Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1988.
5
Fréttir
Sjómannasamband fslands:
Skorar á sjómannafélög
að segja upp samningum
- eina svarið sem við eigum við aðförinni að okkur í Verðlagsráði segir Oskar Vigfusson
t
Á furidi framkvæmdastjómar
Sjómannasambands Islands í gær
var samþykkt tillaga þess eMs aö
skora á aöildarfélög sambandsins
að segja upp núgildandi kjara-
samningum þegar i staö. Um
áramót höíðu sjómannafélögin
flest ákveðið að framlengja gild-
andi kjarasamninga um 6 mánuöi.
Á fundinum í gær var éinnig
ákveðið aö leggja fram tillögu á
þingi Sjómannasambandsins í
haust að það dragi fulltrtia sinn úr
Verðlagsráði sjávarútvegsins.
„Þetta er eina svariö sem viö eig-
um við þeirri aðfór aö okkur sem
átti sér stað í yfimefnd Verðlags-
ráðs i síðustu viku þar sem það tók
aðeins 3 fundi að ákveða með at-
kvæöi fuiltrúa ríkisstjómarinnar
og kaupenda að hafa fiskverð
óbreytt," sagði Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannasambandsins, í
samtali við DV í gær.
Óskar sagöi aö flest sjómannafé-
lögin hefðu um siðustu áramót
framlengt gildandi kjarasamninga
um 6 mánuði. Aftur á móti er
ákvæði í samningum þess eðlis að
* ef gengið er fellt em þeir uppsegj-
anlegir og þetta ákvæði verður
notaö nú. Samingarnir falla úr gildi
mánuði eftir að þeim er sagt upp.
„Viö samþykktum líka að leggja
það til á þingi Sjómannasambands-
ins, sem haldið verður í haust, að
draga fiflltrúa sambandsins úr
Verðlagsráði enda fáe ég ekki séð
hvaða erindi hann á þar eftir það
sem á undan er gengið. Að mínu
mati er mæhrinn fullur og engin
leið fyrir sjómenn að una því að
laun þeirra séu fiyst með þeim
hætti sem nú á sér stað og það af
ríkisstjóminni. Við samþykktum
þess vegna okkar hörðustu mót-
mæh á fundinum í dag,“ segir
Óskar.
-S.dór
Feðgarnir Magnús Jóhannsson og Samson Magnússon með nokkra rauð-
maga sem þeir fengu i þorskanetin sín um helgina. DV-mynd S
„Vorboðiu í netunum:
Fengu sjötíu rauð-
maga í þorskanetin
Ullarsamningarnir:
Hækkunin um
2040 prósent
„Verðhækkunin á ullarvörum til
Sovétmanna nemur 20^0% en ég vil
ekki nefna nákvæmari tölu þar sem
samningarnir eru ekki alveg sam-
bærilegir frá ári til árs,“ sagði Jón
Sigurðarson, forstjóri Álafoss, í sam-
tali við DV.
Álafoss hefur nú samið við sovéska
samvinnusambandið Sojus um sölu
á 140 þúsund ullarpeysum og er sölu-
verðiö um 2 mihjónir dollara.
Samningum við Sovétmenn er þó
ekki lokið og er samningurinn viö
Sojus aðeins hluti af þeim samning-
um sem gera þarf við Sovétmenn.
T.d. náðust ekki samningar um kaup
Sovétmanna á treflum en eitthvað
þokaðist í átt að samkomulagi að
sögn Jóns. Samningar við ríkisfyrir-
tækið Razno hafa heldur ekki farið
fram en hugsanlegt er að Álafoss-
menn fari utan í þessari viku og
setjist þar við samningaborðið. Jón
Sigurðarson sagði að þegar samning-
um við Sovétmenn væri iokið að
fuhu gæti söluverð Ullarvaranna far-
iö upp í 8 milljónir dollara. Þá
vænkast hagur prjónastofanna um
leið. „Ef samningar nást við Razno
getum við deilt út verkefnum til
prjónastofanna svo útlitið er bjartara
en verið hefur að undanförnu,“ sagði
Jón. -JBj
Höfh:
Lrtil fiysting
Júlia hnsland, DV, Höfn:
18.147 tonnum af loðnu hafði veriö
landað hjá Fiskimjölsverksmiðju
Hornafjarðar í síðustu viku og Húsa-
röst ÁR lá við bryggju með 600 tonn
og beið eftir að pláss losnaði svo
hægt væri að landa. Loðnufrysting
hefur verið mjög lítil og hafa aðeins
nokkur tonn veriö fryst. Loðnan er
of smá fyrir Japansmarkaö.
Næg atvinna hefur verið hjá Fisk-
iðju KASK. Unnið er um helgar og á
kvöldin. Þar sem allur fiskur fer í
salt er hann unninn strax eftir lönd-
un.
Feðgarnir Magnús Jóhannsson og
Samson Magnússon fengu heldur
betur glaðning er þeir vitjuðu um
þorskanetin sín, skammt vestur af
Gróttu, um helgina. Um sjötíu rauð-
magar voru í netunum.
„Þetta er heldur betur ánægjulegur
vorboöi,“ sagði Magnús er hann
sýndiljósmyndaraDV rauðmagann.
„Það virðist vera fullt af rauðmaga
á þessum slóðum núna. Þeir verða
vafalaust margir sem vilja krækja
sér í þennan glaðning hjá mér,“ sagði
Magnús sem var að skipa rauðmag-
anum á land úr báti sínum, Hari HF
69, þar sem hann lá í Reykjavíkur-
höfn.
-ATA
Vinnudeilan í Vestmannaeyjum:
Ég fer til Eyja
um miðja vikuna
- segir Guðlaugur Þorvaldsson sáttasemjari
„Eg hef veriö í símasambandi viö
deiluaðila í Vestmannaeyjum alla
helgina og eins og málin standa núna
sé ég ekki aö það sé til neins að halda
sáttafund. Ég hef ákveðið að fara til
Vestmannaeyja um miðja vikuna og
reyna sáttafund þá,“ sagði Guðlaug-
ur Þorvaldsson sáttasemjari í
samtali við DV í gær.
Það er mat deiluaðila, sem og sátta-
semjara, að allt sé pikkfast í þessari
deilu sem stendur. Guðlaugur Þor-
valdsson sagði að ekki færi hjá þvi
að sú staðreynd, að verkalýðsfélögin
um land allt heföu fellt nýju kjara-
samningana, fléttaðist inn í deiluna
í Vestmannaeyjum. Menn vildu sjá
til lands í þeirri miklu óvissu sem
nú ríkir.
S.dór
Breski markaðurinn
þolir þessa viðbót
- segir Jóhannes Kristinsson, framkvæmdastjóri Gámavina sf.
„Breski fiskmarkaðurinn er þaö
sterkur að hann þohr alveg þá viðbót
sem inn á hann kemur ef verkfallið
hér í Vestmannaeyjum dregst á lang-
inn. Verð á góðum þorski fer ekki
niður fyrir 60 krónur sem er betra
en greitt er fyrir hann hér heima,"
sagði Jóhannes Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Gámavina sf. í
Vestmannaeyjum, í samtah við DV.
Margir óttast að sú viðbót, sem kem-
ur á fiskmarkaöina erlendis, muni
valda verðlækkun, jafnvel verð-
hruni. Jóhannes segir enga minnstu
hættu á því.
„Menn veröa að athuga að þetta
eru ekki svo margir bátar sem bæt-
ast við. Af þeim 35 bátum, sem gerðir
eru út frá Vestmannaeyjum, eru það
bara 3 eða 4 sem ekki flytja afla sinn
út í gámum. Að vísu bætast togararn-
ir við því þeir ætla aö sigla með afla
sinn en ég óttast ekkert verðhrun
vegna þessa. Auk þess má benda á
að hluti af afla togaranna er að jafn-
aði fluttur út í gámum,“ sagði
Jóhannes.
Að sögn Jóhannesar var verðið í
haust og um áramótin allt að 100
krónur fyrir kílóið fyrir góðan þorsk
á breska markaðnum og þegar menn
væru að tala um verðhrun væri allt-
af miðað við þetta allra hæsta verð.
Hann sagði góöan þorsk ekki fara
niður fyrir 60 krónur kílóið. aftur á
móti fengjust ekki nema 40 til 45
krónur fyrir kílóið af smáfiski og þá
væri um kóð að ræða. -S.dór
Tryggingar á traktorum:
Iðgjaldagreiðslur hækka um 335 prósent
Eftir að ný gjaldskrá tryggingafé-
laganna tók gildi 1. mars síðastliðinn
hækkaði iðgjald' trygginga á dráttar-
vélum um 335%. Fyrir hækkun
kostaði að tryggjá dráttarvél 1.451
krónu með söluskatti. Nú kostar hins
vegar 6.322 krónur að tryggja sömu
dráttarvél.
í báðum dæmunum er verðið
reiknaö án bónuss. Hann getur mest-
ur orðið 30% frá iðgjaldi. Mikið
munar um hina nýju skyldutrygg-
ingu ökumanns og eigenda. Iðgjaldið
af þeirri tryggingu er 3.200 krónur.
-sme
Vinnuveitendur samþykktu samningana
Á firndum stjórna Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna og
Sambands fiskvinnslustöðvanna í
gær voru nýgerðir kjarasamningar
samþykktir. í ályktun frá Sam-
bandi fiskvinnslustöðvanna er
tekið fram að stjórn sambandsins
samþykki samningana með fyrir-
vara um aðgeröir rikisstjórnarinn-
ar. Segir þar ennfremur að
aðgerðir stjómvalda við gerð
kjarasamninganna hafi ekki reynst
nægjanlegar. Samdráttaraðgerðir
ríkisstjómarinnar verði aö vera
mun kröftugri ef takast eigi aö
draga úr þenslu og verðbólgu.
Tekið er fram að þrátt fyrir geng-
isfellingu sé enn tap á fiskvinnsl-
unni. Þá er þaö harmað að fjölmörg
verkalýðsfélög skuh hafa fellt,
samningana og því lýst yfir aö sam-
þykki sambandsins á samningun-
um lýsi ýtrustu málamiðlun um
kauphöi sem hægt sé aö fallast á.
Við núverandi aðstæður sé útilok-
að að verða við meiri kostnaöar-
hækkunum en þessi samningur
geri ráð fyrir.
Ályktun Vinnumálasambands
samvinnufélaganna er efmslega
alveg eins og ályktun Sambands
fiskvinnslustöðvanna. Tekið er
fram að ekki sé nóg að gert hjá rík-
isstjórninni til að rétta við rekstr-
argrundvöll fiskvinnslunnar.
Heldur sé ekki nóg að gert til að
draga úr þenslu og koma í veg fyr-
ir veröbólgu. Lýst er yfir áhyggjum
vegna þess að samningarnir hafa
verið fehdir víöa um land og segist
Vinnumálasambandið muni biða
með ákvörðun um framhald samn-
ingamála.
-S.dór