Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Side 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988.
Lífsstm
Er forfallinn
golfdellukarl
- segir Magnús Ólafsson fjölbrautaskólanemi
„Ég held aö það leiki enginn vafi á
því að ég sé forfallinn golfdellukarl,“
sagði Magnús Ólafsson er DV rakst
á hann með kylfunareidda um öxl á
æfingavelli Golfklúbbs Reykjavíkur
við Korpúlfsstaði síðasta vetrardag.
„Ég er svo illa haldinn af dellunni
að ég gekk um gólf heima, þegar
snjór huldi allt í vetur, með kylfuna
í hendinni og reyndi að sveiíla henni
um án þess að brjóta innanstokks-
muni. Þegar fer að líða að vori er
fiðringurinn oröinn afar illkynja og
ég nota hvert tækifæri sem gefst til
' þess að komast út á völl og lemja
kúluna. Þessi æfingavöllur við Korp-
úlfsstaði hefur bætt aðstöðuna mikið
hjá okkur í Golfklúbbi Reykjavíkur
því völlurinn í Grafarholti opnar
yfirleitt ekki fyrr en upp úr miðjum
maí.“
Vaktavinnumenn og nemar
- Hvernig hefurðu tíma til þess að
vera að leika golf á miðjum virkum
degi?
„Ég get þetta vegna þess að ég er í
skóla. Ég stunda núna nám við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti og get
þess vegna skroppið af og til út á
völl síödegis. Hingað koma reyndar
helst nemar og vaktavinnumenn á
virkum dögum. Þegar fer að líða að
kvöldi fyllist svo allt hérna af dag-
vinnumönnum."
Magnús sagði að golfið væri tví-
mælalaust sín eftirlætisíþrótt. Hann
sagöist reyndar stunda ýmsar íþrótt-
ir, meðal annárs handbolta, en golfið' •
kæmi alltaf númer.eitt. Magnús var
einn að æfa sig þegar DV hitti hann
við Korpúlfsstaði.
- Er ekki leiðinlegt að standa einn í
nepjunni og sveifla kylfunni?
„Nei, mér finnst ágætt að vera einn
þegar ég er að ’æfa. Nú ætla ég til
dæmis að æfa mig í ijóra til fimm
tíma og það er bara sveiflan sem ég
er að reyna að ná. Ef ég ætlaði mér
að fara níu eða átján holur væri aö
sjálfsögöu skemmtilegra að vera með
einhvern félagsskap."
Útivera, hreyfing og
félagsskapur
- En hvað er svona skemmtilegt við
golfið?
„Þetta er mjög gott sport. Það er
svo margt sem kemur til. Útivera og
hreyfing hafa mikið að segja og svo
að sjálfsögðu félagsskapurinn. En
það er ekki síst sú staðreynd að mað-
ur er sífellt að taka framtorum. Hver
kylfingur er fyrst og fremst að keppa
við sjálfan sig, sjá éigin framfarir.
Þetta gera allir golfleikarar hvort
sem þeir eru byijendur eða atvinnu-
menn.“
- Er þetta dýrt sport?
„Nei, ég myndi ekki segja þaö. Það
er fyrst og fremst stofnkostnaðurinn,
kylfurnar. \ Það er hægt að kaupa
ágætissett á- svona 20-30 þúsund
krónur. Félagsgjald í GR er 12.500
krónur á ári, en þá geta menn líka
no.taö golfvöllinn þegar þeir vilja.
Þetta er því fyrst og fremst spurning
um stofnkostnaö," sagði Magnús Ól-
afsson sem gat ekki varist því lengur
að fara að sveifla kylfunni.
-ATA
Kylfunni sveiflað i nepjunni og einbeitinguna vantar ekki.
DV-mynd BG
Magnús Ólafsson ætlaði að æfa sig í fjóra til fimm tíma síðasta vetrardag. Golffiðringurinn var að gera út af við
Magnús og hann varð að fara út á völl þótt þar væri frost og stinningskaldi. DV-mynd BG
Hvers vegna átján holur?
Golf er aldagömul íþrótt en ekki ópu og vitað er um leik sem Hol- íþróttina hafi slegið gijóthnullunga
ervitaðuppáhár hvenærfyrstvar lendingar stunduðu á vetuma á eöa bolta með stöfunum sínum og
farið aö iðka hana. Golfiö hefur þó síkjunum. Þeir slógu stein eöa bolta reynt aö hitta í holu. Eftir hveija
ætíð veriö eignaö Skotum og St. eftir ísnum og reyndu aö koma holu fengu þeir sér einn „snafs"
Andrews golfvöllurinn í Skotlandi honum niöur í vök. Þennan leik úr flöskunum sínum. Þégar þeir
er eins konar Mekka golfáhuga- kölluðu Hollendingar „koifen". voru búnir að hitta 1 átján holur
manna. Einn hringur á golfvelli er átján var búið úr flöskunum og þá
holur. En hvers vegna? Söguleg nenntuþeirekkiaðleikasérmeira.
íþróttir svipaöar golfi voru lengi skýring á þvi er sú að skosku fjár- -ATA
vel stundaðar annars staðar í Evr- hirðamir sem fýrstir stunduöu
Holaí
Það er óskadraumur allra kylfinga
að komast holu í höggi. Fæstir ná
þessu draumahöggi og jafnvel bestu
kylfingar heims komast í gegnum líf-
ið án þess að ná holu í höggi.
Um allan heim era til samtök kylf-
inga sem náð hafa draumahögginu
og á íslandi nefnast þau Einheijar.
Formaður Einheija er Kjartan L.
Pálsson og er hann jafnframt sá ís-
lendinga sem oftast hefur farið holu
í höggi, ásamt Þorbirni Kjærbo. Þeir
hafa náð þessari einstæðu sveiflu sex
sinnum hvor.
Þó svo segja megi að mikla heppni
þurfi til að ná kúlunni niður í þessa
litlu holu í einu höggi úr nokkur
hundruö metra fjarlægð þá gerist það
alltaf öðru hvoru og í fyrra voru þeir
víst um þrjátíu, íslensku kylfmgarn-
ir sem höfðu tilefni til að fagna holu
íhöggi. -ATA
Kjartan L.
Pálsson, far-
arstjóri og
fyrrverandi
blaðamaður,
erformaður
Einherja og
hefur sex
sinnum farið
holu í höggi.
DV-mynd
GVA