Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Side 13
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987. 13 Neytendur Bakstur án eggja Verö á eggjum hefur veriö hækk- aö um mörg hundruð prósent í vikunni. Þeir sem ekki náöu aö birgja sig upp af eggjum áöur en háa verðið gekk í gildi hljóta aö mótmæla nýju eggjaveröi með því að kaupa ekki egg. Það er hægt að lifa góðu lífi án þess að nota egg. Sumir næringar- fræðingar segja meira að segja að egg séu óholl og ekki megi borða meira en 2 egg í viku. Það er erfitt aö baka sætar kökur án þess að hafa egg eða eggjaduft. Hins vegar fara ekki egg í brauð og snúða þannig að nú snúum við okkur að slíkum bakstri. Hveitibrauð Hægt er aö nota bæði vatn og mjólk til þess að bleyta í deiginu. Brauðið verður finna, með mýkri skorpu ef notuð er mjólk. Ef vatnið er notað verður brauöið léttara, með stökkri skorpu sem verður frekar ljós á litinn. Hægt er að nota heilhveiti að ein- hverju leyti, t.d. blanda til helm- inga. Uppskriftin hér á eftir er eins konar grunndeig því hana má nota til að baka margs konar brauð, en. úr henni koma t.d. tvö formbrauð. 50 g smjörlíki eða 'Á dl olía 5 dl vatn eða mjólk 1 pk. ger 1 tsk salt 2 tsk sykur 750 g hveiti Bræðið smjörl. í potti og bætið vatninu eða mjólk út í og hitið þar til blandan er 37° C. Leysið gerið upp í hluta af blöndunni (eða farið eftir leiðbeiningum á gerpakkan- um), látið salt og sykur í blönduna. Bætið út í ca 3/4 hluta af hveitinu. Hnoöiö deigið þar til það er orðið létt og slétt. Stráið þunnu hveitilagi yfir deigið og breiðið hreinan klút yfir og látið þaö lyfta sér á hlýjum stað þar til það hefur tvöfaldað stærð sína, eða í ca 30 mín. Hnoðið þá deigið upp á nýtt og hnoðið meira hveiti í það, eins miklu og deigið þolir. Úr deiginu er hægt aö búa til ýmsar gerðir af brauði, kringlótt brauð, formbrauð, löng brauö, horn eða bollur. Látiö brauðin lyfta sér aftur á plötunni, penslið svo með vatni og bakið. Brauðiö er best nýbakað, en hveitibrauð geymist í 3-5 daga í brauðkassa og í 6-12 mánuði í frysti. Bökunartími og hiti er mismun- andi eftir því hvers konar brauð það er sem þið ætlið að baka úr deiginu. Kringlótt brauð Úr deiginu má fá tvö kringlótt (bóndabrauð) brauð. Látið brauðin lyfta sér á plötunni í 20-30 mín., penslið þá með vatni og bakið við 200-225° C hita í ca 30 mín. Penslið aftur með vatni rétt áður en brauð- ið er tilbúið. Kælið á rist. Formbrauð Látið deigið í tvö smurð form (1 'A 1). Leggið stykki yfir brauðin og látið þau lyfta sér á ný í ca 20-30 mín. Bakið brauðin á neðstu rim í ofn- inum við 225° C hita í ca 30 mín. Hvolfið þá brauöunum á rist og bankiö í botninn á þeim. Ef það heyrist líkt og brauðin séu „tóm“ eru þau fullbökuð. Ef brauðin virka þung getur verið nauösynlegt aö baka þau án formsins í 10 mín. í viðbót. Kælið brauðin á rist. Birkibrauð Skiptið deiginu í tvennt. Takið smáklípu af hvorum helmingi og geymið. Búið svo til slétt og falleg, ílöng brauð. Búið svo til langa pylsu úr litla deigbútnum og snúið upp á ræmuna. Leggið hana ofan á brauðið eftir því endilöngu og festið í báða enda. Látið brauðin lyfta sér Skeriö ofan i snittubrauöin með beittum hníf eða jafn- vel rakvélarblaði. msmmmmm Vefjið hornunum saman frá breiðari endanum beygið litla hornið niður svo það brenni ekKi. undir klæöi í ca 30 mín. Pensliö með vatni og stráiö birkifræjum á brauðið. Bakið brauöin á neðstu rim í ofn- inum í ca 25 mín. við 225°-250° C hita. Kæliö á rist. Stór horn Skiptið deiginu í tvennt. Fletjið hvorn helming út í stóran hring og rúllið saman í horn. Látið hornin á smurða plötu, látið mjósta end- ann vísa niður að plötunni. Látið lyfta sér undir klæði í 20-30 mín. Penslið meö mjólk, stráið sesam- eða birkifræjum á hornin og bakið á neðstu rim eða í miöið í 20-25 mín. við 225° C hita. Kælið á rist. Snittubrauð Úr deiginu geta komið 3-5 brauð. Notið vatn í deigið í staðinn fyrir mjólk og olíu í staðinn fyrir smjör- líki og notið e.t.v. aðeins minna af hveitinu. Deigið má gjarnan vera eilítið lausara í sér en í venjulegu brauði. Búiö til 3-5 mjóar lengjur. Látið þær á smuröa plötu. Skerið ofan í deigið með beittum hníf eða jafnvel rakvélarblaði. Hveitibrauð Sni ttubrauð Rúnstykki Það er hægt að baka ýmsar tegundir af brauði úr sömu uppskriftinni. > Hamborgarabrauð Látið brauöin lyfta sér á ný i ca 30 mín. án þess að breiða yfir þau. Bakið þau síðan í miöjum ofni í 12-15 mín. við 270-300° C hita. Penslið brauðin með köldu vatni um leiö og þau eru tekin út úr ofn- inum. Kælið á rist. Hprn Úr uppskriftinni má fá 24-35 stk. eftir stærö. Skiptið deiginu í fernt. Fletjið hvern fjórðung út og skerið út þríhyrninga annaðhvort meö hnif eða kleinujárni. Vefjið horn- unum saman, byrjið á breiðari endanum en látið litla homið snúa niður. Látið hornin lyfta sér í ca 30 mín., penslið með mjólk og strá- ið á þau birkifræi ef vill. Bakist í miðjum ofni í 8-10 min. viö 250° C hita. Kælið á rist. -A.Bj. VANTAR NOTAÐAR KÍLVÉLAR SCM/GUBISCH/WEINIG STAÐGREIÐSLA FYRIR GÓÐAR VÉLAR IÐNVÉLAR & TÆKI, Smiðjuvegi 28, sími 76100 ^ ——1 órkubhi. í öUu nánu . starfsorkuisköl ö{tugUr útuefm m/a' h

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.