Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1988. 21 5 í íslenskri körfuknattleikssögu i gærkvöldi. Urðu erðu tvívegis jafntefli við Grindavik. DV-mynd Brynjar Gauti Táknræn mynd - baráttan í leik Grindvíkinga og ÍR-inga. DV-mynd Brynjar Gauti Bikarkeppni HSÍ: Valsstelpur áfram Valsstúlkurnar komust áfram í bikarkeppni HSÍ í gærkvöldi er þær báru sigurorð af Keflavík- urliðinu í nokkuö tvísýnuni leik 21-27. Staðan var 10-10 í hléinu. Kristín var markahæst Vals- kvenna, gerði 8 mörk en Erna skoraði 7. Una var hins vegar atkvæðamest Keflvíkinga, skoraði 12 mörk. ________íþróttir Sænsk úrvalsdeildatiið á eftir Gunnari Gunnarssyni: Ystad vill fá Gunnar Gunnarsson til liðs við sig - sænska liðið sagt reiðubúið að greiða mikið fé fýrir íslendinginn Islenski handknattleiksmaöurinn Gunnar Gunnarsson, sem hefur leik- ið frábærlega vel með IFK Malmö í annarri deildinni sænsku í vetur, hefur fengið nokkur óformleg tilboð síðustu dagana. Hafa sænsk úrvals- deildarlið sýnt honum áhuga og rætt við hann óformlega. Eftir því sem heimildir DV telja hefur úrvalsdeild- arliðið Ystad sóst fastast eftir að fá Gunnar til sín en félagið er að sögn heimildarmanns reiðubúið að greiða 150 þúsund sænskar krónur til að liðka fyrir félagaskiptum. Mun sú • upphæð vera nærri gangverði á sterkum sænskum landsliðsmanni en víst má telja að Málmeyjarliðið sækist eftir eins miklu fyrir Gunnar og því er.kleift. „Það er ýmislegt í deiglunni en það er erfltt fyrir mig að láta nokkuð uppi um þessa hluti. Keppnistímabil- inu er ekki lokið og því er þetta afar viðkvæmt mál,“ sagði Gunnar í spjalli við DV. „Ég get þó ekki neitað því að for- ráðamenn nokkurra sænskra úrv: alsdeildarliöa hafa rætt viö mig og á meðal þeirra forkólfur eins af topp- liðunum. Eins'og málum er komið er ómögulegt að segja hvað verður en þetta ræðst að nokkru leyti af því ' hvernig tekst tii hjá okkur í Malmö. Ef við förum upp þá fer ég varla í annað sænskt lið... spila heldur heima. - Vissulega væri þó gaman að leika með liði í hæstu deild, ann- aðhvort hérna i Svíþjóð eða heima á Islandi. Þeir sem leika í _efstu deild eiga miklu meiri möguléika á ná í landsliðssæti," sagði Gúnnar. Gunnar á að stjórna leik Ystad Eftir því sem heimildir DV segja á Gunnar Gunnarsson að leysa Basti Rasmussen af hólmi hjáYstad, þ.e. gangi hann í félagið. Rasmussen er leikstjórnandi liðsins og gamall landsliðsrefur. Hann hefur leikiö með sænska úrvalsdéildarfélaginu um alllangt skeið * Ystad er nú í fjóröa sæti sænsku deildarinnar en hefur þó enn ekki tryggt sér sæti í.úrslitakeppnt fjög- urra efstu líða. Örfáar umferöir eru óleiknar og bendir flest til að Ystad vinni sæti í úrslitum. -JÖG Borðtennis - flokkakeppni: Vesturbæingar enn ósigrandi - KR-ingar lögðu alla mótherja sína að velli í karlaflokki Seinni umferð í flokkakeppni Borð- tennissambands íslands 1987 til 1988 fór fram um nýliðna helgi í Laugar- dalshöll. Keppt var í 1. og 2. deild karla, í kvenna- og stúlknaflokki og í flórum flokkum pilta 15 ára og yngri. Alls tóku 32 lið þátt í keppni, frá 6 íþróttafélögum. í l. deild karla varð a-lið KR hlut- skarpast en liðið lagði alla andstæð- inga sína að velli. Hafa vesturbæing- ar verið ósigrandi um árabil í íþróttinni. í sigurliði þeirra núna voru þeir Tómas Guðjónsson, Kjart- Tómas Guðjónsson. an Briem, Kristinn Már Emilsson og Jóhannes Hauksson. í öðru s^eti í 1. deild varð A-lið Stjörnunnar. Þau örlög að falla L 2. deild biðu A-liði Arnarins en sæti þess félags tekur b-lið Víkingá, sem bar sigurorð í 2. deild. í flokki kvenna vann lið UMSB en KR varð hlutskarpast í stúlkna- flokki. í hópi pilta náöi hins vegar a-lið Víkings bestum árangri og bar það sigur úr býtum. -JÖG Knattspyma: í Reyni Ægir Már Eárason; DV, Suðumesjum: Siguijón Svéinsson, bakvörð- ur úr l. deildarliði ÍBK, hefur ákveöiö að leika með Reyni, Sandgerði, í 3. deildarkeppninni í sumar. Sigurjón er 28 árá og hefur leikið 72 leiki með ÍBK í 1. deildinni síöustu fimm árin, en hann er Sandgerðingur og lék áöur með Reyni. „Þetta var mjög erflö ákvörð- un en ég hef frú á Reynisliöinu. Hópurinn er sterkur og þjálfar- arnir mjög góðir, þeir Valþór Sigþórsson og Ómar Jóhanns- son,“ sagði Siguijón í spjalli við _DV. Blikar mæta Njarðvíking- um Einn leikur verður í átta Uða úrslitum i bikarkeppni KKÍ í kvöld. Blikar mæta Njarðvfk- ingum í Digranesi og hefst leikur þeirra klukkan 21. Breiðablik tapaði fyrri viöur- eigninni með talsverðum mun og á því harma að hefna gegn meisturunum. Pétur Guðmundsson skrífar um NBA: Eiginkonurnar slógust vegna launanna! Leikmaður vikunnar var Roy Tarpley hjá Dallas Mavericks. Hann hefur verið lykilmaður í Dallasliðinu í vetur sem varamaður og ekki hvað síst í ellefu leikja metsigurgöngunni sem enn stendur yfir. Tarpley hefur skorað að meðal- tali 15 stig og gripið 15 fráköst í þessum 11 leikjum en í síðustu viku bætti hann sig enn betur og var með rúm 17 stig og næstum 17 fráköst í þeim fjórum leikjum sem liöið vann þá vikuna. Hann er nú sjöundi besti frákastarinn í deildinni og það kemur enginn varamaöur nálægt honum í því efni. Tarpley er 2,13 m á hæð og er á ööru ári i NBA og framfarir hans frá fyrsta ári þykja með ólíkindum. Hann spilar bæöi sem miðherji og framherji og hefur tvisvar í vetur gripið 23 fráköst í einum leik sem er met iyá Ma- vericks. Meðaltal hans í vetur er nú næstum 12 fráköst í leik. Það má næstum bóka að hann fær viöurkenningu sem besti vara- maðurinn í vetur. New Jersey Nets réöu nýjan þjálfara sl. mánudag og er sá Willis Reed. Hanp geröi garðinn frægan í New York á sjöunda og áttunda áratugnum og varö m.a. NBA-meistari með Knicks 1970 og 1973. Hann hefur þjálfað und- anfarin ár bæði í háskóla og NBA, síðast sem aðstoðarþjálfari Bill Russell i Sacramento. Nets buðu hann velkominn meö því að sigra LA Clippers á heimavelli en þessi tvö lið höfðu verið jöfn með fæsta sigra i NBA fram að því. Daginn eftir fóru þeir til Boston og unnu Celtics þar en Boston hafði ekki tapað fyrir austurstrandarliði í Boston Garden.í 67 leikjum svo að menn eru nokkuö bjartsýnir í Jersey þessa dagana og tala jafn- vel um Reed sem þjálfara ársins. • Seattle Supersonics eru þekktir fy rir að vera harðir í horn að taka og láta ekki vaða ofan í sig með nokkurn hlut. Þeir hafa lent í slagsmálum sín á milli og eru Xavier McDaniels og Tom Chambers reglulega búnir að lenda í stimpingum við leikmenn annarra liða. í vetur hefur leik- mönnum líka lent saman á æflngum, sem kannski þykir ekki fréttnæmt, en nú hafa eiginkon- urnar bæst í hópinn! Eiginkonur Dale Ellis og Alton Listers lentu í slagsmálum í áhorfendastæðun- um eftir leik á milh Supersonics og Lakers um daginn. Astæðan? Ja, hún ku vera sú aö frú Ellis var ekki ánægð meö frammistööu Menn eru aldrei aðgerðarlausir i bandaríska körfuknattleiknum. herra Listers miðað viö það að hann fær rúmlega fjórfold laun á viö Ellis sem er flmmti besti skor- arinn í NBA. Og frú Lister fékk vist að heyra það óþvegið! Eitt er víst að Alton Lister hefur ekki gert neitt í vetur til aö sannfæra fólk um að hann eigi skilið að fá 1,1 milljón dollara á ári. Frú Elhs er ekki sú eina sem er óánægð meö þaö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.