Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Blaðsíða 44
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- þá l slma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað f DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
RItst|örr» Auglýsí«gar - Áskrlft - Oreffís'íQ: Símí 2T022
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
Sambandsmál:
Leitað að
lausn málsins
um helgina
Valur Arnþórsson, stjórnarfor-
maður Sambandsins, og Guðjón B.
Ólafsson forstjóri áttu saman fund á
laugardag. Samkvæmt heimildum
DV ræddu þeir ekki hvað síst um
með hvaða hætti Guðjón skyldi koma
sínum málum á framfæri við fjöl-
miðla. Valur mun hafa lagt áherslu
á aö Sambandsmenn legðust á eitt
um að draga úr þeirri athygli sem
mál þeirra hafa fengið að undan-
fornu. Niðurstaða þessa fundar var
sú að Guðjón mætti í sjónvarpssal
___og gerði grein fyrir sínum sjónarmið-
um. Að því loknu skyldu Sambands-
menn vera sparir á yfirlýsingar við
fjölmiðla.
Valur Arnþórsson hefur verið í
stöðugu sambandi við stjómarmenn
um helgina. Samkvæmt heimildum
DV mun mál Eysteins Helgasonar fá
afgreiðslu á vanabundnum fundi
stjómar í endaðan mars og er ekki
búist við að niðurstaða þess fundar
veiki á nokkurn hátt stöðu Guðjóns
B. Ólafssonar.
„í fyrsta lagi var ekki um fund að
's-ræða heldur hittumst við Guðjón
eins og forstjóri og stjórnarformaður
gera gjaman. í öðm lagi var ekki um
neitt samkomulag að ræða. Ef menn
ættu að komast að samkomulagi
þyrfti að vera um eitthvað að semja.
En það er ekkert ósætti milli mín og
Guöjóns," svaraði Valur Arnþórs-
son, stjórnarformaður Sambandsins,
aðspurður um hvort þeir Guðjón B.
Ólafsson forstjóri hefðu komist að
einhverju samkomulagi á fundi
þeirra á laugardag.
-gse
Telpa mikið slösuð
Þriggja ára gömul telpa höfuð-
kúpubrotnaði, mjaðmargrindar-
brotnaði og hlaut auk þess fleiri
meiðsl er hún varð fyrir bíl á Skúla-
götu í gærkvöldi.
Það var laust eftir klukkan 21 að
bifreið var ekið vestur Skúlagötu.
Þegar bifreiöin var á móts við hús
númer 57 hljóp telpan út á götuna.
Ökumaöur bílsins gat ekki afstýrt
því að telpan yrði fyrir bílnum. Hún
missti meðvitund við höggið og var
flutt á sjúkrahús. -sme
Bílstjórarnir
aðstoða
3§3@
senDiBíLnsTöÐin
LOKI
Þaö væri gaman aö skála
við þessar frístældömur!
Fundir um nýju kjarasamning- á Sauðárkróki voru samningarnir í dag verður haldinn formanna- samþykkt yrði að fela forystu
ana voru haldnir í verkalýðsfélög- felldir með miklum atkvæðamun. fundur hjá Alþýöusambandi Verkamannasambandsins samn-
uninn víða um land á laugardag Enginn sem DV hefur rætt við Austurlands og sagðist Hrafnkell ingsumboð eftir það sem á undan
og sunnudag og þeir voru alls staö- þorir að spá um hvert framhaldiö A. Jónsson, formaöur Árvakurs, á er gengið.
arfelldirnemaíBúðardal.þarvoru verður. Guðmundur J. Guðmunds- Eskifirði ekki þora að spá neinu í dag verða líka fundir hjá Sam-
þeir samþykktir. . son, formaður Verkamannasam- umhvaðnúveröurtekiðtílbragðs. bandi fiskvinnslustöðva og forystu
í félögunum á Egilsstöðum, Reyð- bandsins, sagöi að um miðja Hann sagöist áiíta að tíl greina Sambandsfrystihúsanna, þar sem
arfirði, Eskifiröi, Neskaupstað, vikuna yrði kallaður saman fram- kæmi að mynda samstöðu með fjallaö verður um kjarasamning-
Akranesi, Borgarnesi, Ólafsvík, kvæmdastjórnarfundur í sam- þeim félögum sem fellt hafa samn- ana.
Hellissandi og í báðum félögunum bandinu. ingana. Hann sagöist efast um að ‘ -S.dór
Alþjóðleg keppni í frjálsri greiðslu var haldin á Hótel Islandi i gær. Margar
frumlegar hárgreiðslur mátti sjá í keppninni enda á fjórða tug keppenda i
fjórur.i keppnisflokkum. Svanfríður Magnúsdóttir frá Dandý varð í fyrsta
sæti í hárgreiðslu meistara og sveina og Anna María Valdimarsdóttir frá
Hár í höndum í hárskurði meistara og sveina. Viðar Völundarson frá Salon
Veh varð í fyrsta sæti í hárgreiðslu nema og Guðrún Benediktsdóttir frá
Villa Þór í hárskurði nema. -JBj/DV-mynd KAE
Danska skipið Kongsaa kynsett:
Beðið eftirtuttugu
milljóna tiyggingu
Danska skipið Kongsaa, sem Stál-
vík dró til hafnar á Seyðisfirði fyrir
helgina, hefur nú verið kyrrsett. Það
var gert að ósk lögmanns Þormóðs
ramma, sem gerir út Stálvíkina, og
verður Kongsaa í farbanni þar til
lögð hefur verið fram tuttugu millj-
óna króna trygging fyrir björgunar-
launum og skemmdum sem urðu á
Stálvíkinni.
Skipstjóri Kongsaa og útgerðarfé-
lag þess vildu meina að engin hætta
hefði steðjað að skipinu þegar Stálvík
tók það í tog og því beri þeim ekki
að greiða björgunarlaun.
Sjóréttur var haldinn í málinu á
Seyðisfirði í gær og að honum lokn-
um var haldinn fógetaréttur sem
féllst á beiðni lögmanns Þormóðs
ramma um kyrrsetningu.
„Þeir útvega sér þessa tryggingu í
dag og svo geta þeir siglt," sagði Rób-
ert Guðfinnsson, framkvæmdastjóri
Þormóðs ramma, í samtali við DV í
morgun.
„Svo er næsta skref að lögmaður
minn og lögmaður danska útgerðar-
félagsins reyna að ná samkomulagi
um greiðslu björgunarlauna og
hversu háar þær verða. Nái þeir ekki
samkomulagi fer málið fyrir Bæjar-
þing Reykjavíkur," sagði Róbert
Guðfinnsson.
-ATA
Vestmannaeyjar:
Höfhuðu beiðni um að
fresta verkfallinu
„Okkur barst beiðni frá atvinnu-
rekendum um að fresta verkfallinu
ótímabundið. Við tókum þessa
beiðni fyrir í gær og höfnuðum
henni alfariö,“ sagði Vilborg Þor-
steinsdóttir, formaður Verka-
kvennafélagsins Snótar í
Vestmannaeyjum, í samtali við DV
í morgun.
Hún sagði að máiið væri nú alfar-
ið í höndum sáttasemjara en
enginn sáttafundur hefði enn verið
boðaður. Til tals hefði komið að
sáttasemjari kæmi til Eyja eða
skipaði mann í sáttasemjarahlut-
verkið.
í Vestmannaeyjum eru 320 til 350
konur nú í verkfalli að sögn Vil-
borgar. Eins og málin stæðu á
þessari stundu stæði allt fast í deil-
unni og nákvæmlega ekkert hefði
hreyfst síðan verkfallið var boðað.
-S.dór
Veðrið á morgun:
Ekkert lát
á suðlægum
vindum
Á morgun verða suðvestíægir
vindar ríkjandi á landinu. Um
landið vestanvert má búast viö
snjó- eða slydduéljum en skúrum
austur með suðurströndinni.
Norðanlands og austan verður
hins vegar úrkomulítið. Hiti
verður á bilinu 0-3 stíg.
Sjómaður varð
úti í Ólafsvík
Stefan Sigurdsson, DV, Hellissandi:
Sjómaður af bát frá Ólafsvík fannst
látinn um áttaleytið í gærkvöldi í
Ólafsvík. Talið að hann hafi orðið
úti. Krapaveðiu- var og heldur kalt,
en þó ekki mjög slæmt veður.
Sjómaðurinn var á dansleik á Röst-
inni á Hellissandi á laugardagskvöld
og fór einn af honum um þijúleytið
um nóttina. Þegar ekkert hafði frést
af ferðum hans á sunnudag var lög-
reglunni gert aðvart. Hafin var leit
og fannst maðurinn látinn um kvöld-
ið. Haxm var 35 ára gamall, kvæntur
og þriggja bama faöir.