Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Síða 34
46
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
T.ífegtíll
Island:
Stéttlaust
þjóðfélag
eða hvað?
„Á íslandi býr ein þjóð og ein
stétt!“ Þetta er slagorð sem í háveg-
um er haft um ísland og þegna þess.
En er það svo?
Vissulega eru menn ekki fordæmd-
ir hér eftir litarhætti, a.m.k. ekki í
lögum, stærð eða uppruna en launa-
lega séð virðist vera um mikla stétta-
skiptingu að ræða. Konur virðast
yfirleitt vera í láglaunastörfum og er
það, að sögn kvenréttindakvenna,
vegna þess að konur eru yfirleitt
taldar aukafyrirvinnur heimilisins
og þvi sé þeim ekki þörf á jafnháum
launum og körlunum sem opinber-
lega eru taldir fyrirvinnur fjölskyld-
unnar. Sem kunnugt er skipast veður
oft svo í lofti að konur eru einu fyrir-
vinnur heimila sinna, eins og gengur,
og því er ekkert skrítið þó fólk viiji
forstjóri álversins: forstjóri SÍS: forstjóri Flugleiða: kaupfólagsstjóri KEA: dóttir kaffiumsjónarkona: fiskvinnslukona:
473.000 krónur á mánuói. 378.000 krónur á mánuði. 357.000krónur á mánuói. 378.000 krónur á mánuði. 34.878 krónur á mánuði. 32.600 krónur á mánuöi.
ekki una slíkum útskýringum.
En munurinn milli karla og
kvenna í sambærilegum stöðum er
þó ekki umtalsverður þegar skoðaö-
ur er munurinn milli stétta og þá
ekki síöur yfirmanna og undir-
manna. Hér á síðunni sjáum við
línurit yfir laun nokkurra hæst laun-
uðu forstjóranna í landinu, miðað við
laun venjulegra launþega. Þess skal
getið að laun forstjóranna liggja ekki
á lausu. Tekið er miö af útsvari,
greiddu í júlí á6, og launin, miöuð
við útsvarsgreiðslur, framreiknuð til
febrúarlauna 88. Kaup Guðjóns B.
Ólafssonar er til dæmis reiknað út
frá útsvarsgreiðslum Erlends Ein-
arssonar, fyrrum forstjóra Sam-
bandsins, og þær framreiknaðar til
dagsins í dag. Þá er að sjálfsögðu
ekki innifalið risnur, bílastyrkir,
húsnæðisstyrkir og hvað þetta heitir
nú, allt saman, þannig að launin eru
sjálfsagt ekki ofreiknuð.
Kaup verkafólksins er hins vegar
miðað við febrúargreiðslur og koma
þá nýgerðir kjarasamningar ekki inn
í dæmið.
-ATA
Forstjórarnir næðu ekki þeim
afköstum sem við þurfum að ná
- segir Klara Sigurðardóttir sem vinnur í fiski hjá Granda í Reykjavík
Þegar KJara var spurð hvaða kaup
hún héldi að þeir launahæstu i þjóð-
félaginu heíðu hristi hún höíúðið og
sagðist ekki hafa hugmynd um það:
„Kannski svona tvö til þrjú hundruð
þúsund." Þegar hún heyrði að hæstu
launin losuðu tæplega hálfa mfiljón
varð hún hlessa.
„Þessi munur er mjög ósanngjam.
Það er kannski eðlilegt að ekki hafi
allir sama kaup en svona mikill
munur er óeðlilegur. Þessir karlar
gætu áreiðanlega ekki náð þeim af-
köstum sem við þurfum að ná í
Klára Sigurðardóttir - vinnur allan daginn hörðum höndum og er með
32.600 krónur á mánuði eftir tíu ára starfsreynslu. DV-mynd KAE
fiskinum. Það á að jafna launin tekjusköttum," sagði Klara Sigurð-
meira, til dæmis með auknum há- ardóttir. -ATA
„Grunnlaunin mín eru 32.600 krón-
ur á mánuði og ef bónusinn er góður
nær kaupið kannski 40 þúsund krón-
um eftir heilan og erfiðan vinnumán-
uð,“ sagði Klara Sigurðardóttir sem
vinnur í fiski hjá Granda í Reykjavík.
„Kaupið mitt nægir engan veginn
til að endar nái saman. Sextíu þús-
imd krónur á mánuði eru algert
lágmark til að það takist," sagði
Klara.
Tíðarandi
Hef ekkert um
þetta öfundar-
nagg að segja
„Ég hef ekkert
um þetta öfimdar-
nagg ykkar sná-
panna að segja,“
sagði Ragnar
Halldórsson, for-
sijóri Álversins, er
DV bar undir hann
hvort hann teldi
Iaunamismuninn,
sem fram kernur á
línuritinu á síð-
unni, eðlilegan.
Er hann var
spurður hvort þær
launatölur, sem
upp eru gefnar,
væru réttar svar-
aði hann: „Ég segi
ekkert um það. Þið
getið bara leikið
y|$j0§:áfram að út- ________________________________________
svarstölunum mín Ragnar Haildórsson, lorstjóri Aiversins, vildi
vegna.“ ekkert segja við blaóamann og kaliaóí þessar
-ATA umræóur öfundamagg blaóasnápa.
Árslaunin mín ná ekki mán-
aðariaunum forstjóranna
- segir Bjamveig Sigurbjómsdóttir kaffiumsjónarkona
„Það gengur engan veginn að
láta enda ná saman þó ég sé ein í
heimih. Þess vegna verð ég að taka
að mér skúringar efdr vepjuiegan
vinnudag. Þannig rétt tekst mér að
skrapa saman fimmtíu þúsund
krónum á mánuði sem eru klárlega
neðstu mörk þess sem hægt er að
lifa af,“ sagði Bjamveig Sigur-
bjömsdóttir, kaffiumsjónarkona í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Hún hefur niu ára starfsreynslu
sem kaffiumsjónarkona og ber úr
býtum 34.878 krónur á mánuði fyr-
ir allt puðið.
„Ég reyki, en það er það eina sem
ég leyfi mér. Ég fer ekkert á böll
eða skröll og kannski í bíó svona
tvisvar á ári. En matur, afborganir
af íbúðinni og lánum hreinsa upp
allt kaupið mitt og meira til. Eg
verð sífellt að ýta á undan mér
ýmsum greiðslum," sagði Bjam-
veig.
Bjamveig sagðist ekki geta
ímyndað sér hvað þeir hæst laun-
uðu í þjóðfélaginu fengju úr
launaumslögunum sínum en er
hún heyrði það sagði hún:
„ Ja, þetta era ágætis tekjur. Mán-
aðarlaunin eru eins og árstekjum-
ar mínar þegar best lætur. Þetta
er óheyrilega mikill launamismun-
ur og mér finnst að það mætti nota
eitthvaö af þessum háu launum til
að hækka þá lægst launuðu. Þaö
er engin öfund í mér þó ég segi að
mismunurinn sé óréttlátur.
Ef ég hefði svona há laun myndi
ég byxja á þvi að draga úr vinnunni
og slaka aðeins á. Vinnuálagið hjá
mér er byijað að eyðileggja skrokk-
inn og ég þarf að fara í sjúkraþjálf-
un reglulega til að halda mér við,“
sagði Bjarnveig Sigurbjömsdóttir.
-ATA
Bjarnveig Sigurbjörnsdóttir. Hún streðar með þunga bakkana, sem lýja
líkamann, allan daginn og hefur upp úr krafsinu 34.878 krónur á mán-
uði eftir níu ára starfsreynslu. DV-mynd KAE