Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1988. Útlönd Engin sprengja Bresk yfirvöld á Gíbraltar viður- kenndu í gærkvöldi að engin sprengja hefði fundist í bifreið hermdarverkaraannanna þriggja sem breskir hermenn skutu til bana á Gibraltar á sunnudag. Stjómvöld halda því þó enn fram að þremenningamir, ein kona og tveir karlar, hafi verið aö undirbúa hermdarverk af einhverju tagi og sprengjuleit heldur áfram. Þremenningamir voru félagar í IRA, írska lýðveldishemum, og voru þau óvopnuð. Hermenn úr sérsveitmn breska hersins, sem þjálfaðar era til baráttu gegn hermdarverkamönnum, skutu fólkið eftir að þaö hafði yfirgefið bifreið viö bensínstöð í Gíbraltar. Breski utanríkisráöherrran, sir Geoffrey Howe, sagði á breska þinginu í gær aö ekki léki neinn vafi á að fólkið hefði ætlaö aö fremja hermdar- verk af einhveiju tagi. Ummæli hans vóktu harða gagnrýni í breska þinginu. Til mikilla mótmælaaögerða kom í hverfum rómversk-kaþólskra í Belíast á Norður-írlandi. Útlagasfjóm Eric Arturo Delvalle, fyrrum for* seti Panama, sem settur var af nýlega, tilkynnti í gær að hann og hópar stjórnarandstæöinga ætluðu að setja upp andófsríkisstjórn í Panama og markmið hennar yrði að koma Manuel Antonio Noriega, yfirraantú hers landsins. úr emb-. ætti. Kafbátur sigldi á borpall PáB Vílhjálmsson, DV, Osló: Um miðjan dag á sunnudag sigldi kafbátur frá vestur-þýska hemum á norskan olíuborpall í Norðursjó. Ekkert manntjón varð og skemmdir óverulegar eftir því sem best er vitað. Þijú hundruð og tuttugu menn vorú að störfum á olíuborpalli á Ose- berg-svæðinu í Noröursjó þegar mikið högg kom á pallinn. Höggið var þaö mikið að gefin var skipun um að flytja alla á nærliggjandi borpall. Þegar starfsmenn olíuborpallsins vom komnir í ömggt athvarf kom kaf- bátur upp á yfirborðið skammt frá. Sjóliði úr kafbátnum kom upp á olíupallinn og útskýrði fyrir furðu lostnum Norömönnum að vestur- þýskur kafbátur hefði fyrir slysni siglt á olíuborpalhnn. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt gerist í Norðursjó. Vestur-þýski kafbáturinn var á flotaæf- ingum vestur-þýska flotans sem standa nú yfir. Minnsta fjarlægð sem má vera á milli skipa og oliuborpalla er fimm hundruð metrar. Réðst á andstæðinga Ronald Reagan Bandaríkjaforseti réðst í gær harkalega á þá sem sett hafa sig á móti áframhaldandi að- stoð við skæruliða kontrahreyfmg- arinnar í Nicaragua. Sakaöi hann demókrata í bandaríska þinginu um að reyna aö skjóta sér undan ábyrgð á því að skærahðarnir voru sviptir fiárhagslegum stuðningi bandarískra stjórnvalda. Flóttamanna leitað Valgerður A. Jóhannsdótlir, DV, London: Mikil leit stendur nú yfir í London aö sjö gæsluvarðhaldsföngum sem flýðu eftir að hafa yfirbugaö fjóra lögregluþjóna og læst inni í klefa í fyrri- nótt. Tveir fanganna em ákærðir fyrir morð. Scotland Yard hefur varað fólk viö að annar þeirra sé hættulegur ofbeldisseggur. Fangamir flýðu um sjöleytið í fyrrakvöld en ekki varð uppvist um flótta þeirra fyrr en þremur klukkustundum seinna. Fimm aörir fangar á sama stað héldu kyrm fyrir í klefum sínum. Þrír lögreglumenn voru fluttir á sjúkrahús. Flóttinn hefur hleypt nýjum eldi í deiiur um öryggi og aðbúnað í fanga- geymslum á Bretlandi. Fangarnir vom í haldi í klefúm undir Batterfea dómshúsinu í suðvesturhluta London. Þau húsakynni voru einungis byggð til að hýsa fanga í stuttan tíma meðan þeir bíöa eftir aö koma fyr- ir rétt. Tólfmenningamir höfðu alhr verið 1 haldi í Batterfea í lengri tima, sum- ir f raarga mánuði, vegna þess aö fangelsi i London neituðu að taka við >eim. Fangaverðir neita að taka við fieiri gæsluvarðhaldsfongum þar til stjóm- völd hafa orðið við kröfum þeirra um hærri laun og fiölgun fangavarða. Bush spáð yfirburðasigri Þrátt fyrir spár um yfirburðasigur Bush varaforseta i forkosningunum í dag er Dole kampakátur. Símamynd Reuter Robert Dole, sem reiknað getur með miklum ósigri í dag í forkosningum í sautján fylkjum í Bandaríkjunum, sagði í gær að Bush varaforseti hlyti að tapa. Er Dole var spurður að því hvort hann héldi að frambjóðandi repúblikana myndi vinna forseta- kosningarnar í nóvember næstkom- andi svaraði hann að það myndi ekki verða ef Bush yrði frambjóðandinn. Samkvæmt nýjustu skoðanakönn- unum leiðir Bush í flestum fylkjun- um með sextíu prósent atkvæða á móti tuttugu fyrir Dole. Pat Robert- son hlaut tólf prósent í skoðanakönn- unum og Jack Kemp fjögur prósent. Demókratar ganga í dag til kosn- inga í tuttugu fylkjum og meðal þeirra eru það Jesse Jackson og rík- isstjóri Massachusetts, Michael Dukakis, sem taldir em sigurstrang- legastir. Jackson er spáð tuttugu og níu prósentum og Dukakis tuttugu og fimm í Suðurríkjunum en Dukak- is er spáð meira fylgi í Texas og Flórída. Fylgi Le Pens eykst Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux: Lítiö hefur farið fyrir Le Pen, leiðtoga öfgamanna th hægri í Frakklandi,. að undanfórnu. Hann hefur horfið í skuggann af vanda- lausum vangaveltum yfir framboði hinna þriggja stóru, það er að segja Chiracs, Barres og Mitterrands. Ljóshærði lýðskrumarinn er samt sem áður í miðri kosningabaráttu og alls ekki svartsýnn á möguleika sína í forsetakosningunum í vor. Kannanir sýna að undanfarna mánuði hefur fylgi Le Pens aukist. Um tíu prósent kjósenda myndu velja hann ef gengið væri til kosn- inga nú. Le Pen veit auðvitað að hann á enga möguleika á að ná kjöri en hann veit líka aö tíu prósentin hans geta haft úrslitaáhrif fyrir fram- bjóðanda hægri flokkanna í seinni umferö kosninganna en þá keppa þeir tveir sem flest atkvæði hljóta í fyrri umferö. Hvort sem Chirac eða Barre kemst áfram og keppir við frambjóðanda sósíalista í seinni umferðinni þurfa þeir sem fiest at- kvæði Le Pens til að eiga möguleika á kjöri. Le Pen hefur lýst því hreinskiln- ingslega yfir að um þetta verði að semja, hann láti ekki frá sér eitt- hvað fyrir ekki neitt. Er hann þá fyrst og fremst að tala utan að þátt- töku í hugsanlegri hægri stjóm. Barre og Chirac em í hálfgerðu kiandri meö þetta mál því fæstir flokksmenn þeirra vilja heyra minnst á samvinnu við Le Pen en hins vegar er ekki hægt að segja við leiðtoga Þjóðfylkingannnar að hann skuli éta það sem úti frýs. Því hafa Barre og Chirac sagt í sjón- varpsviðtölum bæði af og á meö mörgum oröum og eftir ógurlegum krókaleiðum neitað allri samvinnu en þó á þann hátt að áhorfandinn spyr sjálfan sig hvort þeir hafi yfir- leitt skilið spurninguna. Síöast er fréttist til Le Pens var hann í Suður-Frukklandi á fram- boðsfundi þar sem hann hamraði á innflytjendamálum. Sagði hann að nýlendutímabil Vesturlanda-væri ekki eins svartur blettur í sögunni og margir vildu vera láta og hvatti að lokum til samvinnu við Banda- ríkjamenn um stofnun nýlendna á plánetunni Mars. Eldflaugastríðið geisar án afláts íranar og írakar halda áfram eldflaugaárásum á borgir. Myndin sýnir eyði- leggingu í ibúðahverfi í Teheran eftir eina af mörgum árása íraka. Símamynd Reuter Sovétríkin fóru í gær fram á að Ör- ig koma mætti í veg fyrir að stríöiö yggisráð Sameinuðu þjóðanna kæmi milli íraks og írans magnaðist. þegar saman til þess að ræða hvern- Yfirvöld í Iran hafa nýlega sakað Sovétyfirvöld um að hafa séð írökum fyrir þeim eldflaugum sem þeir nota til árása á borgir í íran. Sovésk yfir- völd hafa vísað þessum ásökunum á bug en reiðir íranir hafa ráðist að sovéska sendiráðinu í Teheran með gljótkasti og eldsprengjum. Bandaríkin og nokkrir aðrir fasta- fulltrúar Öryggisráðsins hafa mánuðum saman lagt áherslu á .að vopnasölubanni verði komið á gagn- vart íran til þess að neyða yfirvöld þar til þess að ganga að ályktun Ör- yggisráðsins um vopnahlé. Sovétrík- in hafa hins vegar gefið tvíræð svör um það mál. i gær sagði fulltrúi Sov- étríkjanna að þau aðhylltust fyrstu bestu lausnina til að binda enda á Persaflóastríðið. Eldflaugastríðið milli íraka og ír- ana hefur nú staðið yfir í rúma viku og hafa tugir árása verið gerðir á Bagdad og Teheran og fleiri borgir. Mikið mannfall hefur orðið og skemmdir eru miklar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.