Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Blaðsíða 40
FRETT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í sírha 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið I hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1988.
Tólf ára öku-
maóur tekinn
Lögreglan í Reykjavík stöðvaöi í
gær tvo tólf ára gamla drengi þar sem
*^*þeir voru að aka sendiferðabíl í
Breiðholtshverfi. Drengirnir höfðu
tekið í leyfisleysi bíl föðurs þess serh
ók. Bíllinn er af gerðinni Chevrolet
van. Þeir höfðu ekið um Breiðholts-
hverfi í einhvern tíma áður en þeir
voru stöðvaöir á mótum Stekkjar-
bakka og Skógarsels.
Hinn ungi ökumaður var færður á
lögreglustöð til skýrslugjafar. Bíllinn
var fluttur með kranabíl á lögreglu-
stöð. Faðir drengisns hefur nú vitjað
bílsins.
Alþingishúsið:
ntúðubrjóturinn
gaf sig fram
Laust fyrir klukkan átta í gærkvöld
braut maður þrjár rúður í kringlunni
i Alþingishúsinu. Þingvörður sá til
mannsins er hann hljóp á brott. Lög-
regla var látin vita. Grennslast var
um eftir manninum en árangurs-
laust.
Það var svo um klukkan hálftíu að
- ^rúmlega þrítugur maður hringdi frá
geðdeild Landspítalans og sagðist
eiga sök á rúðubrotunum. Lögreglan
sótti manninn og færði hann á lög-
reglustöð. Maðurinn var ódrukkinn.
Skaðabætur Eysteins:
Lögfræðingar
í samningum
Stjórn Iceland Seafood Corporation
hefur nú fahð Guðmundi Ingva Sig-
.^urðssyni lögmanni að semja um
hugsanlegar skaðabætur við Eystein
Helgason, fyrrverandi forstjóra,
vegna brottrekstrar hans frá fyrir-
tækinu. Fyrir Eysteins hönd mun
lögmaður hans, Ragnar Aðalsteins-
son lögmaður, sjá um samningsgerð.
Að sögn Marteins Friðrikssonar,
stjórnarmanns í Iceland Seafood,
mun stjórnin á engan hátt hafa af-
skipti af þessum samningum.
-gse
Bílstjórarnir
aðstoða
SEJlDIBíLJISTÓÐin
&
LOKI
Skyldi norðurhjaratröllið
líka lyfta grettistökum í
samningamálunum?
Austfirðingar munu leita eftir viðræðum í dag:
StríðsyfiHýsing
að vísa okkur á
Garðastrætið
- segir Hrafnkell A. Jónsson, formaður Árvakurs á EskHlrði
„Við munum óska eftir viðræö-
um við atvinnurekendur í dag en
þar sem þeir eru ekki með neitt
félag hér á Austíjörðum veröur
hvert félag fyrir sig að óska eftir
viöræðum. Verði þessum óskum
neitaö og vísi þeir á Vinnuveiten-
dasambandið í Garðastræti lítum
við á það sem stríðsyfirlýsingu og
munum grípa til aðgeröa. Það kem-
ur ekki til greina að viö förum til
Reykjavíkur í viðræður. Viö viljum
að þær fari fram hér fyrir austan
enda er hér nóg af góðu húsnæði.
En okkur e/alveg sama hveija at-
vinnurekendur fá sér til aðstoðar
við samningagerðina,“ sagði
Hrafnkell A. Jónsson, formaður
Árvakurs á Eskifirði, í samtali við
DV í morgun.
Á formannafundi Alþýðusam-
bands Austurlands í gær var
ákveðið að félögin eystra hefðu
samílot í samningunum, nema
hvaö eitthvert hik var á Seyðfirð-
ingum að sögn Hrafnkels.
Hann sagði að þær kröfur sem
Ausfirðingar gerðu nú mætti allar
finna í upphaflegri kröfugerð
Verkamannasambandsins en hann
sagöi að ákveðið hefði verið að.
kynna atvinnurekendum þær áður
en íjölmiðlar fengju þær tfi birting-
ar.
Varðandi önnur félög sem fellt
hafa kjarasamningana sagði
Hrafnkell að þeim væri að sjálf-
sögöu velkomiö að slást í hóp
félaganna fyrir austan ef þau gætu
sætt sig við þær kröfur sem þar eru
gerðar. Hann taldi aftur á móti
ekki koma til greina að fara aö
kalla saman ráðstefnuþeirraallra,
slíkt tæki of langan tíma.
-S.dór
Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Hafnarfjarðarvegi í morgun. Bifreiðin lenti út í Kópavogslæk. Ökumann-
inn, sem var á leið frá Hafnarfirði til Reykjavíkur þegar óhappið varð, sakaði ekki. Myndin ar tekin í morgun
þegar verið var að draga bílinn upp. -sme/DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Suðvestlæg
átft og él
víðast hvar
Á morgun verður suðvestlæg átt
á landinu og hiti víöa um eða rétt
undir frostmarki. É1 verða á Suð-
vestur- og Vesturlandi og austur
með suðurströndinni en bjart veð-
ur norðaustanlands.
Vesftmannaeyjar:
Býður verka-
konum 17
þúsunda
hækkun
Arthúr Bogason, formaður Sam-
taka smábátaeigenda, sem rekur
saltfiskverkun í Vestmannaeyjum,
hefur gert Verkakvennafélaginu
Snót, sem nú er í verkfalli, tilboð um
17 þúsund króna kauphækkun á
mánuði miðað við 65 stunda vinnu-
viku.
„Þessu hefur verið mjög vel tekið
og Snót er með tilboðið í skoðun. Ég
hef aldrei gert svona s.amninga áður
og þess vegna voru á tilþoði mínu
einhverjir tæknigallar sem verið er
að skoða. Ég vona bara að þetta gangi
í gegn,“ sagði Arthúr í samtali við
DV í morgun.
„Við höfum skoöað þetta tilboð og
lýst vel á það en það þurfti að bæta
ýmsu inn í ef samningar eiga að tak-
ast, við höfum gert það og gerum
Arthúri gagntilboð í dag,“ sagði Vil-
borg Þorsteinsdóttir, formaður
Snótar í morgun.
Arthúr sagðist allt eins eiga von á
því.að þessu yröi ekkert vel tekið af
öörum atvinnurekendum en hann
sagðist bara vilja semja við verka-
konur sínar. -S.dór
Kennara-
verkfall
boðað
25. mars?
Fulltrúaráð Kennarasambands ís-
lands ákvað samhljóða í gær að leita
heimildar félagsmanna til verkfalls-
boðunar og boða verkfall ef sarnning-
ar milli kennara og ríkisins hafa ekki
tekist 25. mars. Ef af verkfalli verður
leggja grunnskólakennarar, fram-
haldsskólakennarar og tónlistar-
skólakönnarar, sem eru aðilar að KÍ,
niður vinnu.
Svanhildur Kaaber, formaður KÍ,
sagði í samtali við DV að kjararáð
KÍ hefði leitað til hins ýtrasta að
grundvelli til samninga að undan-
fórnu en tilboð ríkisins gætu kennn-
arar engan veginn samþykkt.
„Samningurinn, sem ríkið býður
okkur, gerir ráð fyrir engri launa-
hækkun við undirskrift og aðeins
tæplega 6% launahækkun síðari
hluta árs 1988. Þetta þýðir í raun um
10% kjararýrnun á samningstíman-
um miðað viö 1. febrúar í ár og það
getum við ekki samþykkt," sagði
Svanhildur. . -JBj
Sex ráðherrar
eru í Osló
Aðeins fimm ráðherrar eru nú
í landinu en þeir Þorsteinn Páls-
son, Steingrímur Hermanhsson,
Matthías Á. Mathiesen, Birgir
ísleifur Gunnarsson, Jón Sig-
urðsson og Guðmundur Bjarna-
son eru allir á fundi Norður-
landráðs í Osló. Friðrik
Sophusson gegnir störfum for-
sastisráðherra á meðan.
Þá er mikill íjöldi varaþing-
manna á Alþingi núna eða alls
11. Fimm þingmenn, sem eru í
Osló, tilkynntu íjarvist og köll-
uðu ekki varaþingmenn inn fyrir
sig. -SMJ