Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Page 37
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988. 49 Sviðsljós Graininy-verðlaunin: Michael Jackson fékk engin Þaö kom engum á óvart að Whitney Houston 'fengi grammy-verðlaunin sem besta söngkona ársins að þessu sinni. Símamynd Reuter Grammy-verðlaunin vinsælu voru veitt með viðhöfn fyrir stuttu. Ýmsar vangaveltur höfðu verið uppi um verðlaunahafa þessa árs og var Mic- hael Jackson talinn líklegur, enda stjarna síðustu verðlaunaafhending- ar þar sem hann fékk 8 verðlaun. En verðlaunaafhendingin varð hon- um mikil vonbrigði því hann fékk engin, þess í stað dreifðust þau nokk- uð jafnt á þekkta listamenn. Mest áberandi voru líklega meðlimir írsku hljómsveitarinnar U2 en þeir fengu grammy-verðlaunin fyrir bestu plötu ársins og voru kosnir besta rokk- hljómsveit ársins. Bruce Springsteen fékk verðlaunin sem besti karlsöngvarinn. Whitney Houston, sem virðist vera fastagest- ur núorðið við allar tónlistarverð- launaafhendingar, fékk verðlaunin sem besti kvensöngvari eins óg búist hafði verið við. Hinn rússneskættaði Vladimir Horowitz, sem er á níræðisaldri, fékk sérstök viðurkenningarverðlaun fyrir það framlag sem hann hefur veitt tónlistinni. Hann sagði við þá athöfn að hann fagnaði því að klass- íkin skyldi enn halda vinsældum sínum í heiminum. Fyrir bestu djassplötu ársins fékk trompetleikarinn Wynton Marsalis verðlaunin í annað sinn á ferlinum. Meðlimir U2 fengu enn eina viðurkenninguna þegar þeir fengu grammy-verðlaunin sem besta hljómsveit ársins og auk þess verðlaunin fyrir bestu plötu ársins, „The Joshua Tree". Simamynd Reuter Simamynd Reuter Hertogaynjan af York, líkt og annað kóngafóik og allt-að-því kóngafólk, er mikið á ferðinni. í síðustu viku heimsótti hún áhöfn bandaríska flugmóður- skipsins USS Nimitz og lífgaði ofurlítið upp á tilveruna hjá þeim sem þar kúldrast. Þótt flugmóðurskip séu orðin líkust fljótandi borgum og þar sé að flnna flest þægindi og afþreyingu sem borgir bjóða upp á þótti áhöfninni samt fengur að heimsókninni enda engir jafnhrifnir af kóngafólki og Banda- ríkjamenn. Raunar má segja að þeir hafi á aðalsfólki barnslega aðdáun og í samræmi við það gáfu þeir líka hertogaynjunni bangsa að skilnaði. Fiskikonungurinn Gylfi Ingason matreiðslumeistari sér um fiskinn í Kjötmiðstöðinni Garðabæ Alltaf það allra besta Opið kl. 08.00-19.00 daglega kl. 08.00-20.00 föstudaga kl. 08.00-18.00 laugardaga mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm KJÖTMIÐSTÖÐIN GARÐABÆ, SÍMI 656400 t (i J11 \ 1 t-f-í i; > i t 11 >i t i /'ny?s n . ?i i a; v t ,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.