Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
27
Iþróttir
Björn Bjartmarz og Örn Viðar Arnarson heyja skallaeinvigi i leik Vikings og KA á laugardag. KA-menn komu á
óvart og höfðu betur, unnu 0-1. DV-mynd Brynjar Gauti
KA byrjar með sigri á Islandsmótinu:
KA skellti
slökum
Víkingum
- KA vann Víking 0-1 á gervigrasinu
Hún var heldur rislág, knattspym-
an sem Víkingar og KA-menn sýndu
í Laugardalnum á laugardag. Veður
var að visu ekki hið ákjósanlegasta
til að spila en hvössum sunnanvindi
verður varla kennt um hvernig gekk
hjá báöum aðilum. Illa tókst mönn-
um að greina að samherja og mót-
herja og markaöist leikurinn lengi
af háum, tilviljanakenndum spyrn-
um og hlaupum. Samleikskaflar
komu þó annað slagið en þeir voru
allt of skammvinnir og fáir:
„Það er erfitt að gleðja augað hér
á gervigrasinu. Við sýndum þó í dag
að við getum bitið frá okkur og það
allrækilega," sagði Guðjón Þórðar-
son, þjálfari KA-manna, eftir 0-1 sig-
urinn á Víkingum. Lið hans hreppti
stigin þrjú með sanngjömum hætti.
Norðanmenn vom frískari og
ákveðnari frá byijun og uppskáru
eins og þeir sáðu til.
Lítið um færi
Færi voru ekki ýkja mörg í þessum
fyrsta leik KA á íslandsmótinu. Mark
þeirra á 25. mínútu er sjálfsagt lýs-
andi dæmi um gang mála í heild en
það réð einmitt úrslitum.
Boltinn barst fyrir Víkingsmarkið
eftir hornspyrnu, yfir Guömund
Hreiðarsson, sem virtist hafa hendur
á knettinum, í Valgeir Barðason, af
honum í Einar Einarsson og inn í
markiö meö viðkomu í stönginni að
því er virtist.
Ætla mætti að lifnað hefði yfir
leiknum í kiölfar þessa marks en
raunin varð önnur. Færin höfðu flest
litið dagsins ljóst er þar var komið
sögu og gladdi fátt augaö allt til loka
leiksins.
Fjör í byrjun
Fyrstu mínútumar í þessari viður-
eign Víkings og KA voru þær fjörug-
ustu í leiknum. Nokkur færi komu
þá á örskömmum tíma og átti Bjarni
Jónsson KA-maöur það fyrsta. Skaut
hann föstu skoti á Víkingsmarkið,
nærri vítateigslínu, sem Guðmundur
varði naumlega. Þá gerðust Víkingar
aðgangsharðir, Atli Helgason átti
gott skot sem Haukur Bragason varði
vel - nafni hans Einarsson komst
einn í gegnum vöm Norðanmanna
en færið var þröngt og sá Haukur
við honum. Þá áttu þeir hvor sitt
skotiö, Atli Einarsson og Hlynur
Stefánsson, en geiguöu bæöi.
Bæði lið mega
bæta sig verulega
Bæði lið mega bæta sig verulega
en sjálfsagt má kenna gervigrasinu
á einhvern hátt um hvernig til tókst.
Gervigrasið birtir frekar veikleika
manna en hitt, krefur leikmenn um
að halda boltanum niðri og spila:
„Þetta var virkilega slakt. Það skorti
alla baráttu. Það er ljóst að við Vík-
ingar veröum að taka okkur verulega
á. Við þurfum bara að komast niður
á jörðina, berjast og spila fótbolta,“
sagði Björn Bjartmarz, einn leik-
manna Víkings eftir leikinn.
Jóhann Þorvarðarson, fyrirliði
liðsins, tók í sama streng.
„Við þurfum að gera miklu betur.
Það var allt of lítiö spil í þessum leik.
Við héldum boltanum þó vel annaö
slagið en náðum ekki að skapa okkur
umtalsverð færi,“ sagöi hann í spjalli
viðDV.
Jóhann var með sterkari mönnum
í Víkingsliðinu þetta sinnið en hann
gerði sér einna helst far um að spila
boltanum. Miðjan var hins vegar
mjög veikburða en hún ætti þó að
teljast einna sterkasti hlekkurinn í
liðinu. Leikmenn voru þar slakir,
jafnt í loftinu sem niðri á vellinum.
Studdu þeir lítið viö sóknina sem var
bitlítil. Þá var Guömundur Hreiðars-
son markvörður óstyrkur úti í víta-
teignum en varði þó vel nokkrum
sinnum, meðal annars skalla frá
Valgeiri Barðasyni 'úr ágætu færi á
30. mínútu.
í KA-liðinu bar mikiö á Erlingi
Kristjánssyni og vöminni sem hann
batt saman. Hún varðist öllum
ágangi Víkinga. Þá greip Haukur
Bragason vel inn í er á þurfti að halda
og Gauti Laxdal skóp usla með góð-
um sendingum annað slagið:
„Það er ekki hægt að byrja betur,"
sagði Gauti í spjalli við DV eftir leik-
inn. „Þetta var virkilega sætur sigur
og nú vitum við nokkurn veginn
hvernig við stöndum. Nú tökum við
bara einn leik fyrir í einu en stefnum
vitanlega upp á við.“
-JÖG
Ómarktæk knattspyma
á gervigrasvellmum
- segir Lárus Guðmundsson
„Þetta er enginn dauðadómur og
það er í sjálfu sér ómarktæk knatt-
spyrna sem leikin er á gervigrasinu.
Víkingsliðið var allt annað nú en
gegn KR á dögunum. Það var.eins
og leikmenn væru með straujárn í
skónum. Þetta er spurning um aö
berjast hver fyrir annan en leikmenn
Víkings vom einfaldlega þungir og
ósamstiga í þessum leik.“
Þetta sagði Víkingurinn Lárus
Guðmundsson en hann var meðal
áhorfenda er lið hans lá fyrir KA á
gervigrasinu á laugardag. Láms er
enn meiddur, er tognaður í læri, en
er að ná sér á strik og spilar líklega
gegn Fram 5. júní.
„KA-menn voru miklu frískari í
þessum leik, þeir börðust vel og vora
ákveðnari í alla bolta. Sigur þeirra
gat því hæglega orðið stærri," sagöi
Lárus ennfremur.
„Ég á enn við meiðsl að stríða í
læri en stefni að þvi að spila næsta
leik með Víkingum, þá á grasi. Gervi-
grasið er of hart fyrir hnén á mér.
Ég get kannski spilað á því í 50 til
60 mínútur en gengið síðan haltur
næstu tvo daga á eftir,“ sagði Láras
í spjalli viö DV.
-JÖG
DV-lið vikunnar
Baldvin Guðmundsson, Þór (1)
Sigurbjörn Jakobsson, Jón Sveinsson, Fram(1) Eriingur Kristjánsson, Þorsteinn Guðjónsson,
Leiftri (1) KA (1) KR (1)
Ragnar Margeirsson, Sigurður Björgvinsson, Stefán Viðarsson, Völs-
ÍBK (1) ÍBK (2) ungi (1)
Pétur Pótursson, KR (1) Jón G. Bergs, Val (1) Aðalsteinn Víglundsson,
ía (1)