Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987. 37 Bruce Springsteen stofnaði sjóð til hjálpar atvinnulausum úr stáliðnaðinum og hér sést hann með tveim úr þeim hópi. Poppsljaman Bruce Springsteen hefur verið nefndur stjama verka- lýösins og einnig kallaður „The Boss“ sem útleggst sem forstjórinn á íslensku. En nú hefur Springsteen verið sakaöur um að vera harðstjóri og allt annað en vinur verkalýðsins. Tveir fyrrum starfsmenn hans hafa höfðað mál á hendur honum og krefj- ast skaðabóta fyrir að hafá verið margsviknir af söngvaranum. Þaö em Michael Batlan sem vann hjá honum í 13 ár og Douglas Sutphin sem var hjá honum í 10 ár samfleytt. Þeir segjast hafa unnið að meðaltali 80 stimda vinnuviku hjá Springsteen og verið reiðubúnir til starfa allan sólarhringinn en aldrei fengið greitt eftir yfirvinnutaxta. Þeir segjast hafa margbeðið um leiðréttingu sinna mála en aldrei fengið, auk þess hafi söngvarinn verið iðinn við að rukka þá um peninga eða draga af þeim kaup ef hann taldi þá gera afglöp í starfi. Talsmaður Springsteen segir að vel hafi verið gert við þessa menn, er þeir hættu hafi Springsteen borgað hvorum um sig 10 þúsund dollara fyrir hvert ár sem þeir unnu hjá honum. Engin furða þótt Brando noti sólgleraugu, svona á sig kominn. Brando var kominn með talsvert varadekk er hann ræktaði kókoshnetur á einkaeyju sinni á Tahiti. " Peter Holra virðist hafa tryggt fjárhag sinn eftir að hafa farið illa út úr viðskiptum sínum við Joan Collins. Hann kvæntist nýlega á laun Kathy Ann Wardlow, dóttur milljónara, en raóðir hennar ku ekki vera par hrifin af ráðahagn- ura. Með þessari giftingu hefur Holm tryggt sér áframhaldandi veru í Bandaríkjunum en kunnugir segja að Peter Holm sé ekkert sérstak- lega vinsæll í heimalandi sinu, Sviþjóð, núna, Hann er séður hann Peter Holm. Þessi lét blekkjast, Kathy Ann Wardlow. Hvar er Brando nú? Marlon Brando er orðinn ein mesta ráðgátan í Hollywood. Hann lifir einangruðu og einmana lífi í vfilu sinni í Los Angeles. Þar situr hann niöursokkinn í eigin hugsanir og drekkir sorgum sínum með stans- lausu mataráti. Nú er svo komið að þetta fyrrum glæsimenni og hæst- launaði kvikmyndaleikari heims er orðinn að hálfgleymdu 160 kílóa fitu- hlassi. Brando hefur orðiö fyrir miklum áföllum í lífi sínu. Sú kona sem hann elskaði mest, Jifi Banner, dó frá hon- um í bfislysi og eini leikstjórinn sem hann kunni almennfiega að meta, Norman Garey (leikstjóri Superman I myndarinnar), skaut sig árið 1982. Ekki bætir úr skák að elsti sonur hans, Christian, vill sem minnst af fóður sínum vita. Fyrir stóran hluta gífurlegra auöæfa sinna hafði Marlon Brando fjárfest í eyju á Tahiti. Þar hafði Brando komið af stað umfangsmik- illi kókoshneturækt, auk þess sem hann rak hótel þar. Það á ekki af karlinum að ganga því fellibylur lagöi í einni svipan allt saman í rúst og neyddist Brando til þess að selja eyjuna í kjölfar þess. Þaö undrar víst fáa, sem á annað borö þekkja hrak- fallasögu hans, hve Ula er fyrir þessum 63 ára lefiíara komiö. Sviðsljós Olyginn sagði... - Fay Dunaway er farin að eiga stefnumót við fyrrum eiginmann sinn, Ijós- myndarann Terry O'Neill, en þau hafa verið skilin að skiptun um skeið. Fay hefur búið í New York með sex ára syni þeirra hjóna, Liam. Nú er talið líklegt að hún flytji aftur til London þar sem Terry býr. Segið svo að rómantíkin blómstri ekki henni Ameríku... T Shirley Maclaine hefur getið sér gott orð sem rithöfundur á síðustu árum en bækur hennar hafa að mestu snúist um endurminningar hennar. Hún hefur átt sína aðdáendur hér á landi enda hefur fyrsta bók hennar verið gefin út á íslensku. Maclaine gaf um daginn út nýja bók sem heitir „It's All in the Playing". Hún var á ferðinni í Frankfurt fyrir stuttu og kynnti bók sína á bókaþingi þar. Mikhail Baryshnikov var að leika í nýrri mynd sem að sjálfsögðu snýst aðallega um ballettdans. Myndin er tek- in á Ítalíu og fjallar um banda- rískan ballett. Sjálfsagt þykir mörgum skrítið að gera mynd um amerískan ballett á Ítalíu en þar þótti fyrirfinnast rétta umhverfið fyrir myndina. Hún er tileinkuð Noru Ross sem stóð fyrir stofnun ballettaka- demíu í Kaliforníu fyrir löngu. Baryshnikov lék sem kunnugt er í White Nights þar sem hann stóð sig mjög vel svo að beðið verður eftir þessari mynd hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.