Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987. 19 Fréttir Hofuðástæður eifiðleika kaupfélaganna: Samdráttur í landbúnaði og mlnnkandi dreifbýlisverslun Kaupfélag Svalbarðseyrar gjald- þrota. Kaupfélagi Vestur-Barö- stréndinga bjargað frá gjaldþroti meö greiöslustöðvun í 3 mánuöi. Kaupfélagiö Fram í Neskaupstaö lokar verslun og reynir að auka hag- kvæmni í rekstri. Fréttir berast af því aö mörg fleiri kaupfélög eigi í erfiöleikum. Hver er ástæaðn? Þessi spurning var lögð fyrir Val Arnþórs- son, kaupfélagsstjóra Kaupfélags Eyfiröinga og stjómarformann Sam- bandsins. Valur sagði aö hér væri um marg- þætt vandamál að ræða Ein af ástæðunum væri sú að varðandi verslun er landið allt oröið einn markaöur og því ekki grundvöllur fyrir því að reka verslun með Qöl- þættu vöruúrvaii í litlum byggðar- lögum. Rekstrargrundvöllur væri ekki fyrir slíkar verslanir lengur. Þá benti hann á aö ef menn litu nokkur ár til baka hefði velta kaup- félaganna minnkað verulega um leiö og samdráttur hefði orðiö í land- búnaðL Loks nefndi Valur að óðaverð- bólgan um og eftir 1980 heföi leikiö kaupfélögin í landinu grátt Þá hefðu flest ef ekki öli kaupfélögin orðiö aö ganga hættulega mikið á eigið fé og lánsfé hefði veriö með slikum vöxt- um að fyrirtæki hefðu vart risið undirþeim. Varðandi verslun í landinu sagöi Valur að hún hefði dregist frá smasrri stöðum aö nokkrum ákveðnum byggðakjömum, svo sem Akureyri, Egilsstöðum, ísafirði og síðan sækti fólk af öllu landinu í auknum mæli til Reykjavíkur með verslun, með tilkomu bættra sam- gangna. Fyrir litlar verslanir úti á landi væri útilokað að standa í verðsamkeppni viö markaði og aör- ar stærri verslanir á höfúðborgar- svæðina Þegar ailt þetta kasmi saman á svipuðum tíma mætti þóst vera hvers vegna kaupfélög á minni stöðum úti um land ættu 1 erfiöleik- um, sagði Valur Amþórsson. -S.dór Veiðinn þingmaður: Skaut þijár gæsir í Hreppunum Gæsaveiðitíminn stendur sem hæst þessa dagana og hefur veiðin töluvert glæðst síðan kólna tók og gæsin kom niður í ríkari mæli. „Við fórum austur í Hreppa, ég og Ingi Bjöm Albertsson alþingismaður, og náði Ingi Bjöm í sínar þrjár fyrstu gæsir,“ sagði Garðar Kjartansson kaupmaður í samtali við DV en hann og Ingi Bjöm fóm skottúr í Hreppana til gæsaveiða fyrir nokkr- um dögum og afraksturinn var 6 gæsir. „Þingmaðurinn er efnilegur, þrjú skot og þrjár gæsir, fengum þetta í morgunflugi. Við fórum svo í kjör- dæmi þingmannsins nokkm síðar en það gekk alls ekki, þá fengum við enga gæs. Hann veiðir ekkert í sínu kjör- dæmi nema atkvæði," sagði Garðar. -G. Bender Þingmaðurinn vel gallaður með tvær af sinum fyrstu gæsum I Hreppunum - og örugglega ekki þær síðustu. DV-mynd Garðar Uppsagnir póstmanna: Biðstaða í samningamálum Fulltrúar póstmanna, samgöngu- og fiármálaráöuneytis fúnduðu í gær um uppsagnir póstmanna. En alls hefur 31 yfirmaður í póstþjónustunni sagt starfi sínu lausu vegna iágra launa og krefjast þeir 25% hækkunar á laun umfram það sem ófaglært starfsfólk í féMginu hefur. Að sögn Torfa Þorsteinssonar, vara- formanns PóstmannaféMgsins, kom ekkert samningstilboð frá ríkinu fram á þessum fúndi. „Það er verið að skoða þessi mál. Póstmannafélagið sem slíkt gerir ekki kröfú um 25% hækkun á Mun faglærðra póstmanna heldur eru það þeir sem segja upp sem gera þær.“ Næsti fundur í deilunni hefur verið boðaður þann 21. október næstkom- andi. -J.Mar Uppsagnimar á Orkustofnun: Formgallar og bótaréttur - að mati stjómar BHMR „Við teljum að þessar uppsagnir séu ólöglegar, að það séu formgallar á þeim og við álítum að mennimir eigi rétt á bótum vegna þessa,“ sagði Birg- ir Bjöm Sigurjónsson hagfræðingur í samtali við DV, en hann er hagfræð- ingur Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, BHMR. Stjóm BHMR hefur ákveðið að taka að sér mál þeirra starfsmanna Orku- stofnunar sem em félagsmenn í FéMgi íslenskra náttúrufræðinga og sagt hef- ur verið upp störfum hjá stofnuninni. Sagöi Birgir Bjöm að stjóm BHMR teldi að þar sem formgallar væm á uppsögnunum kæmi til bótaréttur og biðMun til handa starfsmönnunum. „Hver veit nema ríkið faHist á þetta," sagði Birgir Bjöm og gat þes að á morgun, fóstudag, myndi BHMR funda um málið með fulltrúum fiár- málaráðuneytisins. Þá gat Birgir þess að einn þeirra sem sagt var upp væri stjómarmaður í BHMR og sagði hann að þar hlyti að hafa verið um mistök að ræða þvi trúnaöarmönnum verkalýðsfélaga væri ekki sagt upp nema brýnar ástæður væra fyrir því en um það væri ekki að ræða í þessu tilviki. Þeir ættu að öllu jöfnu að ganga fyrir um störf. Hins vegar sagöi Birgir Bjöm að auðvitað viðurkenndi BHMR rétt vinnuveitenda til þess að segja upp starfsfólki. -ój BLAÐAUKI ALLA LAUGARDAGA BÍLAMARKAÐUR DV er nú á fullrí ferð Nú getur þú spáð í spilin og valið þér bíl í ró og næði. Blaðauki með fjölda auglýsinga frá bílasölum og böaum- boðum ásamt bílasmáauglýsingum D V býður þér ótrúlegt úrval bíla. Auglýsendur athugið! Auglýsingar í bflakálf þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 fimmtudaga. Smáauglýsingar í helgarblað þurfa að berast fyrir kl. 17 föstudaga. Síminn er 27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.