Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Blaðsíða 40
52
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
Fólk í fréttum
Eysteinn Helgason
Eysteinn Helgason viöskipta-
fræöingur hefur verið í fréttum DV
vegna brottvikningar hans úr for-
stjórastarfl Iceland Seafood. Ey-
steinn er fæddur 24. september 1948
í Rvík og lauk viöskiptafræðiprófl
frá HÍ1973. Hann var sölustjóri hjá
Sölustofnun lagmetis í Rvík
1973-1975 og framkvæmdastjóri
þar ásamt Gylfa Þór Magnússyni
1975- 1978. Eysteinn var í stjórn
Handknattleiksdeildar Víkings
1976- 1977 og formaður 1977-1980.
Hann var framkvæmdastjóri Sam-
vinnuferða hf. 1978 og Landsýnar
hf. 1979 og framkvæmdastjóri Sam-
vinnuferða-Landsýnar hf. frá
stofnun til 1984.
Eysteinn vann að ýmsum verk-
efnum fyrir SÍS í Bandaríkjunum
1984-1985 og verkefnum til undir-
búnings framtíðarstarfs hjá Ice-
land Seafood í Bandaríkjunum hjá
sjávarafurðadeild SÍS í Rvík 1. sept-
ember 1985 - 1. september 1986.
Eysteinn var forstjóri Iceland Sea-
food í Camp Hill i Pennsylvaniu í
Bandaríkjunum 1. september 1986
- 24. febrúar 1988.
Eysteinn kvæntist 20. nóvember
1971 Kristínu Rútsdóttur, f. 21.
mars 1947. Foreldrar hennar eru
Rútur Skæringsson, trésmiður í
Vík í Mýrdal, og kona hans, Guð-
björg Jónsdóttir. Börn Eysteins og
Kristínar eru Kristín Björg, f. 9.
mars 1972, Helgi Ingólfur, f. 14.
apríl 1976, og Helga Rut, f. 18. sept-
ember 1981.
Systkini Eysteins eru Matthildur,
f. 20. desember 1950, gift Tómasi
Óla Jónssyni, starfsmanni Útflutn-
ingsráðs í Hamborg, og Guðleif, f.
21. október 1956, hjúkrunarkona,
gift Haraldi Sigurðssyni, í fram-
haldsnámi í augnskurðlækningum
í London.
Foreldrar Eysteins eru Helgi Ey-
steinsson, framkvæmdastjóri
Verslunarinnar Geysis, og kona
hans, Kristín Olga Jónsdóttir. Helgi
er sonur Eysteins, sjómanns í
Hafnarfirði, Jakobssonar, b. í
Hraunsholti í Garðahreppi, Gunn-
arssonar, b. á Hofi á Höfðaströnd,
Guðmundssonar, b. á Hrafnagili,
Gunnarssonar, b. á Skíðastöðum,
Gunnarssonar, ættfóður Skíða-
staðaættarinnar. Gunnar á Skíða-
stöðum var faðir Sigríðar,
langömmu Péturs, föður Sigurjóns
borgarfulltrúa. Móðir Jakobs var
Sigurlaug Þorvaldsdóttir, b. á Skef-
ilsstöðum, Gunnarssonar, bróður
Guðmundar á Hrafnagili, fóður
Eggerts, afa Pálma á Akri og Ingi-
bjargar, móður Magnúsar Jóns-
sonar frá Mel, ráðherra.
Móðir Helga var Matthildur
Helgadóttir, formanns á Flateyri,
Andréssonar, b. í Hvilft í Önundar-
firði, Sakaríassonar. Móðir Matt-
hildar var Helga, systir Guðbjarg-
ar, ömmu Valdimars yfirflugum-
ferðarstjóra og Gests,
skipulagsfræðings Ólafssona.
Helga var dóttir Björns, b. í Hvilft,
Sakaríassonar, bróður Andrésar.
Kristín er dóttir Jóns, sjómanns
í Rvík, Pálssonar, b. á Vallarhúsum
á Miðnesi, Jónssonar, b. á Prests-
bakka á Síðu, Pálssonar. Móðir
Jóns var Margrét Höskuldsdóttir.
Móðir Margrétar var Margrét Sím-
onardóttir, b. á Fossi á Síðu, bróður
Magnúsar, langafa Helga, föður
Jóns ráðherra og Margrétar, konu
Erlends Einarssonar, fv. forstjóra
SÍS. Símon var sonur Jóns, b. og
hreppstjóra á Kirkjubæjarklaustri,
Magnússonar og konu hans, Guð-
rúnar Oddsdóttur, systur Guðríð-
ar, langömmu Helga Bergs, föður
Helga Bergs, bankastjóra Lands-
bankans.
Móðir Kristínar var Guðleif Ól-
afsdóttir, vinnumanns á Hamri í
Borgarhreppi, Jónssonar. Móðir
Ólafs var Guðrún Guðmundsdóttir,
b. á Ferjubakka, bróður Guð-
brands, langafa Guðbrands ís-
bergs, afa Arngríms ísbergs
sakadómara. Guðmundur var son-
ur Magnúsar, b. í Tungu í Hörðu-
dal, Guðbrandssonar, b. í Tungu,
Hannessonar, prests á Staðar-
bakka, Þorlákssonar, sýslumanns
í Súðavík, Guðbrandssonar, sýslu-
manns á Auðnarstöðum, Arn-
grímssonar lærða Jónssonar.
Móðir Guðleifar var Helga Jó-
hannsdóttir, b. á Laxfossi í Staf-
holtstungum, Jónssonar og konu
hans, Guðríðar Björnsdóttur.
Afmæli
Aðalsteinn IngóHsson
Aðalsteinn Ingólfsson, ritstjóri
menningarmála DV, er fertugur í
dag. Aðalsteinn fæddist á Akur-
eyri, varð stúdent frá M.L. 1967 og
var við nám í enskum bókmennt-
um og málsögu með heimspeki og
listasögu sem aukagreinar við St.
Andrews í Skotlandi frá 1967 en
M.A.-prófi lauk hann 1971. Hann
stundaði nám viö British Institute
of Florence á Ítalíu í ítölsku og 15du
aldar myndlist frá 1971-72 og lauk
M.A.-prófi í listasögu með nútíma-
list sem sérgi-ein 1974 frá Courtauld
Institute, University of London.
Aðalsteinn kenndi við University
of Maryland á Keflavíkurflugvelli,
við Academia Militare í Flórens,
viö H.í. og við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands. Aðalsteinn var
listagagnrýnandi Vísis 1974-75 og
DB frá 1975, ritstjóri menningar-
mála DB 1979-81 og DV frá 1985.
Aðalsteinn hefur annast þátta-
gerð í Ríkissjónvarpinu .og var
framkvæmdastjóri Kjarvalsstaöa
1976-78. Helstu rit: Óminnisland,
ljóð, 1971; Gengið á vatni, ljóð og
þýðingar 1975; Islensk grafik, 1979;
Leonardo, 1981; Eiríkur Smith,
1983; Jóhannes Geir, 1985 og Kristín
Jónsdóttir, 1987.
Kona Aðalsteins er Janet Shep-
herd ritari, f. 18.3.1945, dóttir Ians
Shepherd, fv. deildarstjóra í breska
varnarmálaráðuneytinu, og konu
hans, Eileen Shepherd.
Börn Aðalsteins og Janet eru:
Elva Brá, f. 11.7.1977; Signý, f. 29.11.
1979, og Drífa, f. 25.12. 1982.
Systkini Aðalsteins eru: Ólafur
Örn, forstöðumaður hagfræði-
deildar Landsbankans, f. 9.6. 1951,
kvæntur Ingibjörgu Guðmunds-
dóttur; Birgir, auglýsingateiknari
hjá Auglýsingastofunni Yddu, f.
23.1. 1953, kvæntur Auði Jósefs-
dóttur; Ásrún, hjúkrunarfræðing-
ur á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði,
gift Magnúsi Snæbjörnssyni raf-
magnsverfræðingi; Leifur, nemi í
Ytri-Njarðvík, f. 6.9. 1960, og Atli,
tónlistarmaður við framhaldsnám
á Ítalíu, f. 21.8. 1962.
Foreldrar Aöalsteins: Ingólfur
Aðalsteinsson veðurfræðingur, nú
framkvæmdastjóri Hitaveitu Suð-
urnesja, og kona hans, Ingibjörg
Ólafsdóttir. Faðir Ingólfs var Aðal-
steinn, b. í Brautarholti íHaukadal,
Baldvinsson. Móðir Ingólfs var
Ingileif Björnsdóttir, b. í Brautar-
holti, Jónssonar. Móðir Ingileifar
var Guðrún Ólafsdóttir, b. á Vatni,
Brandssonar og konu hans, Katrín-
ar, systur Skarphéðins, fóður
Friðjóns, fv. ráðherra, og Pálma,
föður Guðmundar jarðeðlisfræð-
ings, og Ólafs, bókavarðar Seðla-
bankans. Katrín var dóttir Jóns, b.
í Stóra-Galtardal, Þorgeirssonar og
konu hans, Halldóru Jónsdóttir, b.
á Breiðabólstað á Fellsströnd,
Jónssonar. Systir Halldóru var
Hólmfríður, langamma Ingibjarg-
ar, ömmu Ingibjargar Haraldsdótt-
ur rithöfundar. Systir Halldóru var
einnig Steinunn, langamma Auðar
Eydal, forstöðumanns Kvikmynda-
eftirlits ríksins. Bróðir Halldóru
var Þórður, langafi Friðjóns Þórð-
arsonar alþingismanns og Gests,
föður Svavars alþingismanns.
Ingibjörg er dóttir Ólafs, kaup-
félagsstjóra á Vopnafiröi, Metúsal-
emssonar, gullsmiðs á Burstarfelli
í Vopnafirði, Einarssonar. Móðir
Ingibjargar var Ásrún Jörgens-
dóttir, b. á Krossavík, Sigfússonar,
b. á Skriðuklaustri, Stefánssonar,
prófasts á Valþjófsstað, Árnasonar.
Móðir Ásrúnar var Margrét, systir
Gunnars, afa Gunnars rithöfundar.
Margrét var dóttir Gunnars, b. á
Brekku í Fljótsdal, Gunnarssonar
og konu hans, Guðrúnar Hall-
grímsdóttur, b. á Stóra-Sandfelli,
Ásmundssonar, afa Jóns skálds og
Páls skálds Ólafssona.
Til hamingju
með daginn!
vegi 76, Reykjavík, er fimmtugur í
dag.
Sólveig Felixdóttir, Sóltúni 7,
Keflavík, er fimmtug í dag.
Sigrún Friðriksdóttir, Svarfaðar-
braut 3, Dalvík, er fimmtug í dag.
90 ára
María Emilsdóttir, Stóragerði 6,
Reykjavík, er níræð i dag.
85 ára
María Guðmundsdóttir, Hlíðarvegi
16, Bolungarvík, er áttatíu og fimm
ára í dag.
75 ára
Sveinbjörg Hinriksdóttir, Eikju-
vogi 12, Reykjavík, er sjötíu og
fimm ára í dag.
Sæunn Halldórsdóttir, Miðdal,
Mosfellssveit, er sjötíu og fimm ára
í dag.
70 ára
Benedikt Einarsson húsasmíða-
meistari, Tunguvegi 19, Reykjavík,
er sjötugur í dag.
Sigurbjartur Guðjónsson, Hávarð-
arkoti, Djúpárhreppi, er sjötugur í
dag.
60 ára
Hallgrímur Jónasson, Hólmum,
Skútustaðahreppi, er sextugur í
dag.
50 ára
Sonja Lúðvíksdóttir, Háagerði 18,
Reykjavík, er fimmtug í dag.
Sigurgeir Kjartansson, Langholts-
40 ára
Reynir Jósepsson, Dúfnahólum 4,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Ingvar Einarsson, Jörfabakka 4,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Rósalía Moro Rodriquez, Hjalla-
braut 37, Hafnarfirði, er fertug í
dag.
Halldór Runólfsson, Sunnuhvoli,
Mosfellsbæ, er fertugur í dag.
Sigurður Kristinsson, Grímsstöð-
um III, Reykholtsdalshreppi, er
fertugur í dag.
Steinn Ástvaldsson, Víðigrund 22,
Sauðárkróki, er fertugur í dag.
Sigríður Valdimarsdóttir, Hellu-
hrauni 5, Skútustaðahreppi, 'er
fertug í dag.
Tómas ísleifsson, Skógum, kenn-
arabústað II, Austur-Eyjafjalla-
hreppi, er fertugur í dag.
]
Bogi Jonsson
Bogi Jonsson, bondi að Gljúfra-
borg í Breiðdalshreppi, er áttatíu
og fimm ára í dag. Bogi fæddist að
Hóli í Breiðdal og ólst þar upp hjá
foreldrum sínum. Hann stundaði
öll almenn sveitastörf á unglings-
árunum, var á síld á Siglufirði og
síðan vinnumaður til sveita á ýms-
um búum á Suðurlandi. Bogi keypti
svo hluta af jörðinni Þverhamri og
reisti sér þar nýbýlið Gljúfraborg
1940, en þar hefur hann búið síðan.
Bogi átti fimm systkini en á nú
einn bróður á lífi. Sá er Stefán,
leigubílstjóri í Reykjavík, f. 1912,
ekkill eftir Ragnhildi Þorvaldsdótt-
ur, en þau eignuðust þrjár dætur.
Systkini Boga, sem nú eru látin,
voru: Bjarni, b. á Hóli og á Dísar-
stöðum og síðar á Óseyri á Stöðvar-
firði, f. 1891, en hann var kvæntur
Elísabetu Sigurðardóttur sem
einnig er látin og eignuðust þau
fimm börn; Anna kennari, f. 1893,
en eftirlifandi maður hennar er
Sveinn Brynjólfsson, b. á Þver-
hamri, og eignuðust þau þrjú börn;
Guðný sem var vinnukona og starf-
aði síðan í Reykjavík, f. 1898, d.
1987, en hún eignaðist eina dóttur;
Guðlaug Björg sem starfaði lengst
af á Vífilsstöðum, f. 1904, d. 1977.
Foreldrar Boga voru Guðbjörg
Bjarnadóttir, f. á Freyshólum á
Skógum á Fljótsdalshéraði, og Jón
Halldórsson, b. á Kelduhólum og
síðar aö Hóli. Móðurforeldrar Boga
voru'Bjarni Bjarnason, b. á Freys-
hólum, og Salný Jónsdóttir.
Föðurforeldrar Boga voru Halldór
Jónsson, b. á Eyvindará, og Anna
Óladóttir frá Útnyrðingsstöðum.
Bogi dvelur þessa dagana á
Sjúkrahúsinu í Neskaupstað.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og að-
standendur þeirra til að senda því
myndir og upplýsingar um frænd-
garð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast
í síðasta lagi tveimur dögum
fyrirafmælið.
Munið að senda okkur myndir
Andlát
Soffía Bogadóttir frá Brúarfossi
lést í Sjúkrahúsi Akraness 4. mars.
Guðmundur Ingvarsson, Ægis-
braut 5, Búðardal, lést 4. mars.
Ingunn Björnsdóttir, Svínafelli í
Öræfum, lést í Landspítalanum 4.
mars.
111JJ11 r 11 j j <
I" i (-1
M i'Ml