Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Síða 5
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
5
Fréttir
Miklar vanskilaskuldir Ríkisskips:
Fékk vandann fýrst til
úrlausnar í síðasta mánuði
segir Matthías A. Mathiesen samgönguráðherra
Forráðamenn Ríkisskips upplýstu
íjárveitinganefnd Alþingis ekki um
þær miklu vanskilaskuldir sem fyr-
irtækið er í við Ríkisáþyrgðasjóð og
fj ármálaráðuneytiö þegar unnið var
að fjárlagagerð fyrir þetta ár. Matthí-
asi Á. Mathiesen samgönguráðherra
hafði heldur ekki verið gerð grein
fyrir vanskilum Ríkisskips, til úr-
lausnar, samkvæmt upplýsingum
sem DV fékk hjá samgönguráðherra.
Sighvatur Björgvinsson, formaður
fjárveitinganefndar, staðfesti í sam-
tali við DV að íjárveitinganefnd hefði
ekki verið kunnugt um þennan
vanda Ríkisskips.
Til þeirra vanskilaskulda, sem hér
um ræðir, var stofnað á árunum 1982
til 1987 en upphaf málsins má rekja
til áranna 1982, 1983 og 1984 þegar
fyrirtækið réðst í verulegar fjárfest-
ingar. Voru þá keypt tvö skip, Hekla
og Askja, og eitt skip var smíðað fyr-
ir Ríkisskip, flutningaskipið Esja. Þá
var á sama tíma byggð yöruskemma
við Reykjavíkurhöfn. Þessar fjárfest-
ingar voru að öllu leyti fjármagnaðar
með erlendum lánum. Vanskila-
skuldirnar skiptast þannig að skuld-
in við fjármálaráðuneytið er 72,8
milljónir en við Ríkisábyrgðasjóð er
hún 283,3 milljónir.
„Mér var 'ekki gerð grein fyrir
þessu vandamáli, til úrlausnar, fyrr
en í síðasta mánuði," sagði Matthías
Á. Mathiesen samgönguráðherra.
„Það komu heldur ekki neinar
ábendingar eða tillögur um úrlausn
þessa máls fram við fjárlagagerð síð-
astliðið haust. Það var nýskipaður
endurskoðandi fyrirtækisins sem í
janúar síðastliðnum vakti athygh
stjórnar fyrirtækisins á því að taka
þyrfti málið upp við stjórnvöld til
úrlausnar. Þá barst mér greinargerð
stjórnarformanns fyrirtækisins um
umfang málsins og bréf endurskoð-
anda til fyrirtækisins en ég óskaði
þá athugunar Ríkisendurskoðunar á
málinu, en gerði jafnframt grein fyr-
ir stöðu málsins í rikisstjórninni og
fyrir formanni fjárveitinganefndar,"
sagði Matthías.
Sighvatur Björgvinsson, formaður
fjárveitinganefndar, sagði að vit-
neskja um miklar skuldir Ríkisskips
hefðu verið fyrir hendi í samgöngu-
ráðuneytinu þar sem stjórnarfor-
maður fyrirtækisins væri Hahdór
Kristjánsson, skrifstofustjóri þar.
„En það var ekki minnst á þetta
við fjárveitinganefnd í haust og þvert
á móti; menn létu vel af afkomu fyrir-
tækisins. Þannig að mér kom afskap-
lega mikið á óvart þegar þetta mál
kom upp. Mér er líká kunnugt um
að samgönguráðherra var ekki skýrt
frá þessari stöðu fyrr en nýverið.
Mér kom það á óvart að svona mikl-
ar skuldir skuli vera hjá Ríkisskip
og menn bíða eftir því að Ríkisendur-
skoöun skih niöurstöðum sínum
eftir athugun á fyrirtækinu," sagði
Sighvatur.
Guðmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Ríkisskips, sagði í
samtali við DV aö hann hefði sent
núverandi samgönguráðherra
„minnisblað“ þar sem gerð hafi verið
nákvæm grein fyrir skuldum fyrir-
tækisins og hafi þetta bréf verið
dagsett 10. júlí. Heföi hann óskað eft-
ir fundi með ráðherra i framhaldi af
því en af þeim fundi hefði ekki orðiö.
Guðmundur sagði einnig að gerð
hefði verið grein fyrir þessari stöðu
fyritækisins nokkrum sinnum und-
anfarin ár, meðal annars fyrir
fyrrverandi samgönguráðherra og
fjárveitinganefnd og árið 1985 hefði
stjórnin sent frá sér ítarlega skýrslu
um skuldir fyrirtækisins. „Við upp-
lýstum bæði íjárveitinganefnd og
samgönguráðherra um þetta á síð-
asta kjörtímabili,“ sagði Guðmund-
ur, en sagði jafnframt aðspurður að
þetta mál hefði ekki komið til'um-
ræðu á fundi með fjáryeitinganefnd
síöastliðið haust. Ekki sagöist hann
geta gefið skýringar á því af hverju
núverandi ijárveitinganefnd hefði
ekki vitneskju um þessa hluti og ekki
sagði Guðmundur að gerö væri grein
fyrir þessum miklu vanskilum í
rekstraráætlun fyrirtækisins fyrir
þetta ár.
-ój
Landið helga
Egyptaland
- skemmtiferðaskip á Níl
Páskaferð 30. mars-14. eða 21. apríl (16 eða 22 dagar)
Jerúsalem - Betlehem - Jeríkó - Dauðahafið - Nazaret - Galíleuvatn - Egyptaland - Kaíró
- Pýramidarnir - 5 dagar með skemmtiferðaskipi á Níl - Baðstrandardagar í ferðalok
4ra og 5 stjörnu hótel með morgunmat og kvöldmat og samt kostar ferðin eins og tvær viku-
ferðir til London eða góð sólarlandaferð. Fararstjóri: Guðni Þórðarson.
Ögleymanleg ævintýraferð. Fögur lönd og framandi . . FLUGFERÐIR
þjóðlif. Sólskinshvíld við Miðjarðarhafið og glæsi-
legt lúxusskemmtiferðaskip á Nil.
SOLRRFLUC
Vosturgötu 17 simar 10661. 15331. 22100
r íf ' ' ' I i- i i
V
... 7'. :'r. -
M í/)..., rji , . fJj **% i
i ív<(P 7/1OMþ.há h tJCjk ’/m .
m fi/ yj<% W/jMw j
r-vO
.
. m
Pað fer aldrei a _
- í.f '.■ ■ •
. Þegar þú sækir um Gultreikning hjá Búnaðarbankanum áttu kost á því að fá
af þér á tékkaeyðublöðin. Kosturinn er augijós. Öryggið í tékkaviðskiptum
Þú þarft aðéins að skila inn nýrri passamynd af þér þegar þú sækir um Gullreikning
tækifærið til þess að fræðast um alla hina kosti reikningsins. Fáðu þér Gullreikning og
á milli mála h'ver þú ert.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
Frumkvæði. t .Traust