Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Side 21
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
21
Fréttir
Ráðhúsið við Tjömina
í norskri útgáfu
Páll Vilhjálmsson, DV Ósló:
Nýlega lauk Norðmaðurinn Hans
Olav Andersen prófi við Arkitekta-
háskólann í Osló. Þegar Andersen
leitaði að efni fyrir lokaverkefni
sitt frétti hann af samkeppninni
um ráðhúsiö við Tjörnina í Reykja-
vík. í samtali við blaðamann DV
segir Andersen að hann þekki vel
til íslands, hafi oft komið til lands-
ins og sé auk þess kvæntur ís-
lenskri konu, Sigríði Magnúsdótt-
ur.
„Ég ákvað þess vegna að slá til
og varð mér úti um samkeppnis-
gögnin. í byrjun árs 1987 tók ég til
við að teikna og skilaði teikningum
af ráðhúsi Reykjavíkur til loka-
prófs viö Arkitektaháskólann núna
í haust,“ segir Andersen.
Blaðamaður hitti Andersen á
sýningu sem nýútskrifaðir arki-
tektar héldu í Osló um mánaðamót-
in janúar-febrúar. Á sýningunni
var Andersen bæði með teikningar
og líkön af ráðhúsi við Tjörnina.
Við spurðum hvort harin þekkti til
þeirra deilna sem væru um ráðhús-
bygginguna í Reykjavík.
Jú, Andersen vissi um úlfúðina
út af staðsetningu ráðhússins en
hafði bersýnilega ekki ákveðna af-
stöðu til staðarvalsins. Sagði aðeins
að byggingarlóðin væri falleg frá
sjónarmiði arkitekts.
Andersen teiknaði ráðhúsið sam-
kvæmt forskriftum arkitektasam-
keppninnar. Þó gerði hann tvær
breytingar sem honum þóttu nauð-
synlegar. Annars vegar lét hann
ráðhúsiö allt vera samsíða Tjarn-
arbakkanum og hins vegar bætti
Andersen við ráðhústorgi, en í
samkeppninni var ekki gert ráð
fyrir torgi.
Líkan af ráðhúsinu séð frá Tjarnar-
götu. Aðalsalurinn sést vel og milli
súlnanna er gert ráð fyrir opnan-
legu gleri. Tröppur liggja að lágri
syllu rétt ofan við yfirborð Tjarnar-
innar. Lengst til hægri sést til
ráðhústorgsins með fánastöngum.
„Ráðhústorg er nauðsynlegt
vegna allra þeirra athafna sem eðli-
legt er að þar fari fram: útihátíða-
höld, viðhafnarmóttökur og
fjöldafundir," segir Andersen.
Torgið er staðsett þannig að það
myndar öxul meö Alþingishúsinu
og Norræna húsinu. Með þeim
hætti er ráðhúsið tengt umhverfi
sínu en situr ekki eins og hornkerl-
ing í útjaðri Kvosarinnar.
Andersen teiknaði hringlaga flöt
í Tiarnarkanti torgsins og gerir ráð
Afstöðumynd sýnir stöðu ráðhússins við Tjarnarbakkann. Afstaða ráð-
hústorgsins miðað við Alþingishúsið og Alþingisgarðinn kemur vel i Ijós.
Byggingin til hægri við Aiþingishúsið er áætluð viðbótarbygging þings-
ins.
Hliðin sem snýr að Tjöminni er
að mestu gler sem hægt veröur að
opna á góðviðrisdögum. í salnum
yrði hægt að koma fyrir veisluiang-
borði, sem 150 manns gætu setið
við, eða halda tónleika fyrir rúm-
lega 700 áheyrendur.
Skrifstofur borgaryfirvalda og
annað tilheyrandi eru eftir húsinu
endilöngu, samsíða Vonarstræti.
Stigum og lyftum er þannig kom-
ið fyrir að hægt er að loka aðalsaln-
um án þess að trufla samgang á
milli-annarra hluta hússins.
Þegar nýútskrifaður arkitektinn
er búinn að útskýra fyrir blaða-
manni „sveinsstykkið" sitt er hann
spurður hvers vegna hann hafi
ekki sent teikninguna í samkeppn-
ina.
„Það stóð bara aldrei til,“ segir
Hans Olav Andersen og yppir öxl-
um yfir svona kjánalegri spurn-
ingu.
fyrir að úr miðjunni seytli heitt
vatn sem renni í Tjömina. Heita
vatnið héldi Tiöminni fyrir framan
torgið íslausri á vetmm og fuglar
myndu því lífga upp á umhverfið.
Móðan af heita vatninu hefur tákn-
ræna merkingu, samanber sögnina
um nafngift Ingólfs Arnarsonar á
Reykja-vík.
Norski arkitektinn Hans Olav Andersen við líkan af ráðhúsi sinu. Þekkir
vel tll íslands og íslendinga. Mynd pv
Islenskur innblástur
Það sem vekur mesta athygli við
ráðhúsið sjálft er aðalsalurinn sem
snýr á móti Tjörninni. Salurinn er
í senn hugsaður sem slagæö bygg-
ingarinnar, þaðan liggja gangvegir
til annarra hluta hússins og einnig
getur salurinn verið vettvangur
veisluhalda, myndlistarsýninga og
tónleika.
„íslensk reisn og höfðingjabrag-
ur var mér innblástur þegar ég
fékk hugmyndinga að salnum,"
segir Andersen.
Nýjung. Farþegar Sögu fá í hend-
ur sérstakt afsláttarkort sem gildir
í fjölda verslana og veitingastaða.
CostaDelSol Við leggjum ,áherslu
ál. flokks fjölskylduíbúðir ávöldum
gististöðum, eins og /PRINCIPITO
SOL og SUNSET BEACH CLUB,
sem bjóða upp á fjölbreytta dagskrá
fyrir alla aldurshópa. 2-3 vikur,
íslenskur fararstjóri.
Verð frá 31.005 kr.*
4 í íbúð 37.736 kr.
2 í íbúð 40.492 kr.
FERDASKRIFSTOFAN
Suðurgötu 7
DAGFLUG A FIMMTUDOGUM
S.624040