Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Qupperneq 20
20
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
VEISLUELDHUSIÐ
ÁLFHEIMUM 74
VEISLURÉTTIR
HEITIR 0G KALDIR
sendum hvert sem er - hvenær sem er
SÍMI 685660 og 686220
ÁRTÚNSHOLT
Hef opnað hárgreiðslustofu á Ártúnsholti
Hárgreiðslustofa
Hárgreiðslustofa Agnesar Einars.
Bleikjukvísl 8, neðri hæð, sími 673722.
Einnig opið laugardaga frá kl. 10-14.
Opið fermingardagana og á laugardögum.
PIVOT
pomi
Vönduð leðurlíkis
sófasett
l
Verð 62.630, _ Staðgreiðsluverð 56.367,-
Greiðslukjör allt að 11 mánuðir.
VILDARh/OR
VISA
IrURC
KREPIT
m
láJ JAT'J'JIII
SUÐURLANDSBRAUT 26 - SÍMI 84850
P. O. BOX 8266 - 128 REYKJAVlK
Andlitið að
baki grímunni
Þaö hefur löngum verið svo að þeg-
ar rökin þrýtur er gripið til
skammaryrða og hártogana. Á
þeim nótum hefur hin svokallaða
stúdentapólitík verið í gegnum ár-
in. Þar hafa aursletturnar gengiö á
milli fylkinga svo hinum venjulega
stúdent blöskraöi og hann missti
allan áhuga á slíkum hráskinna-
leik. •
í stað málefnalegrar umræðu um
leiðir í hagsmunamálum stúdenta
var tíma Stúdentaráðs eytt í um-
ræður um þjóðmál og utanríkis-
mál, auk hefðþundins skítkasts.
Á undanfórnum árum hefur þó
verið reynt að færa umræðuna inn
á málefnalegra svið og Vaka, félag
lýðræðissinnaðra stúdenta, hefur
lagt áherslu á að Stúdentaráð eigi
einungis að starfa sem hagsmuna-
félag stúdenta.
„Glæpurinn“
Það lifir samt enn í gömlum glæð-
um og fyrir nokkru geystist Anna
Hildur Hildibrandsdóttir fram á
ritvöllinn og sendi vænan aur-
slettuskammt til greinarhöfundar
og fleiri aðila.
Tilefnið var greinarkorn eitt sem
sá er þetta ritar leyfði sér að þirta
um lánamál stúdenta.
Þar var fyrst vikið að því hlut-
verki lánasjóðsins að tryggja það
að fólk gæti stundað nám óháð
efnahag. Því næst voru færð rök
fyrir því að framfærslugrunnur
lánasjóösins væri óraunhæfur og
að því loknu gerð grein fyrir tillög-
um Vöku til úrþóta. Aö síðustu var
skýrt frá framvindu tillagnanna
hjá vinstri meirihluta Stúdenta-
ráðs sem lét pólitík ganga framar
hagsmunum og felldi ýmis góð
mál, það var ekki hægt að láta
Vöku eiga hugmyndimar.
Sleggjudómar
„Sannleikanum verður hver sár-
reiðastur" og vegna þessa kallar
fyrmefnd Anna Hildur þann er
þetta skrifar „lygara“ og segir
hann „þekkingarlausan og nennu-
lausan“. Forsendur þessa álits
hennar eru þær að greinarhöfund-
ur kallar það að fella tillögur að
svæfa þær í nefnd en Anna Hildur
gerir það ekki.
Vöku sakar hún um að „drepa
námslánaumræðunni á dreif ‘ með
nýjum tillögum og vera aö „þjóna
KjaHarinn
Jónas Fr. Jónsson
laganemi
óvinveittu ríkisvaldi".
Fleira mætti tína til af sleggju-
dómum en lítið fer fyrir málefna-
legri gagnrýni á tillögurnar. Þær
em afgreiddar á þann hátt að þær
séu „ekkert innlegg í hagsmuna-
baráttuna". Rökstuðningur er
enginn.
Ekki er einungis forðast málefna-
lega gagnrýni heldur er ekki einu
orði minnst á aðrar leiðir til úrbóta
frekar en áður hjá vinstri mönnum.
Það er jú alltaf auðveldara að gagn-
rýna og rífa niður en benda sjálfur
á leiðir til úrbóta.
Sjálfdæmi
Á slíkum nótum á málefnabarátt-
an ekki að vera. Ef vinstri meiri-
hlutinn heíði eitthvað til málanna
að leggia væri hann búinn að því
og myndi spara sér gífuryrðin.
Málflutningur á þessum nótum
dæmir sig einfaldlega sjálfur ög
sýnir rökleysi í skýru ljósi.
Þvílík gífuryrði eru einungis til
þess fallin að minnka virðingu
stúdenta fyrir hagsmunafélagi sínu
og þeim sem þar stjórna.
Griman fellur
En það er á fleiri sviðum sem
vinstri menn hafa farið aftur í
gamla byltingarfarið en í grein
Onnu Hildar. Grímudansleiknum í
kringum stofnun Röskvu er nú lok-
ið og þátttakendur í óða önn að
taka niður grímurnar.
Stefnuskrá félagsins er komin út
og þar eru kaflar um utanríkis- og
þjóðmál. Nú á að fara aftur í gamla
farið og „bjarga“ heimsmálunum
eða koma með „tímamóta“álykt-
anir um það sem efst er á baugi í
dægurþrasi stjórnmálanna. Það
þarf aðeins að líta í Bjart, málgagn
Félags vinstri manna, en þar segir:
„Röskva hefur öll meginmarkmið
Félags vinstri manna á stefnuskrá
sinni".
Breytinga er þörf
Eftir viku veröur kosið í Háskól-
anum. Þá velja menn á milli gamla
og nýja tímans. Annars vegar
Vöku, félags lýðræðissinnaöra
stúdenta, sem vill að Stúdentaráð
sinni eingöngu hagsmunamálum
stúdenta og efli félagslíf í Háskól-
anum. Hins vegar Röskvu sem
býður upp á stóryrðapólitík, þjóð-
málaályktanir og baráttu fyrir
„mannréttindum hvar sem er í
heiminum".
Enn hefur Röskva engar tillögur
komið með um leiðir að markmið-
unum en verið þeim mun duglegri
að géfa skít í hugmyndir Vöku. Slík
hagsmunagæsla og svefngengils-
háttur er með öllu óþolandi hjá
vinstri meirihlutanum.
Með því að taka frumkvæði, móta
skýrar og sanngjarnar tillögur,
studdar rökum og staðreyndum,
næst árangur í hagsmunabarátt-
unni. Gífuryrði og aurkast fá engu
áorkað og er þeim einungis til
vansa er slíku beitir.
Jónas Fr. Jónsson
„Þvílík gífuryrði eru einungis til þess
fallin að minnka virðingu stúdenta fyr-
ir hagsmunafélagi sínu og þeim sem
þar stjórna.“
Strákar á kraftmikl-
um kvartmilubílum,
fjölskyldumenn á
öflugum fjallabílum
og fornbílamenn eru
í Lífsstíl á morgun.
Er bíladellan dýr og
fer mikill tími í hana?
Hvers vegna eru
menn að liggja undir
bílunum sínum öll-
um stundum og láta
alla umframpeninga
sína og vel það I
þessa járnfáka? Um
þetta erfjallaðí
Lífsstíl á morgun og
rætt við nokkra bíla-
dellukarlana.
tvvo
'fo'lA.á'íiiclaa
Og meira um
bilamál. í
Lífsstil á morg-
un verður fjall-
að um hækkun
á iðgjöldum
bifreiðatrygg-
inga en bíleig-
endur hafa
veriðaðfá
giróseðla með
ótrúlegum upp-
hæðum. Einnig
verður fjallað
um lögmanna-
nefnd trygg-
ingafélaganna
og hlutverk
hennar.