Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Side 32
44 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987. Sviðsljós Ölyginn sagði... Chrissie Hynde söngkonan fræga úr banda- rísku hljómsveitinni Pretenders er dýraverndunarsinni og er á móti því að dýr séu drepin til þess að búa til pelsa. Hún tók nýlega að sér að ganga í stutt- ermabol dýraverndunarsinna með áróðursauglýsingu frá þeim og auglýsa hann til sölu. Aðdáendur hennar voru svo æstir að kaupa af henni boli að hún seldi á fáeinum klukku- stundum boli fyrir 200.000 krónur. Michael Jackson kom mörgum á óvart í hljóm- leikaför. sinni í Japan. Hann gisti á einu flottasta hótelinu í Tókíó og pantaði nokkur her- bergi þar og lúxussvítu hótels- ins þar á meðal. Allir bjuggust við því að hún væri handa honum sjálfum en hann tók sjálfur minna herbergi. Lúxus- svítan var fyrir besta vin hans, simpansann „Bubbles". Mic- hael Jackson er ekki minni dýravinur en Chrissie Hynde. Díana prinsessa hefur sætt ákúrum frá dýraverndunarsamtökum. Ákveðin dýraverndunarsamtök gerðu það opinskátt í ensku dagblaði að prinsessan keypti sér helst ekki skó úr öðru efni en skinni af kálfum sem hafa ekki náð þroska í móðurkviði. Þetta kálfskinn er víst sérstak- lega mjúkt og eftirsótt í skó og auðvelt að ímynda sér hvernig skógerðarmenn verða sér úti um efnið. Dýraverndunarsinnar eru alveg brjálaðir og hella yfir aumingja Díönu skammarbréf- um. Kannski á hún eftir að líta svona út aftur ef hun tekur sig ekki á. Þessi mynd var tekin fyrir stuttu þegar allt var í góðu gengi hjá Elísabetu Taylor og Malcolm Forbes. aftur Eins og hún var búin að leggja hart að sér virðist nú sem allt sé á niður- leið hjá leikkonunni Elísabetu Taylor. Hún hafði átt lengi í áfengis- og pilluvandamáli, auk þess sem hún var orðin ansi feitlagin. En henni hafði tekist hið ótrúlega, að grenna sig mikið og hætta öllu vín- og pillustandi. Liz tókst að halda þetta út í nokkra mánuði og náði sér á þeim tíma í millj- ónamæringinn Malcolm Forbes sem hún ætlaði að giftast. Auk þess var hún búin að taka að sér kvikmyndahlutverk í fyrsta sinn í mörg ár, um ævi Toscaninis. En nú virðist sem stefni í óefni hjá henni á ný. Liz Taylor hefur lengi átt við miklar kvalir í baki að stríða og var það ein ástæðan fyrir drykkju- og pilluvandræðum hennar. Eftir að hafa flogið til Ítalíu fyrir töku myndarinnar um Toscanini fékk hún heiftarlega verki í bakið. Að sögn náinna kunningja hennar urðu verkirnir til þess að hún leit- aði á náðir pillu og víns til þess að lina kvalirnar. Þegar hún missir stjórn á þessum vígstöðvum missir hún einnig stjórn á matarvenjum sínum og er hún því farin að blása út aftur. Malcolm Forbes reynir nú allt sem í hans valdi stendur til þess að hjálpa henni út úr þessum vanda og forða henni frá því að verða eins og hún var fyrir nokkrum árum. Grandadagur Um síðustu helgi var, í tilefni þess að Grandi hf. hóf starfsemi sína fyrir tveimur árum, haldinn sérstakur Grandadagur. Starfsfólki Granda og aðstandendum var geflnn kostur á að skoða alla starfsemi fyrirtækisins, auk þess sem því var boðið upp á veitingar. Um framkvæmd Grandadagsins sá starfsmannafélag staðarins ásamt stjórnendum. Auk þess var Alþýöu- samband íslands með sýningu á Grandagarði í tilefni dagsins. Starfsfólki var einnig gefinn kostur á ókeypis siglingu með einum togara fyrirtækisins og varð að fara margar ferðir vegna mikillar eftirspurnar. Samtals komu um 750-800 manns til þess að kynna sér starfsemi fyrir- tækisins. Ljósmyndari DV mætti á staðinn og tók nokkrar myndir. Öllum þeim sem mættu á Granda- deginum var boðið upp á veitingar í mötuneyti staðarins. í vinnslusölunum voru sýndar þær tegundir fiska sem Grandi nýtir til manneldis og hér skoðar áhugasamur strák- Grandi er nýbúinn að kaupa nýja ur hvernig skata lítur út, nýkomin úr sjó. DV-myndir S og fulkomna karfavél sem hér sést.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.