Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRlL 1988. Sviðsljós Ólyginn sagði... Mireille Mathieu franska söng- og leikkonan fræga - er aUs ekki hætt að koma fram þótt hún sé orðin 42ja ára gömul. Hún er nú að skipuleggja hljómieikaför um Evrópu, sem farin verður seinni hluta þessa árs, og segist aldrei- hafa verið í betra formi en einmitt nú. Hún segir sjálf að hún ætli ekki að hætta aö koma fram á meðan hún geti enn sungið og hreyft sig. Rod Stewart fékk fregnir fyrir skömmu sem glöddu hann mjög og gætu haft áhrif á líf hans. Rod flýði England á sínum tíma því hon- um fundust skattamir alltof háir í heimalandinu. Nú, með nýrri skattalöggjöf Thatcher minnka skattar talsvert fyrir hátekjumenn eins og Rod Stew- art og því er hann nú að velta alvarlega fyrir sér að flytja aft- ur heim til Englands því hann hefur alltaf saknað heimalands- ins. Þeldökka leikkonan Whoopi Gold- berg, sem átti svo eftirminnilegan leik í myndinni „Colour Purple", er mjög önnum kafin þessa dagana. Hún tekur að sér nokkur kvik- myndahlutverk á ári, enda streyma tilboðin inn. Af myndum sem komn- ar eru á markað hér eru „Jumpin Jack Flash“ og „Burglar" þekktast- ar. Nú er að koma á markað myndin „Fatal Beauty" þar sem hún leikur lögreglumann í spennumynd. Hún var ekki fyrr búin að leika í þeirri mynd en hún tók til við leik í ann- arri sem bera mun heitið „Homer and Eddie“. Aðalhlutverkiö á móti henni verður í höndum Jim Belushi og ætti það að verða skemmtilegur dúett. Einkamálin ganga ekki sem best hjá henni þótt vel gangi í kvikmynd- unum. Whoopi Goldberg giftist hollenska ljósmyndaranúm David Claessen stuttu eftir leik sinn í myndinni „Colour Purple". David þessi þoldi ekki að standa í skuggan- um af frægðarljóma hennar og yfirgaf hana. Whoopi er því laus og liðug eins og er. Einmanalegt á toppnum Þótt ungur sé að árum hefur Mic- hael Jackson nú gefið út endurminn- ingar sínar og er bók hans strax orðin með söluhærri bókum. Margt athyglisvert kemur fram í þessari bók, atriði sem mörgum þykja vafa- söm. Michael Jackson heldur því til dæmis fram í bók sinni að hann hafi eiginlega ekkert látið breyta andliti sínu með skurðaðgerðum. „Ég fór í tvær nefaðgerðir og lét hanna skarð í höku mína, en það er allt og sumt. Allar sögur um aðrar fegrunar- aðgerðir eru lygi í óvinveittum fjölmiölum," segir Jackson í bók sinni. Bókin er ritstýrð og gefin út af Jackie Onassis, sem er eigandi út- gáfufyrirtækis. Bókin er tileinkuð Fred Astaire en þeir Fred og Michael eru báðir miklir dansarar þótt stíll þeirra sé frekar ólíkur. Þeir sem biðu eftir útgáfu bókar- innar vonuðust eftir safaríkum frásögnum um ástarsambönd Micha- els við Tatum O’Neal og Brooke Shields en þeir hinir sömu uröu fyrir vonbrigðum því ekkert er minnst á þau í bókinni. Þess í stað er talsverð- ur harmagrátur goðsins um að hann sé vansæll í ástarsamböndum sínum og hafi ekki enn hitt þá réttu. „Veran á toppnum er einmanaleg og það finnst líklega engin mannvera í heiminum sem er eins einmana og ég,“ segir Michael. „Ég hef ekki getað keypt hamingjuna fyrir peninga," segir hann að lokum í bók sinni. Michael Jackson segist hafa látið breyta nefi sínu og höku en að öðru leyti hafi hann ekkert látið breyta andliti sinu. Trúi honum hver sem vill. ÁTHUGíf)! • í nm ' reykuusa E DEúlMJh' 7APRIL I \Srít% < ' i." l F I Whoopi Goldberg og Sam Elliot leika aðalhlutverkin í myndinni „Fatal Be- auty“ sem verið er að taka til sýninga hér á landi. Ekkert tóbakselt Dalvíkingar tóku framkvæmd „reyklausa dagsins“ alvarlegar en flestir aðrir. Hinn 7.apríl sl. var tóbak hvergi selt í verslunum þar og á myndinni aö ofan má sjá auglýsingu í glugga verslunarinnar Svarf- dælabúöar. Vonandi prentast myndin þaö vel að stafirnir sjást. DV- mynd Geir Guðsteins- son, Dalvík. Afkastamikil leikkona Sarah Ferguson, sem gift er Andrew prins, hitti hann fyrst þegar hún var íjög- urra ára gömul. Það var í veislu í Windsor-kastala. Sara er menntuð sem einkaritari og í umsögn um hana kemur margt forvitnilegt í ljós. Þar er henni meðal annars lýst sem kvikri í hreyfingum, líflegri persónu, en dálítið „sjúskaðri". Sarah Ferguson var víst ekkert sér- lega hrifin þegar dagblað í Englandi birti þessa umsögn. Stofnanakeppni í skák Á hverju ári er haldin firma- keppni stofnana í skák hér á landi og er um fimasterk mót að ræða þar sem flestir okkar sterkustu skákmanna taka þátt. Teflt er á fjórum boröum en hverju liði er heimilt að hafa 4 varamenn í hði sínu. Sigurvegarar síðasta árs eru sveit Búnaðarbankans en hún er skipuð tveimur stórmeistumm í ár, eins og í fyrra, þeim Jóhanni Hjartar- syni og Margeiri Péturssyni. Þegar þetta er skrifað er lokið þremur umferöum af sjö og er teflt eftir Monrad-kerfi. Umhugsunartíminn er klukkustund á mann og sjást því oft miklar tímahrakssviptingar viö borðið. Teflt er í tveimur riðlum, 22 sveit- ir í hvorum úm sig. A-riðillinn er sterkari og eftir þrjár umferðir er sveit Ríkisspítalanna efst með 9 'A vinning af 12 mögulegum. í B-riðl- inum er sveit Flensborgarskóla efst með 10 vinninga. Monrad-kerfiö hefur þann galla (eða kost) að sveitir með svipaðan vinningafjölda etja oft kappi saman og því er oft hægt að „spila“ á kerf- ið og sveitir geta veriö misheppnar með andstæðinga. Ógjörningur er því að spá um úrslit mótsins fyrir- fram. Þessu sterka móti lýkur fyrsta dag maímánaðar. Ljósmynd- ari DV brá sér á eina umferðina og smellti af nokkrum myndum. Hér er svipmynd úr bullandi timahraksskák Ingvars Ásmundssonar í sveit Iðnskólans og Braga Kristjánssonar sem tefldi fyrir Húsnæðisstofn- un rikisins og hraðinn er mikill eins og sjá má.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.