Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1988, Síða 4
28
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1988.
íþróttir^
Stefán Kristjánsson, ein skærasta stjaman í íslenskum handbolta, í DV-viðtaii:
- segir Stefán Kristjánsson sem sló í gegn með frammistöðu sinni í vetur
„Ég verð að viðurkenna að það er
taisverður munur að leika með KR
eða FH í handknattleiknum. Þegar
ég var í FH lögðu leikmenn mun
harðar að sér á æfíngum og það kom
einnig sárasjaldan fyrir að leikmenn
slepptu úr æfingu. Én þegar horft er
yfir farinn veg kom árangur KR-
liðsins í vetdr mér mjög á óvart. Hvað
sjálfan mig varðar æfði ég mjög vel
og ég hef sjaldan eða aldrei verið í
betra leikformi," sagði Stefán Kristj-
ánsson, handknattleiksmaður úr KR,
í DV-viðtali.
Stefán Kristjánsson gekk í raðir
KR-inga sl. haust eftir að hafa dvalið
allan sinn handboltaferil hjá FH.
Stefán kom mjög á óvart í vetur með
glæsilegum leik sínum en hann háði
mikla keppni um markakóngstitilinn
við Sigurð Gunnarsson en á loka-
sprettinum hafði Sigurður betur. í
1. deildar keppninni skoraði Stefán
110 mörk. Árangur Stefáns vakti at-
hygli Bogdans landsliösþjálfara og
var Stefán valinn í landsliðshópinn
sem lék gegn Japönum í síðustu viku.
Þann tíma, sem Stefán lék með ís-
lenska liðinu, skilaði hann hlutverki
sínu með sóma. Stefán er örugglega
framtíðarmaður í íslenska landslið-
inu í handknattleik.
„Ahuginn á handknattleik
vaknaði á unga aldri“
- Hvenær vaknaði áhugi þinn á
handknattleik?
„Ætli ég hafi ekki verið í kringum
tíu ára gamall þegar ég hóf að æfa
handknattleik og autvitað lá leiðin
beint í FH. Síðan lék ég með FH alla
aldursflokka að undanskildu einu ári
í 3. flokki sem ég lék með Haukum.
Árangurinn í yngri flokkunum var
ekki neitt til að hrópa húrra fyrir.
Það var ekki fyrr en komið var upp
í 2. flokk sem hlutirnir fóru að ganga
vel enda hafa FH-ingar alltaf átt
sterkt lið í þessum aldursflokki.“
„Á meðan handboltinn lá niðri á
sumrin var ekkert annað að gera en
aö taka fram knattspyrnuskóna. Það
var þó lítil alvara á bak viö þá iðk-
un. Við getum sagt að þetta hafi verið
mest sprikl á þessum árum.“
KR-liðið gjörbreytist með til-
komu Alfreðs og Páls
- Nú kemur KR-liðið til með gjör-
breytast með tilkomu Alfreðs Gísla-
sonar og Páls Ólafssonar. Verður
liðið ekki líklegt til stórafreka?
„Það er ekki neinum blöðum um
það aö fletta áð KR-liðið verður mjög
sterkt á næsta keppnistímabili. Al-
freð og Páll eiga eftir að styrkja það
óhemjumikið. Þeir koma einnig til
með að hafa góð áhrif á aöra leik-
menn liðsins. Við verðum einnig að
hafa í huga aö Alfreð og Páll standa
í ströngu á ólympíuleikunum með
íslenska landshðinu og þar má ekki
mikið út af bera hvað varðar meiðsli
til að vonir, sem bundnar eru við
velgengni KR, bresti.“
„Nokkrirfélaga minna hættu
að heilsa mér á tímabili"
• - Hvað olli því að þú ákvaðst að
skipta um félag?
„Það voru ýmsir þættir sem ollu
því. Stærsti þátturinn var þó að ég
vár alls ekki nógu ánægður með hvaö
ég fékk fá tækifæri til að spreyta mig
með meistaraflokknum. Ég átti
meira skilið að mínu mati. Það sem
réð þeirri ákvöröun minni að ganga
í raðir KR-inga var að liðið vantaði
örvhentan leikmann. Sögusagnir
voru á kreiki að peningar hefðu spil-
að þarna inn í en það er alls ekki rétt.
„Félagar mínir tóku þessum fé-
lagaskiptum misvel en flestir skildu
þó mína afstöðu. Ég verð þó að viður-
kenna að nokkrir félaga minna
heilsuðu mér ekki á tímabili en eru
þó farnir til þess á nýjan leik.“
„Árangur KR-liðsins og hvað sjálf-
an mig áhrærir kom mér á óvart.
Ég æfði að vísu mjög vel og slapp að
öllu leyti við meiðsli sem er ekki lítiö
atriði."
„Óneitanlega gaman að vera
kominn í landsliðshópinn“
- Hvernig líst þér á að vera kominn
í íslenska landsliðshópinn í hand-
knattleik.
„Það er óneitanlega gaman að vera
valinn í hópinn en ég geri mér engar
vonir um að verða í hópnum sem fer
á ólympíuleikana. Það er hins vegar
gott upp á framtíðina að vera kominn
í hópinn. Maður lærir mikið af þessu
því þetta er allt öðruvísi en að æfa
meö sínu félagsliði. Ég veit að Sigurð-
ur Sveinsson leikur sömu stöðu á
vellinum og ég en engu að síður mun
ég berjast um stöðuna við hann í
landsliðinu."
Stefán
Kristjánsson
Nafn: Stefán Kristjánsson
Fæddur: 12. febrúar 1967
Þyngd: 80 kg
Hæð: 186 cm
Landsleikir: 3 A og 35-U
Starf: Prentnemi
Uppruni: Haf'naríjörður
markvörsluna hér á landi. Einnig
hefur Gísli Felix Bjarnason í KR sýnt
frábæra markvörslu í vetur og á
hann stóran þátt í því í hvaða sæti
við höfnuðum í deildinni í vetur.“
„íslandsmótið í vetur var gott en
að sama skapi ekki spennandi. Valur
og FH stungu aðra andstæðinga
snemma í mótinu af. Gæði hand-
boltans voru mun betri í vetur en
undanfarin ár. Mikið af ungurh leik-
mönnum, sem komu inn í fyrra,
komu reynslunni ríkari til baka í
deildina í vetur og það hleypti nýju
blóði í deildina. Að mínu mati voru
FH-ingar með besta liðið en þvi mið-
ur náði liðið ekki að sýna sitt rétta
andlit í úrslitaleiknum og því fór sem
fór.“
„Ef allt gengur að óskum er
6. sætið raunhæfur mögu-
leiki“
- Hverja telur þú möguleika okkar
á ólympíuleikunum í Seoul?
„Ef allt gengur upp er raunhæft að
tala um 6. sætið. Annars er ógeming-
ur að spá í þessa hluti. Allt umfram
sjötta sætið yrði frábær árangur. ís-
land, Svíþjóð, Sovétmenn og Júgó-
slavar munu berjast um tvö efstu
sætin í riölinum," sagði Stefán
Kristjánsson
-JKS
„Bogdan mjög fær þjálfari“
„Þennan stutta tíma, sem ég hef
verið undir handleiðslu Bogdans
landsliðsþjálfara, sér maður fljótlega
að þar er á ferðinni mjög fær þjálf-
ari. Hann heldur uppi miklum aga
og strákarnir bera mikla virðingu
fyrir honum. Á fyrstu æfmgunum
var um smávægilega tungumálaerf-
iðleika að ræða en strákamir
reyndust hjálplegir og túlkuðu fyrir
mig.“
„Einar Þorvarðarson jafnbesti
markvörðurinn á íslandi“
- Hvaða markverði er erfiðast að
koma boltanum framhjá?
„Ég er aldrei kvíðinn hvaða mark-
verði ég mæti hverju sinni. Þó
reynist Einar Þorvarðarson stund-
um erfiður en hann sýnir jafnbestu
• Stefán Kristjánsson lék sína fyrstu A-landsleiki gegn Japönum á dögun-
um og skilaði hlutverki sinu með sóma. Á myndinni er eitt marka Stefáns
í fæðingu í landsleik í Laugardalshöllinni. DV-mynd Brynjar Gauti
• KR-ingurinn Stefán Kristjánsson sló rækilega í gegn á nýafstöðnu ís-
landsmóti en hann varð annar markahæsti leikmaður mótsins með 110
mörk. DV-mynd Brynjar Gauti
„Nokkrir félagar hættu
að heilsa mér um tíma“