Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Side 7
MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1988.
Iþróttír
50. skíðamót íslands á Akureyri: Myndir og texti: Gytfi Kristjánsson:
HAFÐUHEMLLÁÞÉR
' V.V'.'.i.l'f" .. >
Einar Olafsson sigraði í 15 og 30 km
• Einar Óiafsson frá tsafirðí, sem vann tem gullverðlaun á landsmótinu. sést hér i göngubrautinni á myndinnl
tll haagrl en á Innfelldr myndlnni eru
Oylfi XnstjinaBan, DV, Akureyii
„Ég gekk ekki að þvi sem vísu
að ég myndi vinna ferfaldan sigur
á þessu móti eins og ég hef gert
undanfarin ár, ég vissi að bak-
meiðslin gætu háö mér og það að
ég hef ekki getað æft neitt að ráði
frá því á ólympíuleikunum,"
sagði ísfirðingurinn Einar Ólafe-
son í lok skíðalandsmótsins.
Einar gerði sér htið fyrir og
vann fiórfaldan sigur og er það
fiórða áriö í röð sem hann leikur
þann leik á landsmóti en í 5. skipti
sem honum tekst það.
Einar sýndi mikið öryggi í mót-
inu þrátt fyrir að vera ekki í
mikilli æfingu. Hann komst þó í
hann krappan í 30 km göngunni
þar sem aðeins munaöi 14 sek. á
honum og Hauki Eiríkssyni, Ak-
ureyri. „Ég vissi þaö fyrirfram
að þessi ganga yrði erfið þar sem
ég hef lítið æfl og úthaldið þvf
ekki mitóð,“ sagði Einar.
Einar vann öruœan sigur í 15
km göngunni, hann sigraði því
örugglega í göngutvíkeppni og
var í sigureveit Isfirðlnga í 3x10
km boðgöngu ásamt Þresti Jó-
hannssyni og Rögnvaldi Ingþórs-
syni. Einar fékk því „fUllt
hús“.
. * *W?\
jEkki tókst öllum keppendum að standa nlður brekkum
I ar. Hér er það júgóslavneski landsliðsmaðurinn Pouli Gebul sem hefur |
jjdottlð i stórsviginu. j
Hjá okkur færö þú „original" hemlahluti í allar
tegundir bifreiða.-Og þaö á sérlega góðu verði.
Stilling
ir*r*i 11 1HQ Dre il/ioi iíL/
Skeifunni 11,108 Reykjavik 1
Simar 31340 & 689340
„Minnisstætt mót
margra hluta vegna“
- sagði Hreggviður Jónsson, fonn. Skíðasambandsins
Gylíl Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Mér finnst þetta hafa verið gott
mót eins og mótin hér á Akureyri eru
alltaf,“ sagði Hreggviður Jónsson,
formaður Skíðasambands íslands, er
50. skíðamóti íslands var aö ljúka á
AKureyri í gær.
Mótið gekk þó ekki áfallalaust fyrir
sig. Veðurguðimir tóku völdin í upp-
hafi mótsins svo ekki var hægt að
keppa á fimmtudag og ekki á fóstu-
dag nema í göngu sem fór fram í
Kjarnaskógi. Á laugardag og sérstak-
lega í gær rættist þó úr veðrinu og
þá gekk mótshaldiö eins og í sögu og
tókst að ljúka því á tilsettum tíma.
Einar Ólafsson var maöur mótsims
og fékk fern gullverölaun. Guörún
H. Kristjánsdóttir hlaut þrenn gull
og margir keppenda fengu tvenn
gullverðlaun. Isfirðingar, með Einar
í broddi fylkingar, hlutu flest gull-
verðlaun.
Það var samdóma áht þeirra er DV
ræddi við í gær að mótið hefði farið
mjög vel fram og verið bæði skipu-
leggjendum þess svo og starfsmönn-
um í Hlíðarfjalli, sem unnu mikið
starf við erfið skilyrði, tii mikils
sóma.
„Eg verð vonandi með í þessu fram á sextugsaldurinn
ef ekkert óvænt kemur fyrir,“ sagði Björn Þór Ólafsson, skíóakappi frá
Ólafsfirði, en hann keppti á skiðalandsmóti í 28. sinn á Akureyri um helgina.
Bjöm, sem er 47 ára, sagði að hann hefói ávallt keppt af alvöru þar til
fyrir þremur árum að hann fór að linast. Þó gerði hann sér lítið fyrir og varð
í 3. sæti i norrænni tvikeppni þar sem sonur hans, Ólafur, varð sigurvegari.
Á myndinni hér að ofan er Björn fyrir miðju ásamt heiöursgestunum Alfreð
Jónssyni og Jóni Þorsteinssyni en báðir kepptu þeir á fyrsta skíöamóti ís-
lands fyrir 50 árum.
Guðrún vann til
þrennra verðlauna
Gylfi Kristjánsaon, DV, Akureyri:
Guörún H. Kristjánsdóttir, Akur-
eyri, getur veriö ánægö með sinn
hlut á skíðalandsmótinu. Hún sigraði
þrefalt en missti af möguleikanum á
ferfóldum sigri þar sem henni tókst
ektó aö sigra í samhliða svigi í gær.
Mótið byrjaði þó ekki mjög vel hjá
Guðrúnu. Eftir fyrri ferö svigkeppn-
innar á laugardag var hún tæpum
tveimur sek. á eftir Ástu HaUdórs-
dóttur, ísafirði, sem hafði forustuna,
og var Guðrún í 3. sæti.
„Þetta er mitóll munur í svigi svo
ég tók alla áhættu í síðari ferðinni,“
sagði Guðrún eftir að keppninni lauk
og dæmiö hafði gengið upp hjá henni.
Hún sagðist vongóð um sigur í stór-
sviginu í gær og þaö gekk eftir.
Guðrún vann öruggan sigur og var
aðeins tæpri sekúndu á eftir hinni
þekktu skíðakonu Mojca Desman frá
Júgóslavíu sem keppti sem gestur á
mótinu.
Örugglega vitiaust
„Þetta getur ekki veriö satt, þetta er
qrugglega vitlaust hjá þeim,“ sagði
Ólafur Sigurðsson fra Isafirði eftir að
tilkynnt hafði verið að hann væri sig-
uryegari í stórsvigi karla.
Ólafur var í 9. sæti eftir fyrri ferðina
og var ekki ánægður með síöari ferö
sma. Honum hlekktist á neðarlega í
brautinni og kom bölvandi og ragn-
andi í mark en reiðin breyttist óvænt
í gleöi og undrun. „Eg vei.t eiginlega
ekki hvað ég á að segja. Eg hugsaði
bara um aö keyra sem mest, tók alla
áhættu og ég yeit eiginlega ekki hvað
ég get sagt meira, ég er svo hissa."
Það urðu örugglega fleiri hissa.
Daníel Hilmarsson var með bestan
tíma þegar allir bestu menn eftir fyrri
ferð voru búnir með síöari ferðina og
þvi talinn sigurvegari. Hann var m.a.
mættur i sjonvarpsviðtal sem sigur-
vegari! - Daníel varð annar og þriðji
varð Ingólfur Gíslason, Akureyn, sem
var 11. eftir fyrri ferð gn náði bestum
tíma í síðari ferðinni. Ólafur bætti svo.
öðru gulli viö í gær er hann sigraði í
síöustu grein mótsins, samhliða svigi.
ísfirðingar
með flest gull
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
ísfirðingar hlutu flest gullverölaun
á skíðalandsmótinu á Akureyri eöa
8 talsins.
ísafiörður................ 8 5 2
Akureyri.................. 5 7 8
Ólafsfiörður.............. 5 3 6
Reykjavík...............;.. 3 10
Siglufiörður.............. 2 2 1
Dalvík.................... 0 10
Fljótamenn................ 0 0 1
iftSA
?i«AHKEPPN, ,
• Olafur Sigurðsson frá Isafiröi
sigraði í stórsvigi karla og samhliða
svigl.