Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1988.
3
dv
Fréttir
DV kannar afstöðu þingmanna til nýja frumvarpsins um að leyfa bjórinn:
Meirihluti beggja deilda
fylgjandi bjórfrumvarpinu
Hver er afstaða þingmanna til þess
nýja frumvarps um bjórinn sem lagt
hefur verið frám á Alþingi? DV hefur
kannað hug þingmanna og er niður-
staða þeirrar könnunar sú að veru-
legur meirihluti er meðal þingmanna
fyrir samþykkt nýja frumvarps-
ins.
DV hefur áður, 16. maí 1987, spurt
alþingismenn um afstöðu þeirra til
bjórsins almennt en hér kemur fram
afstaða þeirra til frumvarpsins sem
nú liggur fyrir. Það er meirihluti alls-
heijarnefndar neðri deildar Alþingis
sem leggur frumvarpið fram og er
fyrstu umræðu um máhð lokið.
Því getur líklega varla nokkur
maður neitað að málþófi hefur verið
haldið uppi um máhð, nú sem endra-
nær. Það voru skiptar skoðanir um
það meðal þingmanna hvort frum-
varpið fengi afgreiðslu og kæmi til
atkvæða. Töldu jafnvel sumir að
umræöan í upphafi benti til þess aö
andstæðingar bjórsins ætluðu ‘ekki
að láta málið koma til afgreiðslu á
þessu þingi. Þá hafa verið uppi
vangaveltur um að afstaða varaþing-
manna kunni að geta ráðið nokkru
um hve vel gengur að koma frum-
varpinu í gegnum þingið.
Með bjórfrumvarpinu
Eftirfarandi flokkun byggir á svör-
um þingmanna þegar þeir voru
spurðir um afstööuna th frumvarps-
ins, en rétt er að taka fram að margir
þingmanna gerðu ýmsa fyrirvara á
afstöðu sinni sem ekki kemur hér
fram.
Eftirtaldir þingmenn styðja bjór-
frumvarpiö:
Sjálfstæðismenn:
Birgir ísleifur Gunnarsson. Friðrik
Sophusson. Eyjólfur Konráð Jóns-
son. Guðmundur H. Garðarsson.
Geir H. Haarde. Ólafur G. Einarsson.
Salome Þorkelsdóttir. Matthías
Bjamason. Halldór Blöndal. Eggert
Haukdal.
Framsóknarmenn:
Guðmundur G. Þórarinsson. Jóhann
Einvarðsson. Alexander Stefánsson.
Stefán Guðmundsson. Valgerður
Sverrisdóttir. Halldór Ásgrímsson.
Jón Kristjánsson. Guðni Ágústsson.
Alþýðuflokksmenn:
Jón Sigurðsson. Jóhanna Sigurðar-
dóttir. Kjartan Jóhannsson. Karvel
Pálmason. Jón Sæmundur Sigur-
jónsson. Sighvatur Björgvinsson.
Alþýðubandalagsmenn:
Guðrún Helgadóttir, Hjörleifur Gutt-
ormsson.
Borgaraflokksmenn:
Guömundur Ágústsson. Júlíus Sól-
nes. Ingi Björn Albertsson.
Samtök um kvennalista:
Kristín Einarsdóttir. Kristín Hah-
dórsdóttir.
Á móti bjórfrumvarpinu:
Eftirtaldir þingmenn eru andvigir
bjórfrumvarpinu:
Sjálfstæðismenn:
Ragnhhdur Helgadóttir. Matthías Á.
Mathiesen. Friðjón Þórðarson.
Sverrir Hermannsson.
Framsóknarmenn:
Ólafur Þ. Þórðarson. Jón Helgason.
Alþýðuflokksmenn:
Karl Steinar Guðnason. Árni Gunn-
arsson.
Alþýðubandalagsmenn:
Svavar Gestsson. Geir Gunnarsson.
Skúli Alexandersson. Margrét Frí-
mannsdóttir.
Borgaraflokksmenn:
Albert Guðmundsson. Aðalheiöur
Bjarnfreðsdóttir.
Samtök um kvennalista:
Guðrún Agnarsdóttir. Málmfríður
Sigurðardóttir.
Utan flokka:
Stefán Valgeirsson.
Líka fylgjandi
Ekki náðist í þá Þorsteinn Pálsson,
Steingrím Hermannsson, Jón Bald-
vin Hannihalsson, Ragnar Arnalds
og Pálma Jónsson sem allir hafa
sagst vera fylgjandi bjór.
Nokkrir þögulir
Þá sögðust nokkrir þingmenn ekki
vilja gefa upp afstööu sína - hún
kæmi fram á þingi. Þeir eru: Þór-
hildur Þorleifsdóttir, sem hefur áður
sagst vera jákvæð í afstöðu sinni,
Hreggviður Jónson, sem hingað th
hefur verið óákveðinn í afstöðu
sinni, Eiður Guðnason, sem hefur
verið hlynntur bjórnum, Danfríöur
Skarphéðinsdóttir, sem sagðist vera
fremur hlynnt því að sala bjórs verði
leyfð, Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, sem hefur verið andvígur bjóm-
um, Guðmundur Bjamason heh-
brigðisráðherra, hefur enn ekki gefiö
upp afstöðu sína en hefur hingað th
verið tahnn fylgjandi bjór, Páll Pét-
ursson, hefur hingað th verið óráðinn
í afstöðu sinni, Steingrímur J. Sigfús-
son, hefur sagst hafa marga stranga
fyrírvara ef hann eigi að samþykkja
bjór, Eghl Jónsson, hefur áður gefiö
í skyn að hann vhji þjóðaratkvæða-
greiðslu um máhð, og Óh Þ. Guð-
bjartsson sem segist ekki vilja gefa
upp sína afstöðu að svo komnu máli.
40 þingmenn jákvæðir gagn-
vartfrumvarpinu
Ef reynt er að spá í þessar tölur
kemur í ljós að frumvarpið hefur
mikinn stuðning í báðum deildum.
Th þess að fá skýrar línur fyrir les-
endur hefur verið reynt að flokka
þingmenn ákveðið niður þó þeir
sumir hverjir hafi ekki gefið ákveðin
svör og einnig er margvíslegum fyr-
irvörum einstakra þingmanna
sleppt. Því má ætla að einhver, en
þó ekki alvarleg, ónákvæmni sé í
niðurstöðum.
Samkvæmt þessu styðja 27 þing-
menn frumvarpið í neðri deild, 11 eru
því andvígir en 4 eru óráðnir. í efri
deild eru 13 stuöningsmenn, 7 and-
stæöingar og einn óráðinn.
Samanlagt kemur þetta út þannig
að 40 þingmenn eru jákvæðir gagn-
vart frumvarpinu, 18 neikvæðir en 5
óráðnir. Ef lagt er út frá þessum nið-
urstööum verður frumvarpið
samþykkt. -SMJ
Skipulögð
stjórnar-
andstaða að
myndast
innan
Dagsbrúnar
Ljóst er að sá hópur, sem lagð-
ist gegn því innan Verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar á dögunum
aö kjarasamningarnir yröu sam-
þykktir, er að skipuleggja sig sem
stjórnarandstöðu innan félags-
ins. Þaö er fxhlyrt að þeir sem að
honum standa hyggist bjóða fram
lista við stjómarkjör í félaginu
að ári en framboösfrestur er útr-
unninn nú.
,h>að er rétt, við erum tnjög
óánægðir með forystuna og vhj-
um hana frá en að svo komnu
máh ætla ég ekki að segja meira,
ég tel þaö ekki heppilegt,“ sagöi
Páh Amarson verkamaður, sá
hinn sami sem kæröi kosninguna
á DagsbrúnarfUndinum á dögun-
um, í samtali við DV. Samkvæmt
öörum heimildum DV viröist
vera kraftur í þessum hópi um
þessar mundir.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, sagöi þeg-
ar þetta var boriö undir hann að
það væri ekkert nema gott um
það að segja að menn byðu fram
í félaginu á móti stjóminni enda
væri það réttur manna aö bjóða
fram til sljórnar og trúnaöarráðs.
-S.dór
BÚLGARÍA
1988
Baðstrandaferðir
í gæðaflokki
Hótel/strönd: 24. mai 14. júni 5. og 26. júli 16. ágúst 6. sept. 27. sept.
Drushba/Grandhotel Varna: 2 vikur 3 vikur 35.170 42.200 41.100 49.900 37.600 44.600 36.380 40.990
Albena/Dobrudja: 2 vikur 3 vikur 29.440 33.540 34.780 40.340 31.850 35.950 30.650 34.750
Albena/Bratislava 2 vikur 3 vikur 25.930 28.270 30.690 34.200 28.340 30.680 27.140 29.480
Innifalið í verði er flug KEF-LUX-VAR fram og til baka, gisting á hótelum í 2ja
manna herbergjum með baði, w.c./sturtu, hálft fæði (matarmiðar), leiðsögn, ath.
ekki flugvallarskattur og annað ótalið hér. Verð er miðað við gengi US$ 20. jan.
1988 og breytist við breytingar hans gagnvart ísl. krónunni eða búlgörsku leva
og breytingar á flugmiðaverði.
FerOaskrilstota
KJARTANS
HELGASONAR
Gnoðavog 44 - 104 Reykjavik - Simi 91-68 62 55
Simnetni: Istravei - Telex: 2265 Istrav-ls