Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987. Utlönd_________ Hver bauð Gorbatsjov? Til háværra mótmæla dró í full- trúadeild bandaríska þingsins í gær þegar þingmenn deildu þar um það hvort heimila ætti Mikhail Gor- batsjov, aðalritara sovéska komm- únistaflokksins, að ávarpa þingmenn deildarinnar. Fjölmargir þingmenn gengu í ræðustól í gær og mótmæltu því að „þessum kommúnista" yrði heimil- uð innganga í sali deildarinnar. Virtist þeim efst í huga sú spurning hver hefði eiginlega boðið aðalritar- anum að ávarpa þingmenn til að byrja með. Áætlað er að Gorbatsjov ávarpi fulltrúadeildina í næsta mánuöi þeg- ar hann kemur til Washington til Alþjóðlegir yfirmenn fjölmiðla gagnrýndu í gær fimm Mið- og Suð- ur-Ameríkuríki fyrir takmarkað ritfrelsi. Kom gagnrýnin fram í lok árlegs fundar fjölmiðlasamtaka Am- eríkuríkja. Sagði í tilkynningu fundarmanna að ekkert ritfrelsi ríkti í Panama, Nicaragua, Paragua, Kúbu og Chile. Til að leggja áherslu á skilaboð sín var blaðamaðurinn Roberto Eisen- mann, sem er útlægur frá Panama, kjörinn í stjórn samtakanna. Skýrsla fundarmanna um Kúbu var styst en Panama sætti hörðustu gagnrýninni. Nýlega hefur herfor- ingjastjórnin i Panama lokað fimm málgögnum stjórnarandstæðinga og leiðtogafundar með Ronald Reagan forseta. Tilkynnt var um þessa fyrir- ætlan fyrr í þessari viku. Það var forseti deildarinnar, Jim Wright, sem tilkynnti þingheimi þetta og sagðist hann hafa fengið upphringingar frá bæöi George Shultz utanríkisráðherra og Howard Baker, starfsmannastjóra Hvíta hússins, um málið. Talsmenn Hvíta hússins vilja hins vegar halda því fram að boðið hafi komiö frá þinginu sjálfu. Hafi Reag- an forseti ekki farið þessa á leit heldur sé meðal þingmanna hópur vinstrisinnaðra frjálslyndisstefnu- manna sem séu reiðubúnir til að ýta fram boðinu til aðalritarans. herinn hefur tekið undir sig eignir þeirra. Hæstaréttardómari og blaða- maður voru myrtir í Panama eftir að þeir gagnrýndu tillögu að nýjum lögum um fjölmiöla. Nokkrir blaða- menn hafa verið fangelsaðir og hefur þeim verið misþyrmt. Varðandi Chile og Nicaragua var sagt í skýrslu fundarmanna að þó svo að stjórnarandstæðingar fengju að gefa út blöð væri það ekki næg sönn- un þess að ritfrelsi ríkti í löndunum. Nicaraguastjórn hefur hótað að stöðva útgáfu La Prensa ef banda- ríska þingið samþykkir fjárveitingu til kontraskæruliða. í Chile er blaða- mönnum stöðugt hótað morði. Tamíltígrar, skæruliðar tamíla á Sri Lanka, fóru í nokkrar árásarferð- ir í gær. Var það um svipað leyti og þeir létu lausa átján Indverja sem verið hafa í haldi þeirra í meira en mánuð. Að minnsta kosti fjórir Indverjar biðu bana og ellefu særðust þegái’ skæruliðar gerðu árás á indverska tlutningalest í norðurhluta Sri Lanka síðdegis í gær. Einnig voru gerðar árásar á lögreglustöðvar og ráðist var á friöargæslusveitir Indverja í nokkrum héruðum. Miklar rigning- ar komu í veg fyrir að Indverjar gætu elt uppi árásarmennina. Indverjarnir átján voru látnir laus- ir eftir að samkomulag hafði náðst um frelsun þeirra en ekki er ljóst hvort tamílum var lofað einhverjum Hin fimm ára gamla Melodie Nakachian er nú laus úr greipum mannræningjanna. Lögreglan frels- aði hana í nótt og lést einn mannræn- ingjanna í átökunum, að því er yfirlögreglustjóri Spánar greindi frá í morgun. Melodie, sem rænt var fyrir tólf dögum á Costa del Sol, var ómeidd og er nú komin til foreldra sinna. Höfðu mannræningjarnir, sem lýst er sem harðsvíruðum glæpamönn- um, hótað að svelta barnið til bana eða drepa það ef ekki yrði gengið að kröfum þeirra um fjögurra milljóna dollara lausnargjald. Áður höföu þeir farið fram á þrettán milljónir en faðir stúlkunnar bauðst til að greiða þeim eina. Höfðu fóðurnum, sem er frá Líban- on og sagður vera milljónamæring- ur, borist peningagjafir hvaðanæva að frá Spáni frá fólki sem vildi að- stoða við að fá Melodie látna lausa. Fréttir af því hvernig innrás lög- reglunnar í íbúð mannræningjanna nálægt Gíbraltar, gekk til eru enn mjög óljósar en svo virðist sem nokkrir hafi verið handteknir. í gærkvöldi hafði móðir Melodie, sem er söngkona frá Kóreu, sagt við fréttamenn aö hún og maður hennar myndu bíða alla nóttina eftir fréttum og gaf hún þar með í skyn að búast mætti við tíðindum. Frestur til að greiöa lausnargjaldið átti að renna út um kvöldmatarleytið í kvöld. All- ur Spánn stóð á öndinni eftir að segulbandsupptaka með rödd Me- lodie var leikin í útvarp. Þar bað eftirgjöfum. Að sögn sendiráðsstarfs- manna Indveija á Sri Lanka var frelsun fanganna ekki bundin nein- um skilyrðum. Að minnsta kosti tvö hundruð og fjörutíu Indverjar hafa verið felldir frá því að þeir létu til skarar skríða gegn skæruliðum tamíla á norður- og austurhluta Sri Lanka. Móðir Melodie á tali við fréttamenn áður en tilkynnt var um frelsun telp- unnar. Símamynd Reuter telpan föður sinn um hjálp. Útvarps- sendingar í morgun hófust með því að tilkynnt var um frelsun Melodie. Að sögn lögreglunnar virðist ekk- ert samband vera á milh mannræn- ingjanna og fóður Melodie. Bresk blöð höfðu greint frá því að faðir Melodie hefði eitt sinn átt nætur- klúhb í London og að hann hefði verið rekinn frá Bretlandi. Jólagjafahandbók VERSLANIR! Hin sívinsæla og myndarlega jólagjafahandbók kemur út 3. desember nk. Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á að auglýsa í JÓLAGJAFAHANDBÓKINNI vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild Þverholti^ 11 eða í síma 27022 kl. 9-17 virka daga sem fyrst. í síðasta lagi fimmtudaginn 26. nóv. nk. Heræfingum mótmætt Yflrvöld í Nicaragua mótmæltu í gær heræflngum Bandaríkja- manna í Honduras og sögðu að þær ógnuðu friðarviðleitni á svæðinu. Varaforseti Nicaragua, Sergio Ramirez, sagði að á meðan löndin á þessu svæði einbeittu sér að því að koma á friði færu fram viða- mestu heræfmgar Bandaríkja- manna í Honduras til þessa. Ekki væri á nokkum hátt hægt að líta á þetta sem framlag til friðar, bætti Ramirez við. Undanfarin ár hafa Bandaríkja- menn haft heræfingar í Honduras. Fullyrt er að þær séu til að sýna yfirvöldum í Nicaragua fram á mátt Bandaríkjanna en Banda- ríkjamenn líta á stjórnina í Nic- aragua sem ógnun við öryggi Bandaríkjanna. Ramirez sagði að friðarsam- komulagið, sem fjórir aðrir leið- togar Mið-Ameríkuríkja undirrit- uðu í ágúst, næði aðeins fram að ganga ef yfirvöld í Washington hættu stöðugum hótunum sínum. Melodie laus og ómeidd Gagmýna skort á ritfrelsi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.