hólmkjör Stykkishólmi
Verslunin Hornið Grundarfirði
Verslunin Rocky Ólafsvík
Verslunin Blómsturvellir Hellissandi
Borgarsport Borgarnesi
Staðarfell Akranesi
Sportbúð óskars Keflavík
Skóbúð Keflavíkur Keflavík
Austurborg Vopnafirði
Hamraborg 14, Kóp. Sími 40097.