Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Page 4
28
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
Iþróttir
• Áhorfendur á Ólafsfirði á föstudagskvöldið voru á sjöunda hundraðið. Nokkuð skorti upp á að fjöldanum frá
leiknum við ÍA væri náð en Ólafsfirðingar mega vel við una því bæjarbúar eru alls um ellefu hundruð.
DV-mynd Kormákur Bragason
• Þorgrímur Þráinsson, fyrirliði Valsmanna, hefur eina af sóknum íslandsmeistaranna á föstudagskvöldið. Hann
hældi mjög vallaraðstæðum á Ólafsfirði og sagði að mölin þar væri eins og gras miðað við það sem þeir Vals-
menn hefðu mátt notast við til æfinga að undanförnu! DV-mynd Kormákur Bragason
Steínar IngSmundarson:
„Skoram
gegn
Þórsuram“
Kormákur Bragasan, DV, ólaia&röi;
„Okkur skortlr smáheppni til
að skora mark. Við heföum átt
að gera tvö til þrjú mörk í seinni
háhMknum. Að visu hefðu þeir
átt aö gera tvö í þeim fyrri en
dæmið snerist við eftir leikhléið.
í hálfleik las Óskar yfir okkur og
við komum því tvíefldir til leiks-
ins í síöari hálfleiknum. Viö skor-
um fyrstu mörkin gegn Þórsur-
um,“ sagöi Steinar Ingimundar-
son, framheiji Leifturs, við DV
eftir leikinn við Val. Steinar var
skeinuhættur gestunum 1 leikn-
um en náöi ekki að skora þrátt
fyrir góðan leik.
Jón Gunnar Bergs:
„Mjög
ósáttur
Konnákur Bragason, DV, Ólafefirði:
„Ég er mjög ósáttur við úrslitin,
við áttum aö gera út um þetta
strax í fyrri hálfleik. Leifturs-
menn eru erfiðir hér fyrir norðan
og það er gott að vera búinn að
spfla héma,“ sagði Jón Gunnar
Bergs, sóknarmaður Vals, en
hann lék mjög vel gegn Leiftri á
Ólafsfirði á fóstudag.
Jón Gunnar var ógnandi en
náði þó ekki aö skora þrátt fyrir
að skapa mikinn usla í vöm Leift-
urs, sérlega í fyrri hálfleiknum.
Ámi Stefánsson:
„Höldum
ívið
hverja
sem er“
Kormákur Biagason, DV, Ólafefirdi;
„Þessi leikur sýnir enn að við
höldum í við hvaða liö sem er í
fyrstu deildinni. Ég er ekkert
ósáttur við úrslitin en fyrst við
komumst áfallalaust í gegnum
fyrri háfleikinn áttum við að gera
út um leiMnn í þeim siöari,“ sagði
Ámi Stefánsson, varnarmaöur
Leifturs, en hann var traustur í
leiknum og braut margar sóknar-
lotur Valsmanna á bak aftur.
Forfóll hjá Val:
Þrír ekki
með
gegn
Leiftri
Valsmenn léku án þriggja
sterkra leikmanna á Ólafsfirði á
fóstudagskvöldið. Hilmar Sig-
hvatsson tók út leikbann sitt eftir
brottreksturinn í meistarakeppn-
inni, Sigurjón Kristjánsson er
meiddur og Jón Grétar Jónsson
var ekki orðinn hcill eftir meiðsli
og veikindi. Allir ættu að vera
tilbúnir í næsta leik, gegn ÍA á
Akranesi þann 2. júní. -VS
SUtelldin:
Stúfar úr
2. urnferð
Valgeir bætir við
Vaigeir Barðason skoraði í sín-
um fyrsta 1. deildar leik með KA.
Þetta var hans 20. mark í l. deild
og þeim áfanga hefur hann náð í
aöeins 42 leikjum. Það gerir ná-
kvæmlega 2,1 leik á milli marka.
Aöeins einn leikmaður, sem nú
leikur í 1. deild, er meö betra hiut-
fall, PéturPétursson úr KR. Hann
gerði sitt 51. mark í 73 leikjura í
1. deild gegn ÍBK sl. fimmtudag
og hlutfallið er 1,4 leikir, eða um
125 mínútur, á raiUi þess sem
hann skorar.
Ftmm nýliðar
Fimm leikmenn léku í fyrsta
skipti í 1. deild í 2. umferð. Þrir
þeirra eru úr KA, þeir Jón Kristj-
ánsson, Öm Viöar Amarson og
Ágúst Sigurðsson. Hinir em Vík-
ingurinn Guðmundur Pétursson
og Valsmaðurinn Gunnlaugur
Einarsson.
Fyrstu mörkin
Mark Þorsteins HaUdórssonar
fyrir KR-inga í Keflavík á
fimmtudaginn er þaö fyrsta sem
hann skorar í 1. deildar keppn-
inni. Það tók hann 21 leik að kom-
ast á blað. Völsungurinn Sveinn
Freysson skoraði einnig í fyrsta
skipti í deildinni í 2. umferð,
glæsimark gegn ÍA, í sínum 13.
1. deildar leik.
Langþráður sigur KA
KA vann á laugardaginn aðeins
sinn annan sigur á Víkingum í
1. deildar leikfráupphafi. Sá fyrri
var fyrir níu árum, 1979, er KA
vann, 3-1, á Akureyri. KA tókst
þó reyndar að sigra Víking þegar
Uöin léku bæöi í 2. deild fyrir
tveimur áram. Á meöan hafa
Víkingar unnið 9 sinnum og einu
sinni hefur orðið jafntefli.
íslandsmótið -1. deild:
Mölin hér á Ólafs-
firði eins og gras!“
- Leiftur og Valur enn án marka í 1. deildar keppninni
Koimákur Biagason, DV, Ólafefiröi:
Leikur íslandsmeistara Vals og
Leifturs fór fram á Ólafsfirði á fóstu-
dagskvöld við ákjósanlegustu að-
stæður í hægum sunnanandvara og
örlitlum regnúða. Ekki kvörtuðu
meistaramir undan malarvellinum:
„Mölin hér er eins og gras miðað við
það sem við Valsmenn höfum haft
til æfmga upp á síðkastið," sagði
Þorgrímur Þráinsson, fyrirliði Vals,
í spjalli við DV eftir leikinn.
Leiftursmenn hófu leikinn af krafti
og virtust koma Valsmönnum tals-
vert á óvart en þeir voru fljótir að
átta sig og bitu frá sér af hörku. Mik-
ið var um háar spyrnur og hlaup en
smám saman náðu íslandsmeistar-
amir tökum á leiknum og sóttu stíft.
Jón G. Bergs skoraöi raunar mark á
15. mínútu en það var réttilega dæmt
af vegna rangstöðu. Hann var síðan
aftur á feröinni 5 mínútum síðar,
komst í dauðafæri eftir samleik við
Tryggva Gunnarsson en Sigurbjöm
Jakobsson náði til knattarins á síð-
ustu stundu. Skömmu síðar átti Val-
ur Valsson hörkuskot í þverslá, það-
an barst boltinn út til Bergþórs sem
skallaöi yfir fyrir opnu marki.
Eftir þetta komst Leiftur aftur inn
í leikinn og sótti liðið mun meira síð-
ustu mínútur fyrri hálileiksins.
Fjörugri seinni hálfleikur
Seinni hálfleikur var mun fiörugri
en sá fyrri og skemmtilegri á að
horfa. Bæði liðin léku mun betri
knattspymu og nýttu kantana mun
betur. Sér i lagi Valsmenn. Leifturs-
menn voru mun ákveðnari í seinni
háfleik en þeim fyrri og strax í upp-
hafi hálfleiksins komst Hörður Ben-
ónýsson í gott færi og var felldur
innan vítateigs en dómari lét af-
skiptalaust og sluppu Valsmenn með
skrekkinn. Hörður fór síðan aftur í
gegnum vörn Valsmanna örskömmu
síðar, var einn gegn markmanni en
var of bráður, skaut beint í fangið á
Guðmundi Baldurssyni.
Nokkru síðar bjargaði síðan Berg-
þór Magnússon á marklínu skoti frá
Guömundi Garðarssyni eftir þunga
sókn Leiftursmanna. Liðin skiptust
síðan á að sækja, áttu báðir aðila
ágæt færi án þess að skapa verulega
hættu og reyndi því lítið á markverð-
ina.
Valsmenn áttu mun meira í fyrri
hálfleik en heimamenn í þeim síðari.
Framan af markaðist leikurinn af
taugaspennu og sérstaklega voru það
Leiftursmenn sem voru óstyrkir.
Þorvaldur var óvenju óöruggur í
markinu fyrstu mínútumar en hann
jafnaði sig er á leið.
Jón Gunnar og Sigurbjörn
í aðalhlutverkum
Jón G. Bergs lék mikið hlutverk í
fyrri hálfleik og var afar ógnandi.
Mjög hreyfanlegur og vann marga
bolta með dugnaði og hörku. Hann
virkar einnig óvinnandi í loftinu,
jafnt fyrir markmenn sem aöra leik-
menn. Töluvert dró hins vegar af
honum í seinni hálfleik og náði þá
vöm heimamanna góðum tökum á
sókn gestanna. í seinni háfleik bar
einna mest á Sigurbimi Jakobssyni
í vörn Leifturs, hann var sívinnandi
og skilaði mörgum góðum sending-
um fram í sóknina auk þess sem
flestar sóknarlotur Valsmanna
brotnuðu á honum.
Það má raunar segja að varnir lið-
anna hafa einkennt þennan leik ef á
heildina er litið því Þorgrímur og
Einar Páll Tómasson voru mjög
sterkir í Valsvöminni og Árni Stef-
ánsson og Gústaf Ómarsson voru
fastir fyrir í vörn Leifturs.
Framherjar Leifturs vora fljótir og
baráttuglaðir en tilfinnanlega vantar
þá stuöning í sóknaraðgerðum. Það
sést best á því að liðið hefur enn
ekki skorað mark í fyrstu deildar-
keppninni.