Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987. tar Mathiesen , fyrirliði islenska landsliðsins, sést hér i baráttu við pólska varnarmenn í landsleiknum í gærkvöldi. Þorgils Óttar skoraði þolanlega. Islensku landsliðsmennirnir verða að taka sig saman í andlitinu fyrir mótið á Akureyri og Húsavik ef ekki á illa að tara. DV-mynd Brynjar Gauti Ísland-Pólland, 22-25: Vömin banabitinn - Enn einu sinni slæmur leikur eftir góðan sigur Islenska landsliðinu í handknattleik virðist vera svo til fyrirmunað að leika vel tvo leiki í röð. Enn einu sinni gerðist þetta í gærkvöldi er Pólland sigraði Island, 22-25,1 Laugardals- höll. Leikur íslenska liðsins vannú allt annar en í fyrri leik þjóðanna þegar Island sigraði, 28-21. Einbeiting leikmanna var greinilega en hann lék mjög vel. Bogdan Wenta var allt í öllu hjá Pólverjunum og 1 fyrri hálfleik skor- aði hann 8 mörk. ísland hafði yfirleitt forystuna í fyrri Island yfirleitt yfir í fyrri hálfleik hálfleik, þetta eitt til tvö mörk. Pólverjar Páll skoraði fyrsta mark leiksins og börðust þó af mikilli grimmd og fyrir leikhlé tókst þeim að jafna metin og staðan í leikhléi var jöfn, 13-13. Tómt basl í síðari hálfleik Pólverjar náðu strax forystunni í síð- ari hálfleik og komust í 17-20 þegar hálfleikurinn var svo til hálfnaður. Þá tók íslenska liðið við sér og þegar níu mínútur voru til leiksloka var staðan jöfn, 21-21. Þá hrundi allt aftur og Pól- verjar sigruðu örugglega, 22-25. Vörnin var mjög slök Varnarleikurinn varð íslenska liðinu að falli í gærkvöldi ásamt baráttu- og einbeitingarleysi. Það er ljóst að ef ís- lenska liðið ætlar sér að sigra á mótinu fyrir norðan um helgina verða ýmsir hlutir aö taka stakkaskiptum. Alfreð Gíslason átti mjög góðan leik í gær- kvöldi. Hann skoraði 7 mörk í fyrri hálfleik en aðeins eitt í þeim síöari. Aðrir leikmenn léku langt undir getu. • Pólska liðið var nánast óþekkjan- legt frá fyrri leik liðanna. Greinilegt var að leikmenn liðsins ætluðu sér sigur í leiknum og það tókst með mikilli bar- áttu og frábærum leik Bogdans Wenta, sérstaklega í fyrri hálfleik. í þeim síðari var hann lengstum tekinn úr umferð og þá dofnaði yfir kappanum. Mörk íslands: Alfreð Gíslason 8/1, Þor- gils Óttar Mathiesen 4, Kristján Arason 4, Kari Þráinsson 2, Páll Ólafsson 2 og Jakob Sigurðsson 2. Mörk Póllands: Bogdan Wenta 9, Leslaw Dziuba 5, Ryszard Maslon 4, Marek Kordowiecki 2, Zbigniew Plechoc 2, Art- ur Lukaszewicz 1, Dariusz Bugaj 1 og Grzegorz Subocl 1. • Ojvind Bolstad og Terje Anthonsen dæmdu leikinn og voru þeim mislagðar hendur og dæmdu mun verr en í fyrri leiknum á miðvikudagskvöld. íslending- ar voru utan vallar í 6 mínútur en Pólverjar í 2 mínútur. -SK Iþróttir - sagði Bogdan Kowaiczyk „Þessi leikur var mjög eölilegur að mínu mati. Fyrri leikurinn var mjög góöur en sá seinni að sama skapi ekki eins góöur. Liðiö íí't erfiðleikum með að hal|ia jé'íifcj beitingu tvo leiki í röö. Þgíta er þó hlutur sem við hijótum að kippa í liöinn með tímanum,'‘ sagði Bogdan Kowalczyk lands- liösþjálfari í samtali við DV. „Næsta verkeM okkar er mótið fyrir norðan um helgina og mun- um við reyna að gera okkar besta á því móti. Við ættum að fara lan- gleiðina með aö vinna mótið ef allir spila af eðhlegri getu,“ sagði Bogdan Kowalczyk. Alfreð Gíslason „Leikurinn var alls ekki nógu góður af okkar hálfu, sérStaklega var varnarleikurinn slakur. Sóknarleikurinn var venjulegur en þó ekki eins góöur og í fyrri leiknum. Markverðir pólska liðs- ins vöröu vel í þessu leik og allt þeirra lið lék af eðlilegri getu,“ sagði Alfreð Gíslason. „Við komurn tO með að berjast um sigurinn ásamt Pólverjum á mótinu fyrir norðan um helgina. Hin liðin eru lakari að getu,“ sagði Alfreð Gíslaon. Kristján Arason „Þeir komu mun grimmari til leiks nú en i fyrri leiknum eins og ég bjóst reyndar við. Viö vor- um með slen mestallan leikinn. Það vantaði alla baráttu. Það var aðeins á smákafla í seinni hálfleik sem barátta var í liöinu,“ sagði Kristján Arason. „Þessi liö eru svipuð að styrk- leika. Aðsteöjandi vandamál í liðinu verðum viö búnir að laga fyrir ólympíuleikana. Ég vona að áhorfendur hafi gaman af mótinu fyrir norðan og fjölmenni á leik- ina," sagöi Kristján. Arason. -JKS Leikurinn gegn Póllandi í tölum: Sóknarnýting íslands í leiknum i gærkvöldi var 53,6%, 22 mörk í 41 sókn. Pólveijar fengu jafn- margar sóknir og voru með 60,9% nýtingu. • Alfreð Gísiason skoraði 8 mörk í 10 skotum, eitt skot varið og eitt framþjá. Hann vann 1 bolta og tapaöi 1 og var einu sinni rekinn útaf í 2 mínútur. • Kristján Arason skoraöi 4 mörk úr 7 skotum, 3 varin, 3 línu- sendingar, tveimur boltum tapaö og einu sinni útaf 1 2 mínútur. • Þorgils Óttar skaut 5 skotum og skoraði 4 mörk, eitt varið, eitt fiskað víti, einn bolti unninn og; eeinu sinni útaf í 2 mínútur. • Karl Þráinsson skaut 4 skot- um, skoraöi 2 mörk, 1 varið og 1 framhjá. • Páll Ólafsson skaut 3 skotum og skoraöi 2 mörk, 1 skot framhjá og 4 boltum tapað. • Jakob Sigurðsson skaut 3 skotum og skoraöi 2 mörk, 1 skot varið. • Guömundur Guðmundsson skaut l skoti sem var varið. Hann vann einn bolta. • Sigurður Sveinsson tapaði l bolta. • Júlíus Jónasson tapaöi l bolta. • Sigurður Gunnarsson átti 1 línusendingu. • Einar Þorvarðarson varöi 9 skot en Guðmundur Hrafhkels- son 4.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.