Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Síða 6
30
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
Iþróttir
Islandsmótið í knattspymu - 3. deild:
Fimm mörk Grindvíkinga
%
- Stjaman vann í Sandgerði - Grótta byrjaði á sigri - tvö í lokin fiá Steindóri
Keppnin í 3. deildinni í knatt-
spymu hófst um helgina með einni
umferð í suðvesturriölinum. Leiknir
voru fjórir leikir en Víkverji sat hjá
vegna brotthvarfs ísfirðinga sem
drógu liö sitt úr keppni á síöustu
stundu. í norðausturriðlinum er
keppni ekki hafin en fyrsta umferðin
þar er um næstu helgi. í ár leika níu
Mð í SV-riðlinum, efsta liðið fer upp
í 2. deild en það neðsta fellur í 4.
deild ásamt ÍBÍ. í NA-riðlinum eru
átta lið og þar fer eitt upp en tvö nið-
ur.
Grindavík - Leiknir, R. 5-1
(1-«)
Ægir Mar Kára son, DV, Suðumesjum:
Það var furöugóður leikur í
Grindavík á laugardag á rennblaut-
um en fagurgrænum grasvellinum.
Mikið var um færi og leikurinn mjög
opinn. Símon Alfreðsson skoraöi fyr-
ir heimamenn í fyrri hálfleik og þeir
Hjálmar Hallgrímsson og Óláfur Ing-
ólfsson gerðu 2 hvor í þeim síðari. Á
lokamínútunni var Pálmi Ingólfsson,
Grindavík, rekinn út af fyrir brot.
Upp úr aukaspymunni, sem dæmd
var, varð Júlíus Pétur Ingólfsson,
bróðir hans, fyrir því að senda knött-
inn í eigið mark og kom þar meö
Breiöhyltingum á blað.
Reynir, S. - Stjarnan 0-1 (0-0)
Ægir Már Kára son, DV, Suðumesjum:
Garðbæingar voru mun betri aðil-
inn í Sandgerði á fóstudagskvöldið
og sigruöu verðskuldaö. Þeir fengu
mörg marktækifæri, sem ekki nýtt-
ust, á meöan slakir heimamenn ógn-
uðu sjaldan. Ingólfur Ingólfsson
(eldri) skoraöi sigurmarkið um miðj-
an síðari hálfleik eftir aukaspyrnu
Árna Sveinssonar. Ómar Jóhanns-
son þjálfari lék ekki með Reynis-
mönnum, hefur ekki náð sér eftir
meiðsli. í marki Stjömunnar stóð
gömul kempa, Sigurður Haraldsson,
sem varði mark Vals hér á árum
áður.
ÍK - Afturelding 2-1 (0-0)
Steindór Elísson, markakóngur
deildakeppninnar 1987, tók upp þráð-
inn þar sem hann endaði í fyrra.
Hann skoraði jöfnunarmark ÍK með
skalla kortéri fyrir leikslok og
tryggði síðan Kópavogshðinu sigur
með fallegu marki beint úr auka-
spyrnu þegar aðeins ein mínúta lifði
af leiknum. Sigurður Sveinsson hafði
komið Aftureldingu yfir um miðjan
síðari hálíleik eftir snögga sókn. ÍK
sótti öllu meira á blautu grasinu í
Kópavogi. Undir lokin lék Aftureld-
ing með tíu menn þar sem Hilmari
Haröarsyni var vikið af leikvelli fyr-
ir að slá knöttinn viljandi með hendi
eftir að hafa fengið gult spjald fyrr í
leiknum.
-VS
Grótta - UMFN 2-1 (0-0)
Gróttumenn unnu sanngjarnan
sigur gegn Njarðvíkingum í miklum
baráttuleik á Seltjamarnesi á laugar-
dag. Erhng Aðalsteinsson skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Gróttu um
miðjan fyrri hálfleik og skömmu síð-
ar bætti Bernhard Petersen öðru
markinu við með hörkuskoti frá víta-
teig. Gróttumenn sóttu mun meira
og ætluðu greinilega að bæta við
mörkum en það tókst þeim ekki.
Njarðvíkingar náðu hins vegar að
minnka muninn þegar dæmd var
óbein aukaspyma innan vítateigs
Gróttumanna og Haukur Jóhannes-
son skoraði í gegn um varnarmúr
heimamanna.
-RR
• Þröstur Gunnarsson úr ÍK brýtur sér leið framhjá varnarmanni Aftureldingar í leik liðanna í Kópavogi á laugar-
daginn. DV-mynd Brynjar Gauti
Faxamótlð í golfi fór fram i Vestmannaeyjum um helgina. Keppt var á laugardag og i
gær en á hvitasunnudag varð að fresta keppni vegna veðurs en hvassvíðri setti mikinn svip á mótið. Kepp-
endur voru 62 og voru leiknar 36 holur. í keppni karfa án forgjafar vann Gylfi Garöarsson Blrgi Ágústsson
í bráðabana en báðir höfðu ieikið á 157 höggum. Sigbjörn Óskarsson var á hælum þelrra með 158 högg. i
keppni með forgjöf var enn meíri spenna því aö þrir voru jafnir og efstir með 145 högg, Einar Ólafsson,
Gylfi Haröarson og Sigurjón Adolfsson. Einar var með besta skor á síðustu hoiunum og það réð úrslítum.
Sjöfn Guðjónsdóttir sigraði f keppni kvenna án forgjafar með 183 högg, Jakobina Guðlaugsdóttir lék á 187
og Kristin Einarsdóttir á 215. Kristín vann í keppnl með forgjöf á 157 höggum, Sjöfn lék á sama höggafjölda
og Jakobfna varð þriðja á 161 höggi, Ferðavinninga fyrlr að vera næstir holum í upphafshöggi fengu Magn-
ús Kristlelfsson, sem var 2,7 metra frá annarri holu, og Marteinn Guðjónsson sem var 38 sentfmetra frá 7. holu.
DV-mynd Ómar Garðarsson
íslandsmótið - 4. deild:
Ernir unnu upp
forskot Hauka!
- stórsigur Augnabliks á Snæfelli
Augnabliksmenn byrjuðu 4. deild-
ina af miklum krafti á laugardaginn
og unnu stóran sigur á Snæfelhngum
í A riðh á VallargerðisveUi. Úrslit
leiksins urðu 5-1 Kópavogsliðinu í
vil en staðan í hálfleik var 4-0. Alex-
ander Þórisson skoraði tvívegis og
þeir Viöar Gunnarsson, Sigurður
Hahdórsson og Kristján Halldórsson
bættu mörkum viö fyrir Augnabhk
en Rafn Rafnsson gerði eina mark
SnæfeUs.
Tap í „jómfrúleiknum“
Fyrirtak, nýja hðið úr Garðabæn-
um, mátti þola tap í, jómfrúleik“ sín-
um gegn Víkingi frá Ólafsvík í B riðli
4. deildar á gervigrasinu í Laugar-
dal. Fyrirtaksliðið komst yfir strax í
byijun er Hrafn Magnússon skoraði
af stuttu færi en Hermann Her-
mannsson jafnaði fyrir Víking og
þeir Hjörtur Ragnarsson og Víglund-
ur Pétursson tryggðu Ólafsvíkingum
síðan sigurinn í síðari hálfleik.
Sigur hjá Hvatberum
í sama riðh unnu Hvatberar 4-2
sigur á Léttismönnum á fóstudags-
kvöld. Sigtryggur Pétursson, Jón
Ármannsson, Skúh Gunnsteinsson
og Ath Atlason skoruðu mörk Hvat-
bera en Sigurður Linnet og Valdimar
Óskarsson svöruðu fyrir Létti.
Ólafur skoraði tvö
Hveragerði vann góðan sigur á
Skallagrími í B riðh í Borgamesi,
með tveimur mörkum gegn engu.
Ólafur Jósefsson var hetja Hvera-
gerðis í leiknum og skoraði bæöi
mörk hðsins, þaö fyrra úr víta-
spyrnu.
Ernir náðu jöfnu
Nýja hðið á Selfossi, Emir, byrjaöi
vel í sínum fyrsta leik og náði 3-3
jafntefli gegn Haukum á heimavelli.
Haukar skoruðu þrjú fyrstu mörkin
í leiknum og voru þar á ferðinni þeir
Björn Svavarsson, Valdimar Svein-
björnsson og Kristján Kristjánsson.
Emir gáfust þó ekki upp og náðu að
jafna metin með mörkum Jóns
Bjamasonar, Lúövíks Tómassonar
og Haralds Sigurðssonar.
-RR