Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Qupperneq 32
32
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRfL 1988.
LífsstíU
Golfáhuginn hefur stóraukist á síðustu árum
Golf er að verða feikilega vinsæl
íþrótt hér á landi. Það sem helst
stendur íþróttinni fyrir þrifum um
þessar mundir er skortur á golfvöll-
um. Golfklúbbarnir á höfuðborgar-
svæðinu eru nánast orðnir lokaðir
klúbbar því þeir geta ekki annað
fleiri félagsmönnum og á golfvellin-
um í Grafarholti verða félagar að
panta tíma á teig meö nokkrum fyrir-
vara.
Áhugamál heldri manna
Ástandið hefur ekki alltaf verið
svona. Fyrir nokkrum árum var golf-
ið áhugamál efnaðra heldri manna
og ekki eru nema svona fimmtán ár
síðan unglingar fóru að stunda golf
svo einhverju næmi. Nú er golíið al-
menningsíþrótt hér á landi, fjöl-
skylduíþrótt þar sem barnið og
amman geta keppt saman á jafnrétt-
isgrundvelli og fengið út úr því bæði
skemmtun og hollustu.
Nú er liðin rúm hálf öld frá því
íslendingar fóru að stunda golf, en
grunur leikur á því að útlendingar
hafi verið að lemja kúlur hér eitthvað
Þessir tveir létu ekki gaddinn og hvassviðrið á sig (á, heldur sveifluðu þeir kylfunum i grið og erg á golfvellinum við Korpúlfsstaði síðasta vetrardag.
DV-mynd BG
BLAÐ
BURÐARFÓLK
REYKJAVÍK
Túngötu
Öldugötu 1-40
Skipasund 1-29
Sæviðarsund
Síðumúla
Suðurlandsbraut 2-16
Gnoðarvog
Austurbrún
Norðurbrún
Vesturbrún
* * M
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
$ J
í í J J
GARÐABÆ
Eskiholt
Háholt
Hrísholt
fyrr þó engar heimildir séu til um
það. En það voru tveir læknar,
Gunnlaugur Einarsson og Valtýr
Albertsson, sem nú eru báðir látnir,
sem fyrstir komu með hugmyndina
að því aö setja hér upp golfvöll og
leika golf árið 1934.
Nú eru fjórir stórir, áfján holu golf-
vellir á landinu og fjöldinn allur af
sex, níu og tólf holu golfvöllum. En
vellimir nægja engan veginn til að
fullnægja eftirspurninni og nú kepp-
ast menn, einkum þó á höfuðborgar-
svæðinu, við að fmna landsvæði
undir nýja golfvelli.
Mennfádellu
Það er engu líkara en allir þeir, sem
stunda golf að einhveiju ráði, fái
„dellu“. Þetta er kannski vegna þess
að sá sem stundar golf finnur sífellt
fyrir framforum eftir því sem hann
æfir sig meira. Þetta er ekki krafta-
íþrótt eða íþrótt unga fólksins, þetta
er dægradvöl sem hentar öllum.
Byrjandi getur keppt við vanan
mann vegna forgjafarreglunnar og
menn geta líka farið einir út á völl
og séð hvort þeim hefur farið fram
eða ekki með því einu að telja höggin
sem þeir þurfa að nota.
Erlendis er golf mjög vjnsælt sjón-
varpsefni og keppt er um stórar
fjárupphæðir á stærstu mótunum.
Þekktustu kylfmgamir eru meðal
ríkustu manna í sportheiminum. Um
slíkt er ekki að ræða hér heima enn
sem komið er. íslenskir kylfingar
eiga líka á brattann að sækja hvað
aðstöðuna varðar. Golfvellir hér
heima em ekki opnir nema þrjá til
fjóra mánuði á ári. Á veturna verða
kylfmgamir að láta sér nægja að
pússa kylfurnar eða fara í golfhermi
eða slá í net innanhúss. Nokkrir fara
utan í golfferðir en um golfiðkun hér
heima er varla að ræða.
Æfingavöllur við
Korpúlfsstaði
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur
aðeins bætt úr aðstöðuleysi reyk-
vískra kylfinga með því að taka í
notkun æfmgavöll við Korpúlfsstaði
í Mosfellssveit. Þar er nú tólf holu
völlur sem félagar í Golfklúbbi
Reykjavíkur geta nýtt sér á meðan
völlurinn í Grafarholti er lokaður.
Þar má gjaman sjá kylfinga vera að
æfa sveifluskot, jafnvel um hávetur
og í hávaðaroki og frosti. En á meðan
snjórinn hylur ekki völlinn getur
fátt stöðvað golfgeggjarana.
Síðasta vetrardag voru þónokkrir
golfáhugamenn að sveifla kylfunum
við Korpúlfsstaði þó svo það væri
hávaðarok og frost. Þeir létu það
ekki á sig fá og sögðu að golffiðring-
urinn væri kominn á svo alvarlegt
stig að þeir gætu ekki haldið sig frá
golfvöllunum, hvað svo sem veður-
guðimir hefðu um það að segja. Enn
frekari sönnun um golffiðringinn
mátti sjá á velli Golfklúbbs Ness á
sumardaginn fyrsta. Þá var haldið
mót og mættu sextíu manns til leiks.
Svo mikið-frost var í jörðu að ekki
var hægt að gera holur í völlinn,
þannig að menn urðu aö láta sér
nægja að mála hvíta hringi við flögg-
in og reyna að hitta í hringinn. En
allir gerðu sig ánægða með gervihol-
umar. Það var þeim nóg að komast
út uridir bert loft og sveifla jámun-
um. -ATA
Dægradvöl
SIMI 27022
• ••
í golfi er til fyrirbrigði sem nefii-
ist forgjöf. Forgjafarreglan gerir
það mögulegt fyrir viðvaninga og
keppnismenn aö keppa saman.
Byijandi fær 36 í forgjöf og eftir því
sem mönnum vex ásmegin minnk-
ar forgjöfin. Vanur kylfingur er
kannski með 10 í forgjöf. Það gerir
að verkum að ef vanur maður og
byijandi keppa saman þarf sá vani
að vinna upp 26 högg,-sem er mun-
urinn á fbrgjöf þeirra, áöur en þeir
fara að keppa á jafriréttisgrund-
velli.
Þetta er ekki ólíkt því og ef heims-
meistari í hundrað metra hlaupi
væri að keppa við gildan skrifstofu-
mann úr Reykjavík og sá reykvíski
fengi að leggja að stað fimmtíu
metrum framar en heimsmeistar-
inn, svo dæmi sé tekið.
Konur fá að keppa á heldur styttri
braut en karlar, líkt og börn og
unglingar. Allt er þetta gert til þess
að allir geti keppt saman og golfið
er þar með orðið að almennings-
og fiölskyldufþrótt.
-ATA
íslendingar hafa lamið
kúlumar í hálfa öld