Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Qupperneq 12
36 MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1988.
íþróttir_____________________________________________________________________dv
Svipmyndirfrá lokahófi HandknatUeikssambands íslands í Broadway um helgina:
• Siguröur Gunnarsson, Vikingi og Guðríður Guðjónsdóttir, Fram sjást hér með viðurkenningar sinar en
bæöi fengu þau útnefninguna „besti sóknarleikmaðurinn 1988“. Sigurður varð markahæstur og fékk Gullk-
nöttinn frá Adidas.
Mikið fjör á
lokahófi HSÍ
Handknattleiksmenn héldu lokahóf sitt um helgina í veit-
ingahúsinu Broádway og voru þar afhent mörg einstakl-
ingsverðlaun. Þorgils Óttar Mathiesen, FH, var kosinn
handknattleiksmaður ársins og Kolbrún Jóhannsdóttir,
Fram, handknattleikskona ársins annað árið í röð. Fjöldi
fólks lagði leið sína í Broadway á föstudagskvöldið og var
mikið um dýrðir. Af öðrum útnefningum voru þessar helst-
ar: Bestu dómarar: Ólafur Haraldsson og Stefán Amaldsson
frá Akureyri. Bestu varnarleikmenn: Geir Sveinsson og
Ema Lúðvíksdóttir í Val. Bestu markverðir: Einar Þorvarð-
arson, Val, og Kolbrún Jóhannsdóttir, Fram. Besti þjálfari:
Viggó Sigurðsson, FH. Sóknarleikmenn: Sigurður Gunnars-
son, Víkingi, og Guðríður Guðjónsdóttir, Fram. Efnilegust:
Héðinn Gilsson, FH, og Ragnheiður Stephensen, Stjöm-
unni. Besta unghngastaríið: Handknattleiksdeild, Fram.
Hallur Hallsson var veislustjóri í forföllum Amþrúðar.
Karlsdóttur. -SK
DV-myndir Brynjar Gauti
• Einar Þorvarðarson, Val og Kolbrún Jóhannsdóttir, Fram. Bestu markverðirnir 1988. Kol
brún var auk þess kosin handknattleikskona ársins, annað áriö í röð.
• Ólafur Haraldsson, til vinstri og Stefán Arnaldsson.bestu dómararnir annað árið í röð.
• Efnilegasta handknattleiksfólkið í dag, Héðinn Gilsson FH og Ragnheiður Stephensen í
Stjörnunni, með verðlaun sín.
• Það var mikil stemmning í Broadway á lokahófinu. Hér sjást valsmenn fagna kjöri Ernu
Lúðviksdóttur, besta varnarmannsins hjá konunum.
• Bestu varnarleikmennirnir í íslandsmótinu, Geir Sveinsson og Erna Lúðvíksdóttir, bæði í
Val.
• viggo Sigurðsson, þjalfari FH sest hér taka við viðurkenningunni „þjálfari ársins
1988.“ Lárus Lárusson afhendir styttuna.