Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Side 15
MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1988.
39
DV
Leikmenn
LeHturs
á Brúnni
Leikmenn Leifturs frá Ólafsfirði
voru sérstakir gestir Chelsea á
heimaleik liðsins gegn Arsenal í
ensku 1. deildinni fyrir skömmu, en
Leiftur dvaldi í æfmgabúðum í Eng-
landi um það leyti.
í leikskránni, sem Chelsea gaf út
fyrir leikinn, var sérstaklega fjallað
um lið Leifturs og þann ótrúlega ár-
angur sem það hefði náð, unnið sig
úr 4. deildinni í þá fyrstu á fáum
árum. Þá var til þess tekið að liðið
væri frá 1200 manna bæ og talan tví-
tekin til að taka af allan vafa og það
var greinilegt að þeim hjá Chelsea
fannst mikið tii um afrek Ólafsfirð-
inganna. -VS
Júrí
Sedov
predikar
Júrí Sedov, knattspyrnuþjálfari
Víkinga, verður aðalleiðbeinandi á
námskeiði sem knattspyrnudeild fé-
lagsins stendur fyrir um næstu helgi.
Námskeið þetta er haldið í sam-
vinnu við tækninefnd KSÍ og er það
aðallega ætlað þeim aðilum er þjálfa
meistaralið eða annars flokks lið.
Nánari upplýsingar og skráning er
í síma 36822 (Sigurður Ingi) eða í síma
34180 (Eyjólfur). -JÖG
Badminton:
Danir
fremstir
í Evrópu
Evrópumeistaramótinu í badmin-
ton lauk um helgina en um miðja
síöustu viku réðust úrslit í keppni
þjóðlanda. íslendingar höfnuðu í 15.
sæti og réð þar mestu tap gegn Norö-
mönnum. Staða þjóðanna í Evrópu
er annars.þessi:
1 Danmörk, 2 Svíþjóð, 3 England,
4 Sovétríkin, 5 Holland, 6 V-Þýska-
land, 7 Skotland, 8 Pólland, 9 Wales,
10 Belgía, 11 írland, 12 Finnland, 13
Austurríki, 14 Noregur, 15 ísland,
16 Tékkóslóvakía, 17 Ungverjaland,
18 Búlgaría, 19 Sviss, 20 Frakkland,
21 Portúgal, 22 Spánn, 23 Ítalía.
-JÖG
GoKklúbbur Akureyrar:
Annar kennari
til starfa
David Bamwell, golfkennari á Ak-
ureyri, hefur ráðið til sín enskan
aðstoðarmann og er um að ræða
mann sem hefur starfað við golf-
kennslu í 16 ár.
Hann heitir Peter Stacey og hefur
þjálfaö víða í Evrópu. Peter mun
starfa við hliö Davids á Akureyri og
auk þess kenna í klúbbum á Norður-
landi og viðar ef þess verður óskað.
-GK
blað-
sölustöðum
Iþróttir
Gróska á Niðurlöndum
Danski landsliðsmaðurinn Sören Lerby er einn burðarása i sterku liði PSV.
- slær PSV spánska tröllið út
Mikil gróska er nú í hollenskri knattspymu í kjölfar hallæris hin allra síð-
ustu ár. Segja má að vöxtur hafi hlaupið í íþróttina með sigri Ajax í Evrópu-
mótinu í fyrra en nú státa Niðurlendingar af tveimur liðum í undanúrslitum,
PSV og Ajax. Bæði þessi félög standa í gætt úrslitanna eftir áfangasigra í
fyrri viöureignum sínum. Þessi stjörnum prýddu lið munu spila seinni leik-
ina á miðvikudagskvöld og bíða sjálfsagt margir með öndina í hálsinum eftir
rimmu PSV og Real Madrid. Fyrri leik liðanna, sem fram fór á Spáni, lauk
með jafntefli, 1-1. Leikmenn Ajax skelltu hins vegar stallbræðrum sínum frá
Marseille í gapastokkinn í fyrri viðureigninni, unnu 0-3. -JÖG
Tryggðu sparifé þínu
háa vexfi á einfaldan
og öruggan hátt með
spariskírteinum ríkis-
sjóðs og ríkisvíxlum
Verdtryggð
spariskírteini
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs
bjóðast nú í þremur flokkum og eru
vextir á þeim allt að 8,5%.
Söfnunarskírteini bera 8,5% vexti í 2 ár
eða 3 ár og hefðbundin spariskírteini með
6 ára binditíma og allt að 10 ára lánstíma
bera 7,2% vexti. Að binditíma liðnum eru
hefðbundnu spariskírteinin innleysanleg
af þinni hálfu og er ríkissjóði einnig heirn-
ilt að segja þeim upp. Segi hvorugur skírt-
einunum upp bera þau áfram7,2% ársvexti
út lánstímann, sem getur lengst orðið 10 ár.
Verðtryggð spariskírtcini ríkissjóðs til sölu núna:
um innlausnardag hvenær sem er næstu 6
rnánuði eftir gjalddaga. Endurgreiðslan er
miðuð við gengi þess dags.
Gengistryggð spariskírteini ríkissjóðs til sölu núna:
Flokkur Lánstimi Ávöxtun Gjalddagi
1-SDR 3 ár 8,3% 11. jan.- 10. júlí ’91
1-ECU 3 ár 8,3% 11. jan.- 10. júlí ’91
Ríkisvíxlar
Flokkur Lánstími Ávöxtun Gjalddagi
1. fl. D 2 ár 8,5% 1. feb ’90
l.fl. D 3 ár . 8,5% l.feb. '91
l.fl. A 6/10 ár 7,2% 1. feb '94—'98
Iú hefur ríkissjóður hafið sölu á ríkis-
víxlum til fyrirtækja og einstaklinga.
Helsti kostur ríkisvíxla er sá, að á sama
tíma og skammtímafjármunir eru varð-
veittir á öruggan hátt bera þeir nú 29,0%
forvexti á ári. Það jafngildir 35,1% eftirá
greiddum vöxtum á ári miðað við 90 daga
lánstíma í senn.
Ríkisvíxlar:
Gengistryggð
spariskírteini
|ý gengistryggð spariskírteini ríkis-
Isjóðs eru bundin traustum erlendum
gjaldmiðlum, sem verja fé þitt fyrir geng-
issveiflum.
Gengistryggð.spariskírteini ríkissjóðs eru
annars vegar bundin SDR (sérstökum
dráttarréttindum) og hins vegar ECU
(evrópskum reikningseiningum), sem eru
samsett úr algengustu gjaldmiðlunum í
alþjóðaviðskiptum. Binditíminn er 3 ár
og í lok hans færðu greiddan höfuðstól
miðað við gengi á innlausnardegi auk
vaxtanna, sem eru 8,3%. Hægt er að velja
Lánstími dagar Forvextir Samsvarandi eftirá greiddir vextir Kaupverð 500.000 kr. víxils
45 29,0% 34,4% 481.875 kr.
60 29,0% 34,6% 475.833 kr.
75 29,0% 34,9% 469.792 kr.
90 29,0% '35,1% 463.750 kr.
Ríkisvíxlar bjóðast nú í 45 til 90 daga. Þú
getur valið um gjalddaga innan þeirra
marka. Lágmarks nafnverð þeirra er
500.000 kr., en getur verið hvaða fjárhæð
sem er umfram það. (Kaupverð 500.000
kr. víxils miðað við 90 daga lánstíma er
kr. 463.750.)
Samsetning SDR
(Hlutföll (% ) m.v.
gengi 30/3 ’88).
Dollarar
Belg.
Samsetning ECU
(Hlutföll (% ) m.v.
gengi 30/3 ’88).
Mörk
45 dagar 60 dagar 75 dagar 90 dagar
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðlabanka
íslands og hjá löggiltum verðbréfasölum,
sem m.a. eru viðskiptabankarnir, ýmsir
sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir
verðbréfamiðlarar. Ríkisvíxlar fást í Seðía-
banka íslands. Einnig er hægt að panta þá
þar, svo og spariskírteinin, í síma 91-
699863, greiða með C-gíróseðli og fá
víxlana og spariskírteinin síðan send í RiKISSJOÐUR ISIANDS
abyrgðarposti. —.......