Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Side 9
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987.
9
Utlönd
Verkamaður hvilir sig eftir að hafa unnið við hreinsunarstörf í King’s Cross neðanjarðarbrautarstöðinni þar sem
á fjórða tug manna beið bana i eidsvoða á miðvikudagskvöld. Símamynd Reuter
Oiyggisráðstafan-
ir voru ekki nógar
Á meðan syrgjendur leggja blóm-
sveiga á brunnin stigaþrep neðan-
jarðarlestarstöðvarinnar King’s
Cross í London liggja maður og kona
milli heims og helju á gjörgæsludeild
á sjúkrahúsi þar rétt hjá. Tólf aörir
eru sagðir alvarlega slasaðir með
brunasár og skemmd lungu.
Á íjórða tug manns biðu bana í
brunanum sem braust út síðdegis á
miðvikudaginn undir rennistiga.
Ekki hefur reynst unnt að bera
kennsl á öll líkin sem eru illa leikin
af hitanum af eldinum. Eldurinn
magnaðist fljótt af súgnum frá neð-
anjarðargöngunum og fylltust
göngin af þykkum, banvænum reyk.
Samgöngumálaráðherra Breta,
Paul Channon, sem hefur fyrirskipað
Skemmdirnar urðu gifurlegar í
King’s Cross neðanjarðarbrautar-
stöðinni þar sem eldur braust út á
miðvikudagskvöld. Simamynd Reuter
nefnd til aö rannsaka slysið, sagöi á
þingi í gær að neðanjarðarjárnbraut-
arkerfi London væri eitt hið örugg-
asta í heiminum. Lagöi hann áherslu
á að aðeins hafi verið um slys að
ræða og þyrfti að rannsaka hvaða
lærdóm væri hægt að draga af því.
Embættismenn hafa einnig neitað að
öryggisráðstöfunum hafi ekki verið
sinnt.
tweftt USLL SC KO UKÍSRCRÖUHD TRfllNS FROH
Kl HC'$ CROSC-'ST, ROHCRRS 6T8TJDH TOORV/
CXCtPT OH THC HCTRORLXTRH RHB CIRCLe
Í.XHC8.
RL88>HO UNBCRCHOUHD TH8XH8 «ZLL BC
8VAZLRBLS «T FIH88URV RRRK BTRTXOH.
WrpílOTMMíl
Á skiltinu er tilkynnt að engar ferðir
verði frá King’s Cross og St. Pancr-
as vegna eldsvoðans sem þar varð.
Símamynd Reuter
En stjórnarandstöðumenn og sér-
fræðingar á sviði brunavarna beina
athyglinni að öryggisráðstöfunum og
er bent á að vatnsúðunarkerfi hefði
getað komið í veg fyrir að svo marg-
ir týndu lífi.
Eftir bruna í neðanjarðarlestar-
stööinni í Oxford árið 1984 var mæít
með því að slíku kerfi yrði komið
fyrir. Fáir slösuðust við það tilfelli
en eftir rannsókn kom fram að of
mikið af eldfimu efni var notað með-
fram veggjum og í rennistiga. Einnig
vantaði þar reykskynjara.
Meðlimur Verkamannaflokksins
hefur greint frá því aö að fækkað
hafi verið í starfsliði við brautarstöð-
ina og starfsliðið hafi fengið minni
fræðslu um öryggismál.
Slökkviliðsmenn fyrir utan neðan-
jarðarbrautarstöðina á miðviku-
dagskvöld.
Simamynd Reuter
Mótmæla samvinnu
um Gíbraltarflugvöll
Brynhildur Ólafsdóttir, DV, Spáni;
Embættismenn utanrikisráðu-
neyta Spánar og Bretlands reyna nú
að komast aö samkomulagi um flug-
völlinn á Gíbraltar fyrir 7. desember
en þá mun Evrópubandalagið énn á
ný funda um samvinnu evrópskra
flugvalla á sviði flutninga.
í júní síðastliðnum notaði Spánn
neitunarvald sitt innan Evrópu-
bandalagsins og stöðvaði þessa
samvinnu á þeirri forsendu að í
samningnum væri Gíbraltarflugvöll-
ur talinn einn af héraðsflugvöllum
Bretlands.
Bretum er mikið í mun að flugvöll-
urinn á Gíbraltar verði með í
samningi Evrópubandalagsins og
líklegt þykir að lausnin verði sú að
Spánveijar og Bretar semji sín á
mUli um einhvers konar sameigin-
lega notkun og jafnvel stjómun
flugvallarins gegn því að Spánveijar
dragi neitun sína tilbaka og gangi að
samningi Evrópubandalagsins.
íbúar Gíbraltar, sem eru um þrjá-
tíu þúsund talsins, eru mikið á móti
tilslökun af hálfu Breta. í síðustu
viku tók tæplega helmingur íbúanna
þátt í mótmælagöngu og nú hefur
þing Gíbraltar sent ríkisstjórn Breta
yfirlýsingu þar sem Bretar eru vin-
samlegast beðnir um að undirrita
ekki neinn samning við Spánverja
sem hefði í for með sér sameiginlega
stjórnun flugvaUarins.
Amerísk olíumálverk í álrömmum, stærðir 1,23x1,53,
kr. 21.500,1,28x1,02, kr. 19.500,1,02x0,77, kr. 15.500.
OPIÐ ALLA LAUGARDAGA KL. 9-16.
Greiðslukjör allt að 11 mán. með Eurocredit eða Visa
vildarkjörum.
ÍEURÖ
KREDIT
VILDARK/OR
V/SA
cn r rrna TTiíTn
lr5J j SUÐURLANDSBRAUT 26 - SÍMI 84850 " P. O. BOX 8266 - 128 REYKJAVlK
VÖNDUÐ LEÐUR-
SÓFASETT
Image, 3ja sæta sófi + 2 stólar, kr. 84.000, stgr.
76.210.
Plaza, 3ja sæta sófi + 2 stólar, kr. 96.000, stgr. 87.210.
Sandra hornsófi kr. 95.950,- stgr. 85.950.