Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Page 23
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988. 35 Merming tókst leikhópnum þrátt fyrir allt að koma á framfæri aðalinntaki verksins þótt fínni blæbrigði vant- aði. Munaði þar mest um drengilega framgöngu þeirra sem með nokkur helstu hlutverkin fóru. Marta Nordal hefur góða fram- sögn og leikur Sén Te/Sjúí Ta af mildri festu og töluverðum þokka. Hún er tvöfóld í roðinu, leikur til skiptis hina góðu sál, Sén Te, og hörkutóhð, frændann illræmda. Edda Jónsdóttir sýndi blæbrigða- ríkan leik í hlutverki ekkjunnar Sín, og það gustaði af Þórnýju Jó- hannsdóttur, sem lék húseigand- ann, frú Mí Tsý, þótt leikur herinar væri nokkuð einhæfur. Hilmir Snær Guðnason var vask- legur, sem flugmaðurinn atvinnu- lausi, ástmögur Sén Te, en Daníel Ágúst Haraldsson fékk meiri tæki- færi til tjámngar sem lykilpersón- an Vang vatnssali sem stundum virðist standa mitt á milli guða og manna. Leikmynd Grétars Reynissonar er mjög einfóld og næsta nöturleg en búningar eru margir hverjir útfærðir af hugmyndaflugi. Þýðing Þorsteins Þorsteinssonar er vel gerð en textinn gerir miklar kröfur til flytjenda sem komast skiljanlega svolítið misjafnt frá þeirri viður- eign. Hópatriði vg.ru oft skemmtilega útfærð, til dæmis atriði í tóbaks- vinnslunni. Undir öruggri stýringu Þórhalls Sigurðssonar leikstjóra er verkið fært úr sínu kínverska um- hverfi í einhverja ótilgreinda borg. Aðeins nöfnin vísa til upphaflega sögusviðsins. Leikhópurinn gerði sitt besta við þær aðstæður sem'gáfust og yfir sýningunni var ferskur blær leik- gleöi og æsku. En því er ekki að neita að gaman hefði verið að sjá verkið leikið þar sem umhverfi hefði unnið aðeins betur með hópn- um. Herranótt 1988: Góða sálin í Sesúan Hölundur: Bertolt Brecht Tónlist: Paul Dessau o.fl. Þýðandi: Þorsteinn Þorsteinsson Þýðing á söngvum og eftirmála: Briet Héðinsdóttir Leikstjóri: Þórhallur Slgurðsson Leikmynd: Grétar Reynisson Lýsing: Vilhjálmur Hjálmarsson. Því er ekki að neita að stundum hefur virst sem ofdirfska réði ferð- inni þegar MR-ingar hafa valið sér verkefni til flutnings á Herranótt. Leikrit Bertolts Brechts, Góöa sálin í Sesúan, sem í ár er flutt af leik- hópnum, er sannarlega ein af perlum leikbókmenntanna og stendur fyrir sínu hvar og hvenær < sem er. í fyrra var ráðist til atlögu við sjálfan Shakespeare á Herranótt og • leikrit hans, Rómeó og Júlía, sýnt í Félagsstofnun. Það húsnæði er kannski ekkert til að hrópa húrra fyrir en engu að síður hefur oft tek- ist mjög vel til með ýmsar leiksýn- ingar sem þar hafa hlotið húsaskjól í áranna rás. Herranótt hefur löngum verið á hrakhólum með húsnæði og fékk að þessu sinni inni í Tjarnarbíói hinu forna sem svo sannarlega má muna sinn tífil fegri. Það var fyrir margt löngu að þar fóru fram rómaðar sýningar leik- félagsins Grímu. En því er ekki að leyna að þrátt fyrir vasklega fram- göngu margra hinna ungu leikenda fannst mér nöturlegt húsnæðið spilla að nokkru fyrir sýningunni. Það er bæði synd og skömm að þessi vandaða leikstarfsemi MR- inga skuli gjalda fyrir aðstöðuleys- ið, en sé horft fram hjá þeim vanköntum sem umhverfið skap- aði var kvölðstundin með MR- ingum einkar ánægjuleg eins og fyrri daginn. Góða sálin í Sesúan er marg- slungin saga þó einföld sé á ytra borði. Sjálfan söguþráðinn mætti kalla dæmisögu en höfundur hefur Úr góðu sálinni í Sesúan. Ein síðan burði til aö gegnumlýsa mannlegt samfélag og breyskleika mannanna innan þess ramma sem söguefni gefur honum. Hver er góður? Er nokkur algóð- ur? Hin æöstu máttarvöld virðast ekki í vafa um að algóðar mann- eskjur eigi og verði að finnast á jörðinni. Þrír guöir eru gerðir út af örkinni og skulu þeir finna að minnsta kosti eina góða sál í heiminum. Leitin reynist þeim erflð og þeir eru góð að niðurlotum komnir þegar þeir. flnna loks eina manneskju sem er Leiklist Auður Eydal tilbúin til að skjóta skjólshúsi yfir þá. En rís þessi góða sál, gleðikonan Sén Te, undir því í hörðum heimi, sál að vera algóð? Hún kemst fljótt að því að með velgengninni koma afæturnar og stefna öllu í voða. Og hún kann engin ráð önnur betri til þess að bjarga málum en að bregða sér í gervi tilbúins „frænda" síns sem verður fljótlega illræmdur fyr- ir harðýðgi og miskunnarleysi. Með þetta samspil góðs og ills leikur Brecht sér af mikilli snilli og er varla Von til þess að allt kom- ist til skila í svo styttri útgáfu sem leikin var á Herranótt. En furðuvel FERÐASKfllFSTOFA FÍB MMHfFDA, IFMIOtíBII! Þjónusta okkar er öllum opin. Hjá Ferðaskrifstofu FÍB sérhæfum við okkur í flugi og bíl, einfaldlega vegna þess að þar getum við boðið þér vel. Vegna traustra tengsla okkar við ýmis systursamtök í Evrópu getum við boðið þér hagstæð bílaleigukjör eða flutning á eigin bíl, sé þess óskað; vandaða gistingu og skemmtilegar ökuleiðir. Viljirðu njóta frísins í flugi og bíl, hafðu þáfyrstsamband við okkur. Við finnum með þér vænlegustu kostina, - í ánægjulegtfrí, nákvæmlega að þínum óskum. FERÐASKRIFSTOFA FÍB BORGARTÚNI 33 105 RVK SlMAR 29997 & 622970

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.