Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988. Utlönd Dauðadómur yHr Demjanjuk DómstóU í Israel felldi í gær dauðadóm yflr John Demjanjuk, Bandaríkjamanninum sem talinn er vera Ivan grimmi, fangavörður í dauðabúðum Nasista í Póllandi á tímum síöari heimsstyrjaldarinn- Demjanjuk var dæmdur til heng- ingar fyrir stríðsglæpi sína en ísraelsmenn telja hann hafa átt aö dauða hundraða þúsunda gyöinga. Demjanjuk hefur alla tíð haldiö fram sakleysi sínu og segir þaö misskilning að hann hafí veriö fangavörður í dauöabúöunum. Máli Demjatýuk verður áfrýjaö John Demjanjuk heldur enn fram til hæstaréttar ísraels en jafnvel sakleysi sfnu. þótt hæstiréttur staöfesti dóminn Simamynd Reuter er ekki vist að Demjanjuk verði líf- látinn. Hann gæti enn eftir þaö veriö náðaður, fari dómsmálaráðherra ísraels fram á það við forseta landsins. Demianjuk hefur þráfaldlega neitaö aö vera viðstaddur réttarhöldm yfir sér. Þegar úrskurður réttarins um að hann teldist sekur um stríðs- glæpi var kveðinn upp varð aö bera hann nauðugan í réttarsalinn. Þegar úrskuröur um refsingu var lesinn upp i gær var Demjapjuk ekiö 1 réttar- salinn i híólastól. Atök um helgina Embættlsmenn bera kennsl á Ifk f El Salvador um helglna. Sfmamynd Reuler Aö minnsta kosti tuttugu stjómarhermenn og sex vinstri sinnaðir skæruliðar létu lífiö í átökum í E1 Salvador um síðustu helgi. Þar á meö- al létu saufján sljómarhermenn lífiö í íyrirsát sem skæruliðar gerðu þeim. Fjórir almennir borgarar voru myrtir í landinu um helgina og kenna ættingjar þeirra dauöasveitum stjómarhersins um. Undanfarið hefúr nokkuð borið á aftökum sem bera keim af vinnubrögöum dauöasveitanna i E1 Salvador. Allt virtist með kyrrum kjörum í Suður-Kóreu í morgun þegar kjör- staðir vom opnaðir þar fyrir þingkosningar. Kosið verður um tvö hundruð níutíu og níu þingsæti og er búist við því aö stjómarflokk- ur landsins vlnni meirihluta þeirra. Vopnaður lögregluvörður var við alla kjöretaði f landinu í morgun, til þess að koma í veg fyrir ofbeldls- verk af hálfu róttækra stúdenta og andófemanna sem halda því fram að stjómvöld hafi skipulagt svik í tengslura við kosningamar. Til nokkurra átaka kom í gær vegna kosninganna og í Chongju, einni af borgum landsins, slösuðust þrjátíu manns í átökum milli hópa úr hinum ýmsu stjómmálaflokk- um landsins. móðir hans og eiginkona grelða atkvæðl i þlngkosningunum i morgun. Simamynd Reuter Meira en tuttugu og sex milijónir kjósenda em á kjörskrá í S-Kóreu en búist er við fremur dræmri þátttöku í kosningunum. Japönsk ungmenni brenndu um helgina bandaríska fána og bila í mótmælaskyni við þróun viðskiptamála milli Bandaríkjanna og Japan. Símamynd Reuter Umdeilt frum- varp um milli- ríkjaverslun Ólafur Amaison, DV, New York: Miklar deilur eru nú milli Reagans Bandaríkjaforseta og leiðtoga demó- krata á þingi vegna lagafrumvarps um milliríkjaverslun sem þingið hef- ur nú til meðferðar. Verði frum- varpið að lögum mun þaö gera innflutning til Bandaríkjanna mun erfiðari en nú er fyrir þau viðskipta- ríki- Bandaríkjanna sem eru með verulega jákvæðan viðskiptajöfnuð við Bandaríkin. Þau ríki sem yrðu fyrir mestum áhrifum eru Japan og Vestur-Þýskaland. Fulltrúadeildin samþykkti frum- varpiö í síðustu viku með miklum mun en búist er við mun jafnari bar- áttu í öldungadeildinni. Forsetinn hefur hótað aö beita neitunarvaldi ef frumvarpiö verður samþykkt í núverandi mynd. Þaö sem fer helst fyrir brjóstið á forsetanum er ákvæði sem kveður á um að bandarísk fyrirtæki þurfi að gefa starfsfólki sínu sextíu daga fyr- irvara áður en verksmiðjum er lokað eða gripiö til fjöldauppsagna af öðr- um ástæðum. Frumvarpið á að miða að bættri stöðu bandarískra fyrirtækja í sam- keppninni við erlend fyrirtæki en forsetinn telur að sextíu daga ákvæð- iö skaði samkeppnisaðstöðu banda- rískra fyrirtækja auk þess sem ákvæði af þessu tagi eigi ekkert er- indi inn í frumvarp um milliríkjavið- skipti. Það er hins vegar ekki einungis Reagan Bandaríkjaforseti sem hefur athugasemdir viö þetta frumvarp. í Japan er mikil reiði vegna frum- varpsins og telja Japanir aö því sé stefnt gegn þeim. Viðskiptaráðherra Japans sagði í gær að frumvarpiö bæri vott um kynþáttahatur Banda-' ríkjamanna. Almenningur í Japan hefur fyllst heift í garð Bandaríkj- anna og er mikið talað um að Bandaríkjamenn séu fullir öfundar í garð Japana vegna japanska efna- hagsundursins. Um helgina brenndu japönsk ungmenni bandaríska fána og bandarískar bifreiðir í mótmæla- skyni við fyrirhugaðar takmarkanir á' innflutning japanskra vara til Bandaríkjanna. Hafa ýmsir jap- anskir frammámenn látið þau orð falla að greinilegt sé að Bandaríkin ætli nú að reyna að bæta samkeppn- isaðstöðu sína gagnvart Japönum með höftum í stað þess að einbeita sér að keppni á frjálsum markaði. Bandaríski sendiherrann í Tokýo reyndi í gær að fullvissa japansica þingmenn um að hvemig sem málin færu þá væru Bandaríkin staðráðin í að halda uppi viðskiptafrelsi og að hagsmunir allra viðskiptaaðila Bandaríkjanna yrðu tryggðir. Verður einka- fyrirtækjum heimiluð kynþáttamismunun? Ólafur Amarson, DV, New York: Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í gær með fimm atkvæðum gegn fjór- um að taka fyrir mál sem fjallar um rétt einkaaðila til að mismuna fólki eftir kynþætti. Þessi ákvörðun æðsta dómstóls landsins hefur vakið ugg meðal frjálslyndra hér í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að árið 1976 kvað rétt- urinn upp úrskurð í svipuðu máli. Þá var frjálslyndur meirihluti í rétt- inum og niðurstaðan varð sú að ólöglegt væri fyrir einkaaðila og einkafyrirtækja að mismuna fólki eftir kynþætti. Nú eru hins vegar fimm íhaldssamir dómarar á móti fjórum frjálslyndum, eftir aö Antony Kennedy tók við embætti, og frjáls- lynd samtök óttast að í þetta skipti komist rétturinn að þeirri niður- stöðu að einkaaðilum sé heimilt að mismuna fólki eftir kynþætti. Málið snýst um það hvort fyrir- tæki, önnur en þau sem eru í eigu hins opinbera, séu skyldug til aö ráöa starfsfólk af mismunandi kynþáttum í hlutfalli við skiptingu milli kyn- þátta úti í þjóðfélaginu. Hefðbundin afstaða íhaldsmanna er sú að stjórnarskráin, eða eignar- réttarákvæði hennar, sé þess eðlis að ekki sé hægt að skylda einkaaðila til að nota kvóta við ráðningar á starfsfólki. Það var athyglisvert að minnihluti hæstaréttar gagnrýndi meirihlutann í gær opinberlega og var því haldið fram að kynþáttahatur réði ferðinni. Fulltrúar minnihlutans lýstu því yfir að’ef niðurstöðunni frá 1976 yrði snú- ið við myndi það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir minnihlutahópa í Bandaríkjunum. Það er mjög óvenju- legt að dómarar í hæstarétti Banda- ríkjanna gagnrýni samstarfsmenn sína opinberlega. Þaö má búast við að dómur í þessu máli falli að ári liðnu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.