Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Qupperneq 10
10'
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
Utlönd
Reyna allt til að stöðva Bush
Helstu keppinautar George
Bush, varaforseta Bandaríkjanna,
um útnefningu sem forsetaefni repú-
blikana í komandi kosningum, reyna
nú allt hvaö af tekur að klekkja á
varaforsetanum. Bæði Pat Robertson
og Robert Dole, byggja nú baráttu
sína fyrir forkosningarnar á morgun
að miklu leyti á hvatningum til kjó-
senda um að stööva Bush. Robertson
hefur meira að segja lagt til að stofn-
að verði til sérstakra samtaka
annarra frambjóðenda og stuðnings-
manna þeirra, gegn varaforsetanum.
Skoðanakannanir benda til þess að
Bush muni hljóta um helmingi fleiri
atkvæði í forkosningunum á morgun
heldur en Robert Dole og Pat Robert-
son. Fjórði frambjóðandinn meðal
repúblikana, Jack Kemp, rekur lest-
ina og virðist ekki eiga neina
möguleika lengur.
Bush vann afgerandi sigur í for-
kosningunum í Suður-Carolina á
laugardag þrátt fyrir ákafar tilráunir
Robertsons til þess að skipa þar
fyrsta sætið.
Repúblikanar ganga á morgun til
forkosninga í sautján fylkjum og
kjósa þá sjö hundruð fimmtíu og þrjá
af þeim 2.277 kjörmönnum sem
munu ákveða hver verður frambjóð-
andi flokksins.
Demókratar ganga hins vegar til
forkosninga i tuttugu fylkjum og
kjósa þá 1.307 af þeim 4.162 kjör-
mönnum sem ákveða munu þeirra
frambjóöanda.
Skoðanakannanir benda til þess að
Michael Dukakis, fylkisstjóri
Massachusetts, njóti mest fylgis
demókrata. Jesse Jackson fylgir hon-
Mánudaginn 7. mars 1988 tekur gildi breyttur opnunartími á bensínstöðvum í
Reykjavflc, Seltjamamesi, Mosfellssveit, Kópavogi, Garðabæ og Haínarfirði.
Ástæða fyrir breyttum opnunartíma er nýgenður samningur vinnuveitenda við
Veikamannafélagið Dagsbrún og Veikamannafélagið Hlíf, er varðar bensínaf-
greiðslumenn. Samningurinn felur í sér styttingu á opnunartíma bensínstöðv-
anna, þannig að ífamvegis verður lokað kl. 20.00 í stað 21.15 áður.
Sölutími bensínstööva á áðumefndum svæÖum veröurskv. samningiþessunu
Virka daga allt árið:
Opnað kl. 07.30, lokað kl. 20.00
Sunnudaga í júní, júlí, ágúst og september:
Opnað kl. 09.00, lokað kl. 20.00
Aðra sunnudaga:
Opnað kl. 10.00, lokað kl. 20.00
Aðrir helgidagar:
Opnunartími auglýstur sérstaklega
Viðskiptavimm olmfélaganm er vinsamlegast bent á, að sjálfssalar
eru opnireftirkL 20.00.
um þó fast eftir og Richard Gephardt
og Albert Core njóta einnig nægilegs
fylgis til þess aö eiga alla möguleika.
Raunar er enn talið að Richard
Gephardt sé líklegasta forsetaefni
demókrata.
Andstæðingum George Bush, varaforseta Bandaríkjanna, líst ekki meir en
svo á hversu sigurlíkur hans hafa aukist og reyna því sitt ýtrasta til að
stöðva sigurgöngu hans nú. Simamynd Reuter
Níu féllu fyrir
hendi skæruliða
Skæruliðar kommúnista á
Filippseyjum skutu í gær til bana
scx sjómenn og þrjá óbreytta borg-
ara nálægt bandarískri herstöð.
Skærultðar eru einnig sagöir hafa
gert innrás í þorp nokkurt á laugar-
daginn og tekið lögreglusfjórann
þar í gíslingu.
Talsmaður bandaríska hersins
sagði að árásin fyrir utan herstöð-
ina í gær hefði á engan hátt beinst Yfirmenn lögreglunnar i
gegn bandarískum starfsmönnum Fílippseyjum með þrjátíu og einn
herstöövarinnar. Sjómennirnir grunaðan meðlim skæruliða
þrir unnu við öryggisgæslu við kommúnista sem teknir voru í
herstöðina. skyndiáhlaupum um hundrað
Um hundrað skæruliðar, á farar- metra frá aðalbækistöðvum lög-
tækjum sem stohð hafði verið frá reglunnar. Simamynd Reuter
stjórninni, gerðu á laugardaginn
atiögu aö þorpi nokkru um hundr- og útvarpsbúnaði og flúðu síðan.
aðogsextíukílómetrafyrirsunnan Árásimar um helgina komu
Manila. Eftir að hafa tekið lög- tveimur sólarhringum eftir að
reglustjórann til fanga lokuðu þeir Corazon Aquino forseti hvatti
öhum leiöum aö þorpinu. Skæru- sveitarstjóra og borgarstjóra til að
hðarnir stálu vopnum, skotfærum uppræta samtök skæruliða._
írar skotnir til
bana á Gíbraltar
Lögreglan á Gíbraltar skaut í gær
th bana þijá íra sem taliö er að hafi
verið meðlimir í írska lýðveldis-
hernum. Skammt frá þeim stað sem
Irarnir, tveir karlmenn og ein kona,
voru skotnir fann lögreglan síðar bíl
með sprengju og var hún gerð óvirk.
Bílnum hafði verið lagt þar sem
breskir hermenn, sem voru nýkomn-
ir frá Irlandi, ætluðu að taka við
vakt á þriðjudaginn.
Annar karlmannanna var dæmdur
th Qórtán ára fangelsisvistar fyrir að
hafa átt aðild að sprengjuthræði í
Belfast á írlandi árið 1976. Enginn
þremenninganna er sagður hafa ver-
ið á flótta eða eftirlýstur.
Að sögn sjónarvotta stukku lög-
reglumennirnir í gær úr bíl og skutu
einn írann án nokkurrar viðvör-
unar. Tveir íranna voru skotnir við
bensínstöð nálægt flugvelhnum og
sá þriðji á hlaupum þaðan. Sjónar-
vottar töldu ekki ólíklegt að lögreglu-
mennirnir gætu hafa tilheyrt
sérstakri sveit breskra lögreglu-
manna sem berjast gegn stjórnmála-
glæpum. Hóteleigandi nokkur sagði
sérstaka lögreglusveit hafa dvahð á
hóteli sínu undanfama níu daga.
Talsmaður lögreglunnar á Gíbralt-
ar vildi í gær ekki svara neinu um
hvers vegna írarnir hefðu verið
skotnir úr því aö þeir vom óvopnað-
ir.