Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Síða 36
36
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988.
Jarðarfarir Kvikmyndir dv
Friðný S. Möller, Furulundi lla,
Akureyri, lést fóstudaginn 22. apríl.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 29. apríl kl. 13.30.
Jóhannes G. Jóhannesson hljóð-
færaleikari, Dvalarheimili aldraðra,
Borgarnesi, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 27.
apríl kl. 10.30.
Reynir Guðmundsson vélstjóri verð-
ur jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði’fimmtudaginn 28. apríl
kl. 13.30.
Jens Guðbrandsson frá Höskulds-
stöðum, Helgubraut 31, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 27. apríl kl.
_ 13.30.
Jóhann Kristinn Þorsteinsson, er lést
í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 20.
apríl, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskapellu fimmtudaginn 28. apríl
kl. 10.30.
Gunnar Ingólfsson, Hámundarstöð-
um 1, Vopnafirði, verður jarðsung-
iim miðvikudaginn 27. apríl kl. 15.00.
Björn Finnbogason frá Hítardal, Álf-
heimum 58, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju í dag,
þriðjudag, kl. 15.00,
Sigurður Ó. Jónson bakarameistari,
Auðarstræti 11, lést 16. apríl síðast-
liðinn. Hann fæddist 29. febrúar 1912
í Vestmannaeyjum og ólst þar upp.
Hann fékk snemma áhuga fyrir bak-
araiðn og lauk sveinsprófinu ungur,
^ aðeins 19 ára. Árið 1935 kvæntist
hann Jónu Sæmundsdóttur sem lést
í maí 1985. Eignuðust þau einn son,
Sæmund. Útför Sigurðar fer fram frá
Dómkirkjunni í dag, þriðjudag, kl.
15.00.
Tapað fundið
Karlmannsúr tapaðist
í Skjólunum á laugardag. Finnandi hafi
vinsamlegast samband í síma 15198.
Grísk kvikmyndavika:
Veisla í Regnboganum
Grísk kvikmyndavika er nú í Regnboganum.
Það er skammt stórra högga á
milli núorðið. Nýlokið er franskri
kvikmyndaviku og nú tekur grísk
við.
Hátíðin, sem hófst í gær, stendur
út vikuna og verða sýndar sex
grískar kvikmyndir meðan á henni
stendur. Þetta eru allt nýlegar
kvikmyndir sem allar hafa hlotið
viðurkenningar á kvikmyndahá-
tíðum. Sá háttur verður haföur á
að sýndar verða tvær myndir á
hverju kvöldi á fjórum sýningum,
klukkan 5, 7, 9 og 11.
Myndimar eru hingað komnar
fyrir tilstuðlan gríska mennta-
málaráðuneytisins og grísku
kvikmyndastofnunarinnar, en eins
og kunnugt er þá er menningar-
málaráðherra Grikkja Melina
Merkouri, ein af bestu kvikmynda-
leikkonum fyrr og síðar. Það er
aðalræðismaður íslands í Grikk-
landi sem hefur haft veg og vanda
af því að fá myndirnar hingað.
Kvikmyndastofnunin var stofnuð
1970 sem hluti af iðnþróunarsjóði
Grikkja. Hún hefur verkað sem
vítamínsprauta á • gríska kvik-
myndagerð allar götur síðan og er
nú svo komið að framleiddar eru
15-20 kvikmyndir árlega.
Kvikmyndirnar, sem sýndar
verða á hátíðinni, eru þessar:
A foolish Lovesem leikstjórinn
Giorgos Panoussopoulos gerði árið
1981. Hún fjallar um ungan mann
sem býr ásamt móður sinni í
Aþenuborg vorra daga, borg sem
er mörkuð bandarískum menning-
aráhrifum. Hann er stjömuskoð-
ari, en dag einn beinir hann
sjónauka sínum að Stellu sem býr
í nágrenninu og verður ástfanginn.
Rembetikoer margverðlaunuð
kvikmynd leikstjórans Costas
Ferris. Hún fjallar um líf söngkonu
sem syngur Rembetiko, tónlist sem
líkja mætti við blús. Þessi mynd
hefur vakið mikla athygli hvar sem
hún hefur verið sýnd, fékk silfur-
bjöminn á kvikmyndahátíðinni í
Berlín, sérstaka heiðursútnefningu
á kvikmyndahátíðinni í Valencia,
og fjölda verðlauna á kvikmynda-
hátíðinni í Þessalóníku.
The Price of Loveheitir kvik-
mynd Tonia Marketaki frá árinu
1984. Myndin gerist um aldamótin
í Korfu. Hún fjallar um erfiða stöðu
lágstéttarstúlku sem tæld er og
svikin af ungum manni af borgara-
.ættum. Þjóðfélagið á erfitt með að
umbera slíkt og lendir hún utan-
garðs. '
Sudden Loveer kvikmynd leik-
stjórans Yorgos Tseberopoulos frá
1984. Myndin fjallar um Eleni,
sveitastúlku sem fluttist til borgar-
innar fyrir tuttugu árum. Nú er
hún föst í ástlausu hjónabandi og
allar hennar væntingar og draum-
ar hafa brostið á einn eða annan
hátt. Hún verður ástfangin og lífiö
tekur nýja stefnu.
A quiet Deather kvikmynd Fri-
eda Lappa frá árinu 1986. Hún
fjallar um rithöfund, konu sem
neitar að skrifa. Hún hleypst á
brott frá manni sínum og sálfræð-
ingi. Hún eyðir nóttu í að flakka
um borgina, einkennilega og yfir-
gefna, í roki og rigningu. Hún þráir
að endurreisa sinn horfna heim.
Mynd þessi hefur hlotið fjölda við-
urkenninga, og má nefna verðlaun
á kvikmyndahátíðinni í San Se-
bastián 1986, og verðlaun á kvik-
myndahátíðinni í Þessalóníku.
Happy Homecoming, Comrade-
heitir framlag leikstjórans Lefteris
Xanthopoulos til vikunnar. Mynd-
in, sem gerð var 1986, fjallar um
þorpið Beloinnisz í Ungverjalandi.
I þorpinu búa eingöngu Grikkir
sem flúðu úr landi í kjölfar borg-
arastríðsins. Myndin fékk verð-
laun dómnefndar í Locarno og á
kvikmyndahátíðinni í Þessalóníku
fékk hún tvenn verðlaun.
-PLP
Tónleikar
Söngtónleikar á vegum Tón-
listarskólans í Reykjavík
8. stigs söngtónleikar verða í sal Tónlist-
arskólans í Reykjavík, Skipholti 33.
þriðjudaginn 26. apríl kl. 20:30. Hlif Kára-
dóttir, sópran og Sigurdríf Jónatansdótt-
ir, mezzósópran, flytja lög eftir íslenska
og erlenda höfunda.
Vortónleikar í Mosfellsbæ
Karlakórinn Stefnir í Mosfellsbæ heldur
sina árlegu vortónleika í Hlégarði mið-
vikudaginn 27. apríl kl. 21:00, í Fólkvangi
á Kjalamesi föstudaginn 29. apríl kl. 21.00
og í Hlégarði laugardaginn 30. apríl kl.
17:00. Stjórnandi kórsins er Lárus Sveins-
son og undirleikari er Jónina Gísladóttir.
Ráðgert er að kórinn fari í söngferö um
austurlánd og syngi á Neskaupstað föstu-
daginn 6. maí kl. 20:30 og á Egilsstöðum
laugardaginn 7. mai kl. 17:00.
Tilkynningar
Lýst er eftir vitni að árekstri
Þann 21. þ.m. (sumardaginn fyrsta) kl.
15:55 varð árekstur á Hringbraut, rétt
vestan Njarðargötu. Bifreiðin G-20208,
rauð Mazda 323, var á hægri akrein,
beygði til hægri og ætlaði Njarðargötu
að umferðamiðstöð, en lenti þá í árekstri
við Y-472, bláa Mözdu 626, sem var þarna
á sömu leið, en utan vegar. Þeir sem
þarna voru á eftir framangreindum bíl-
um, og telja sig geta greint frá hvemig
atburðurinn átti sér stað, em vinsamleg-
ast beðnir um að hafa samband við
ökumann bifreiðar G-20208 í síma 620208.
Kynningarfundur
ITC deildarinnar IRPU
Markmið ITC (Málfreyja) er að efla hæfi-
leika til samskipta, auka starfsafköst og
styrkja sjálfstraust félagsmanna sinna.
Félagsmenn leggja stund á fundarsköp,
framsetningu, hópvinnu, ræðumennsku
og mannleg samskipti. ITC leggur
áherslu á þjálfun einstaklingsins.
Áhersla er lögð á vemdun móðurmáls-
ins. Samtökin starfa í deildum og er ITC
deildin IRPA fámenn deild sem hefur
áhuga á að fá til liðs við sig fleiri konur
og heldur því kynningarfund að Brautar-
holti 30, Rvík, í kvöld kl. 20.30. - Kaffiveit-
ingar.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, þriðju-
dag kl. 14 félagsvist, kl. 17 söngæfmg.
Kvenfélag Kópavogs efnir til
skemmtiferðar þann 14. maí kl. 10:00.
Ferðinni er heitið í Hótel Örk, Hvera-
gerði. Nauðsynlegt er að tilkynna þátt-
töku fyrir 8. maí í síma 40332, 40388 og
41949.
Þýskir vordagar á Hótel Borg Borginni til 28. apríl. Hjómsveitin er
Nú standa yfir svokallaðir Þýskir vor- skipuð átta hljóðfæraleikurum og spila
dagar á Hótel Borg. Tónlistarmenn frá þeir þýska kráar-, hlöðu- og sveitatónlist.
Svartaskógi í Bæjaralandi, sem nefna sig Boðið verður upp á hlaðborð á kvöldin
Orginal Taugwitztaler, munu spila á með þjóðlegum, þýskum réttum.
Úrslit spurningakeppni fram-
haldsskólanna
Vegna deilna um lokaúrslit í spuminga-
keppni framhaldsskólanna 22. apríl, þar
sem kepptu til úrslita lið Menntaskólans
í Reykjavík og Menntaskólans við Sund,
hefur verðir staðfest að lið Menntaskól-
ans í Reykjavík hafi sigrað. Þessi niður-
staða fékkst á sameiginlegum fundi með
fulltrúum Rikisútvarpsins og liðum og
liðsstjórum beggja skólanna. Ágreining-
ur varð um úrslit í myndagetraun í lok
keppninnar. Samkvæmt leikreglum
máttu Uðin telja upp 12 nöfn. í umræddu
tilviki mistaldi dómari og stöðvaði Uð
Menntaskólans í Reykjavik, án þess að
gefa þeim tækifæri til að ljúka svarinu.
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavikurdeild RKÍ heldur 5 daga
námskeið í skyndihjálp að Ármúla 34
(Múlabæ) og hefst það miðvikudaginn 27.
apríl kl. 20:00. Leiðbeinandi verður Guð-
laugur Leósson.
Lysthafendur skrái sig í síma: 28222 og
41382.
Nýjar kennsluaðferðir við
tölvukennslu
Þriðjudaginn 26. apríl flytur dr. Þorlákur
Karlsson fyrirlestur á vegum Rann-
sóknastofnunar uppeldismála er nefnist:
Að kenna á tölvur: Rannsóknir á
kennsluháttum. í erindinu verður fjallaö
um rannsókn þar sem kom fram að lang-
algengasta aðferð við tölvukennslu hér á
landi og erlendis stenst mjög illa saman-
burð við tvær aðrar kennsluaðferðir sem
minna hafa verið notaðar og eru lítt
þekktar hér á landi. Fyrirlesturinn verð-
ur haldinn í Kennaraskólahúsinu við
Laufásveg og hefst hann kl. 16:30.
Fundir
Ættfræðifélagið
Félagsfundur verður haldinn í ættfræði-
félaginu fimmtudaginn 28. apríl kl. 20:30
á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18. Á fundin-
um ræðir Ólafur Ásgeirsson þjóðskjala-
vörður um stöðu þjóðskjalasafnsins og
Halldór Bjamason sagnfræðingur fjallar
um mikilvægi ættfræði fyrir sagnfræði-
rannsóknir.
Nýjar leiðir í dagvistarmálum
Áhugahópur foreldra í Hafnarfirði um
stofnun og rekstur dagvistarheimilis,
hefur boðað til almenns umræðu- og
kynningarfundar miðvikudagskvöldið
27. aprfl nk., þar sem kynntur verður
rekstur og starfsemi nokkurra dagvistar-
heimila sem rekin eru af foreldrsamtök-
um í öðrum bæjarfélögum. Jafnframt er
stefnt að því að stofna formleg foreldra-
pamtök á þessum fundi.
Fundað um friðaruppeldi
Menningar- og friðarsamtök íslenskra
kvenna efna tfl opins félagsfundar um
friðaruppeldi, þriðjudagskvöldið 26. apríl
nk. kl. 20:30 í MÍR-salnum að Vatnsstíg
10. . '
Fréttir
Markaðsstjóri Amarflugs:
Millilandaflug Am-
arflugs áfram þrátt
fýrir verkfall
Magnús Oddsson, markaðsstjóri
Amarflugs, segir að millilandaflugi
félagsins verði haldið úti þótt til
verkfalls Verslunarmannafélags
Suðurnesja komi á miðnætti í
kvöld. „Við teljum okkur geta hald-
ið utanlandsfluginu áfram á lögleg-
an hátt þótt til verkfalls komi,“
segir Magnús.
Að sögn Magnúsar hefur Amar-
flug tilkynnt viðskiptamönnum
sínum og ferðaskrifstofum að félag-
ið ætli að fljúga áfram þótt til
verkfallsins komi. Söluskrifstofur
Arnarflugs em lokaðar en ýmsar
ferðaskrifstofur em opnar og þar
er hægt að fá farseðla.
Stöðvarstjóri Amarflugs í flug-
stöðinni á Keflavíkurflugvelli er
ekki félagi í Verslunarmannafélagi
Suðurnesja. „Hann er vanur að
bóka menn inn við brottför og sjá
um farangurinn þannig að hann er
ekki að hlaupa í störf annarra,"
segir Magnús.
-JGH
Borgarstjóri svarar tilmælum félagsmálaráðherra:
Þýðir Iftið að vera
í spumingaleik
- segir Jóhanna Sigurðardóttir
Svar barst um kvöldmatarleytið
í gær frá borgarstjóra til Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráð-
herra vegna tilmæla hennar um að
stöðva frámkvæmdir við ráðhúsið
meðan ráðherra hefur ekki úr-
skurðað í kæra 'íbúa við Tjarnar-
götu þar sem því er haldið fram að
óheimilt sé að veita graftrarleyfi.
Ráðherra beindi tilmælunum til
borgarstjóra á föstudag.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráöherra sagði í samtali við
DV að í bréfinu segðist borgarstjóri
gjarnan vilja verða við ósk hennar
en beri upp tvær spurningar. Ann-
ars vegar hversu fresturinn þuríi
aö vera langur og hins vegar hver
eigi að bera kostnað af töf fram-
kvæmda. „Ég sé ekki þess merki
að borgarstjóri sé að stöðva fram-
kvæmdir en mun að sjálfsögðu
taka bréf hans til umfjöllunar. Það
þýðir lítið að vera í svona spurn-
ingaleik og mér finnst raunar
furðulegt að það þurfi að líða svona
langur tími þangað til borgarstjóri
taki afstöðu. Mér ber skylda til þess
að leita umsagnar Skipulagstjórn-
ar ríkisins og Bygginganefndar
Reykjavíkurborgar við kærunni.
En meðan svör berast ekki frá þeim
get ég ekki kveðið upp úrskurð,"
sagði Jóhanna Sigurðardóttir.
-JBj