Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Page 17
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987. 17 Lesendur Inga Eydal, söngkona og útvarpsmaður. Góður útvarpsþulur: Þakklæti til Ingu Eydal Jóhann Þórólfsson skrifar: Það má nú ekki minna vera en þú fáir þakklæti fyrir þína dásamlega góðu þætti er þú flytur hlustendum á laugardagskvöldum. Þú ert einn hinna bestu þula og ekki hvað síst áttu þakkir skildar fyrir að velja smekkleg lög. íslenska efnið, sem þú býður upp á, er afbragð og mitt mat er að út- varpið á Akureyri sé miklu betra en • það hér syðra. Og þar sem ég er nú sagður hagyrðingur vil ég senda þér eftirfarandi kveðju: Víki gleði vart af leið, vösk er ævisaga. Ársól lýsi æviskeið, eigðu bjarta daga. Gaman væri að fá að heyra í Braga Hlíðberg með gott harmóníkulag við tækifæri. P.S. Jónas er besti útvarpsmaður- inn sem við eigum. Bestu kveðjur til hans. Einnig vil ég flytja útvarpsráði kveðju mína. Auður Guðmundsdóttir skrifar: Ég festi kaup á íbúð og var búin að sækja um lánið áður. Ég fékk loforð fyrir ákveðinni upphæð svo og uppgefna útborgunardaga. Síðan leiö að því að ég átti að fara að borga i íbúðinni og vissi ég ekkí betur en allt væri í lagi. Ég kann- aði þetta nú samt til frekara öryggis og hringdi í stofnunina. Þá er mér sagt að ég hafl ekki sent inn allar upplýsingar svo að láninu seinki. Eg rýk því til og sendi umbeðnar upplýsingar sam- stundis. Nokkrum dögum seinna fer ég svo í bankann. Þar er mér sagt að enn vanti tvö plögg til við- bótar! Ég sendi þau eins og um var beð- ið og það með hraði en aftur seinkar láninu. Nú er komið fram yfir greiðsludag og dráttarvextir farnir að bætast við. Mér finnst að Húsnæðisstofnun eigi að greiða þessa vexti. Ég veit um fleira fólk sem hefur lent ná- kvæmlega í þessu sama. Það væri óskandi að þessir herraraenn, sem þarna ráða, einfólduðu málin fyrir okkur þannig að fólk komist nokk- urn vegimi heilt á sönsum út úr þessu og lendi ekki i stórfelldum fjárhagsvandræðum. Er hægt aö einfalda málin hjá Húsnæóisstofnun? BLAÐ BURÐARFÓLK í eýtiAtaíirv /weAsjjL: Mánagötu Karlagötu Háaleitisbraut 11—51 Starhaga Lynghaga Fálkagötu Hjarðarhaga Oddagötu Aragötu Litla-Skerjafjörð Hverfisgötu 1-66 ^ Húsvörður Starf húsvarðar við Kársnesskóla í Kópavogi er laust til umsóknar. Starfið veitist frá 1. jan. '88. Umsóknar- eyðublöð liggja fram á skólaskrifstofu Kópavogs, Hamraborg 12, sem gefur nánari uppl. ásamt skóla- stjóra Kársnesskóla. Umsóknarfrestur er til 30. nóv. Skólafulltrúi JÁRNSMÍÐAVÉLAR BEYGJUPRESSA - 30 TONN - EDWARDS - TREUBAND - 2 MTR. KLIPPUR EDWARDS - 1/25 IÐNVÉLAR & TÆKI, Smiðjuvegi 28, sími 76100. NAMITANNSMIÐI Ákveðið hefur verið að taka 4 nemendur til náms í Tannsmíðaskóla íslands í janúar 1988. Inntökuskilyrði eru grunnskólapróf og kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er svarar til stúdents- prófs. Auk þess þarf að fylgja vottorð um eðlilegt litskyggni. í umsókn skal tilgreina aldur (kennitölu), menntun og fyrri störf. Umsóknir skal senda til Tannsmíðaskóla íslands, Vatnsmýrarvegi 16, 101 Reykjavík, fyrir 5. desember næstkomandi. Menntamálaráðuneytið. ÞEGAR AÐRIR HÆKKA ÞÁ LÆKKUM VIÐ DÆMI UM VERÐ Poplínfrakkar 1950,- Jakkaföt 2500,- Vetrargallar 1900,- Jogginggallar 800,- Peysur 800,- Barnanáttföt 480,- og margt fleira. JÁ, ÞETTA ER SATT KOMDU BARA OG SJÁÐU OPIÐ KL. 10-16 LAUGARDAG Bylgjubúðin ARNARBAKKA 2 - SÍMI 75030

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.